Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 81

Andvari - 01.01.1945, Page 81
axdvari Við Skaftárelda 77 miðjan september. Sums staðar féll og vikuraska, sem orsak- aði bæði málnytubrest og að skepnur urðu horaðar á afréttum, og heynýting ei hin bezta."1) Vatnsfjarðarannáll yngri talar um öskuryk, dimmu og ólyfj- anarfýlu, um Vestfirði þetta sumar, sem fyrr var ritað, og virð- ist því, að þar hal'i líku farið fram.2) — Það er eftirektarvert, að Magnúsi Péturssyni og Pétri Þorsteinssyni ber saman um, að eldreykjarmóðan hafi byrjað uin trinitatis sunnudag. Jón Sveinsson segir um hvítasunnuleyti. Kemur þetta mjög heim við upphaf Skaftáreldanna, en gossins varð fyrst vart i byggð á hvitasunnudag. Séra Jón Steingiímsson lýsir eldrnóðunni og' áhrifum eld- gossins á þessa leið: 8 júní gerði öskufall, nokkuð því líkt sem af útbrenndri steinkolaösku, er varð að svartri leðju á jörðinni, er askan samlagaðist vatni. 10. júní var veður þykkt nieð úrkomu, er sveið í augun og á beru börundi, ef á kom. Sólin var að sjá seni rauður eldhnöttur og tunglið rautt sem blóð, og þegar þeirra skini sló á jörðina, bar hún sama lit. Þessi litur á lofti tiélzt lengi um sumarið, og' geta þeir Magnús Pétursson og l3étur Þorsteinsson báðir um jietta. Að kveldi hins 14. júní datt ytir stórregn úr gosmökknum með skolavatnslit eða ljósbláum tarfa, en ofur rammt og' svo lyktarslæmt, að brjóstveikir gátu varla andann dregið af loftinu og lá við öngvitum. Fuglar tlýðu brott eða drápust og svo silungar í vötnum. Gras jarð- ar, sem nú var í listilegasta vexti, tók að fölna og falla. Hold °g mjólk kvikfénaðar fór hvert af eftir öðru. í þrjár vikur féll þessi ölyfjan við og við á jörðina, liæði af öskunni og brenni- steins- og saltpétursregninu, sem aldrei var utan sand í bland. Skoltar, nasir og fætur á kvikfénaði, sem grasið beit eða gekk l|m það, urðu fagurgulir og sárir. Öll grös jarðarinnar tóku ttl að fölna og visna, fyrst þau grös, sem lauf eða blöð höfðu. störina kom kyrkingur. Elftingin visnaði seinast, enda kom Ö Lbs. 914 4to. 2) Sbr. Phim: Historien om min Handel, Kh. 1799, bls. 17—18.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.