Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 35

Andvari - 01.01.1945, Page 35
ANDVAHJ Lýðveldishugvekja um íslenzkt mál 31 Sumum þykir meira um vert að eiga margt g'óðra gripa, fast- eigna og verðbréfa en búa yfir gnótt andlegra fjársjóða, sem hvorki mölur né ryð fá grandað, og leggja meiri rækt við ágirni til fjár og landa en goðum borna hugsun, — skilja alla hluti jarðlegri skilningu, því að þeim er eigi gefin andleg spekin, eins og Snorri Sturluson kom orðum að þessu. Ef öllum þorra þjóðar vorrar er nú þegar þenna veg farið, þá er auðvitað, að rétt er einungis jákvætt svar við fyrri spurn- ingunni. Ef vér nú svörum henni játandi, og það liggur óneitanlega vel fyrir þeim, er hafa magann fyrir sinn guð og hugann fastan við jarðneska muni, eins og þar stendur, þá er sæmilegast nð fara hreinlega að, vera ekki að daðra við áleitni erlendra áhrifa og mannskemma sig á istöðuleysi gegn þeim, heldur gefa sig þeim á vald alfarið. Þetta virðist nú orðið fremur auðvelt. Fyrir utan málið er lítið annað eftir af íslenzkum þjóðerniseinkennum en dálítið af nokkuð sérkennilegum ’ uddaskap, sem ekki er ástæða til að leggja verulega rækt við. há eigum vér að láta semja oss vandaða kennslubók í stofn- ensku og læra þessi um það bil sjö liundruð orð í ensku, sem hunria þarf til þess, að málleysi sé elcki því til fyrirstöðu, að nienn geti haft ofan í sig að éta, leggja íslenzkuna hreinlega *yi’ir róða handa þeim til að draga upp úr djúpi gleymskunn- ar> sem gaman hafa af því að dunda við dauð mál. Þegar nialið væri farið, væru önnur þjóðerniseinkenni, sem hingað U1 llafa verið tínd til, ekki lengi til fyrirstöðu. Þau hafa verið furðu fljót að mást síðustu áratugina, eins og áður var að vikið. Ótrúlegt er þó, ef nokkuð er að marka þátttöku vor íslend- lnga í atkvæðagreiðslunni um lýðveldismálið fyrir skemmstu, uð margir finnist meðal vor, sem reiðubúnir séu í alvöru að greiða jákvætt úrslitasvar við fyrri spurningunni, því að ómót- niælanlegt er, ef málefnið er rakið og reifað til þrautar, að það eilt veitir oss raunþolinn rétt til sjálfstæðrar lilveru sem þjóð, uð vér erum Islendingar og höfum verið það í meira en þús- und ár — 0g getum haldið áfram að vera það í önnur þúsund 3

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.