Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 40

Andvari - 01.01.1945, Side 40
36 Meistari H. H. ANDVARt Þráðurinn í endurreisnarsögu íslenzkrar tungu tekur af öll tvímæli í því efni, en finna má önnur dæmi, er bera að sama brunni. Oss íslendingum er títt að svipast um að liætti þeirra, er litlir eru fyrir sér, og gá að, hvernig aðrir haga sér, áður en vér ráðum við oss jafnvel sjálfsögðustu hluti, og mun oss því einnig um þetta málefni vera kærkominn stuðningur að fyrir- mynd annarrar menningarþjóðar. Englendingur, sem lagt hefur stund á nám móðurmáls síns í því skyni að kenna það síðan, svarar spurningu um það, hvað sé góð enska, á þann veg, að það sé „konungsenska“; það er það mál, sem konungurinn talar og þeir, sem umgeng- ast hann. Ef spurt er enn fremur, hvert sé helzta undirstöðu- atriði slíks málfars, þá er svar lians það, að jafnan skuli frern- ur nota orð af engilsaxneskum uppruna, ef til er, en róm- önslcum. Svipað er að segja um íslenzkt mál. Ef spurt er, livað sé góð íslenzka, verður rétt svar, að það sé vandað alþýðumál, og enn fremur, að undirstöðuatriði þess sé að nota jafnan heldur orð af innlendum uppruna og myndun, ef til er, en erlendum, - - og úr því að lieldur fáfengilegt mál að uppruna og myndun eins og enskan getur haft á sér þann hefðafhrag, sem lýst var, hversu miklu freinur skyldi þá ekki forngilt orðlistarmál eins og íslenzkan, þaulvígt í óteljandi þrekraun- uin í þúsund ár milli dróttkvæða og lyndisljóða, alfræði og getspeki, seiðs og sögu, píslargráts og brunavísna, — mál, er „land og stund í lifandi myndum, Ijóði vígðum, geymir í sjóði“, geta húið að sínu — góðu búi, ef vel er til þess vandað, þótt það sé ekki kennt til konungs, heldur til þess, sem honum er ineira, alþýðunnar? Vandað alþýðumál er einfalt og látlaust mál, eins og það streymir vel gefnum alþýðumanni af rnunni fram í samræini við eðlilega hugsun hans, rökrétt og hreint, laust við afbakanir og latmæli, rangmæli og flækingsorð, íklætt orðum, sem runn- in eru af sameiginlegum rótum, kviknað liafa hvert af öðru, bera hirtu hvert á annað, svo að hugsunin hirtist í fullum ljóina uppruna síns. Gáfaður alþýðumaður og greindur, en

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.