Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 57

Andvari - 01.01.1945, Side 57
ANDVARl Lýðveldishugvekja um islenzkt mál 53 ruslið af ýmsu öðru máli, er flutt er í útvarpið. Gæti orðið úr því notaleg „fanta-sía“, er þeir væru síaðir dálítið, er verst leika feðratungu vora á öldum ljósvakans. „Varðar mest: til allra orða undirstaða sé réttlig fundin." Eysteinn munkur Ásgrimsson. Málið er fyrst og fremst orð. Þetta er undirstöðuatriði, eins og áður er tekið fram, en þar næst er annað meginatriði, sem málþrifnaðarmenn ástunda og leggja verður ríka áherzlu á við kennslu móðurmálsins, og það er orðavalið. Það veiðui að kenna nemendum að meta orðin, rannsaka, hvaða oið beztu rithöfundar vorir hafa notað um hvert hugtak, velja þau ui, er bezt eiga við í hvert skipti, og temja sér í þessu efni smekk- vísi í samræmi við heilbrigða skynsemi. Smekkvís maður velur smekkvislega milli orða svipaðrar merkingar og tiðlicl- ur hin smekklegustu. Honum þykir óhæfa að kalla guð stóran, vel geta farið á því að ltveða svo að orði, að hestur sé mikill, en sjálfsagt að tala urn stóran stein. Málfarssóði notar hins vegar jafnan munntömustu orðin, en það er óvandi. Fyi ii þeim, er hafa það háttalag að viðhafa jafnan tungutömustu orðin, l'er óumflýjanlega svipað og verzlunarmanninum á bakkanum, er vandist á að hafa blótsyrði í staðinn fyrir hvaða nafnorð semvar og sagði: „Þú þarna, séra djöfull (nafn piesls- ins)! Komdu með eitthvert helvíti (ílát) undir andskotann (brennivínið)!“ Margt er það sjálfsagt, er þrúgar orðavali fólks til hnign- Unar uni þessar mundir, samneytið við setuliðið („ástandið ), óskynsamlegur lestur erlendra blaða og bóka, óvandaðai þvð- ingar útlendra rita og fleira því um likt, en allt myndi þetta verða skaðlítið, ef ekki væri eymdarfarangur sjálfra vor allt °f margra, vanmáttartilfinningin fyrir máli voru gagnvait öðruni málum. Það vræri afsakanlegt og saklaust, ef hun þjaim- aði aðeins fávísu fólki, en það tekur út yfir allan þjófabálk undirlægjuháttarins við erlend áhrif, þegár lærðir menntamenn

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.