Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 67

Andvari - 01.01.1945, Side 67
A.VDVARt Lýðveldishugvekja uni íslenzkt mál 63 stund á að varðveita, efla og rækta mál hennar og hlynna að því og halda því lifandi, hreinu og óflekkuðu. Ef umhyggju og ræktarsemi mætti reikna upp til jafnaðar á rétti og skyldu, þá ætti alþýða vor íslendinga rétt á þvi, að þeir, sem hún hefur rutt margháttaðar brautir til mennta- frama og fullkomnað þá umhyggju sína með því að reisa þeim íslenzkan háskóla, er hún heldur uppi og eflir með ærn- um tilkostnaði, telji það jafnan helgustu skyldu sína að gera menntastofnanir vorar og sérstaklega háskólann að óbilandi virkisborgum til varnar dýrmætustu fjársjóðum vorum, ís- lenzkustu verðmætunum, sem til eru í heiminum, íslenzkum orðaforða, draga þar saman og fylkja til vígs öllu því liði, er slíka vörn má veita, og gera síðan hlífðarlausan aðsúg þaðan að hverjum þeim, er leyfir sér að troða fótum og traðka niður mestu dýrgripi íslenzkrar menningárarfleifðar. Færi vel á, að þeir byrjuðu á því að hætta að kalla íslenzk fræði norrænu að dönskum hætti. Þar næst mætti koma, að þeir berðust af alefli fyrir útrýmingu annarra mállýta og beittu sér jafn- framt fyrir því að temja alþýðufólki með eftirdæmi sinu að hafa jafnan í máli sínu í ræðu og riti íslenzk orð, gömul eða ný, ef með nokkru móti verða fundin eða mynduð, hefja þannig UPP nýja siðabót islenzkrar orðfærismenningar og halda svo afram, unz risin er svo öflug málþrifnaðaralda, að enginn uiálfarssóði láti framar á sér lcræla. Ráðabreytni þessi myndi bráðlega hafa í för með sér skarp- Rgri skilning en nú ríltir á því, að hverju beri að stefna með öRu skólahaldi voru, en þó sér í lagi með undirstöðuatriði þess, islenzkukennslunni í landinu. Að réttu lagi ætti enginn að hljóta fullkomið námsvottorð úr skóla, sem íslenzka er kennd í> nema þaulreynt sé, að hann geti talað og ritað með íslenzk- 11111 orðurn, að svo miklu leyti sein þau eru til, um hvert það efni, sem hann kann nokkra grein á, hafi tamið sér smekk- víslegt orðaval og íslenzlct orðalag í tali og riti og innrætt sjálf- llln sér óbilgjarnan áhuga á því að ástunda það til frambúðar öðrum til fyrirmyndar. Framtíðarhugsjón vor íslendinga um íslenzkt mál á að vera

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.