Andvari - 01.01.1945, Qupperneq 85
axdvari
Við Skaftárelda
81
þegar til almenns hallæris. Sumargagn af málnytu hafði hvar-
vetna brugðizt og þar með höfuð-bjargræði alls þorra manna.
Ur eldsveitum syðra hafði fjöldi fólks flúið um sumarið og
komizt á vergang, og í harðindasveitum nyrðra var litlu betur
ástatt. Er stutt frá því að segja, að úr því er kom fram um
miðjan vetur, var svo sorfið að fólki og fénaði víðs vegar um
landið, að sýnt var, að horfði til stórfellis og manndauða af
hungursóttum, enda brást það ekki. Fénaðarfellirinn varð af-
skaplegur og mannfall einnig mikið, einkum norðan lands.
VII.
Veturinn 1783—84 var ekki talinn mjög harður syðra. —
Pannalög voru lítil, en áfrerar og umhleypingar og frostmikið
]»eð köflum. Norðan og austan lands voru frosthörlcur mikl-
ar. Jón Sveinsson segir í annál sínum, að þá hafi lagt firði alla
»yrðra og eystra, svo að gengið væri á ísi milli andnesja. Og
er hafísinn kom í marz, lcomst hann ekki inn á firðina fyrir
hagnaðarís. Stóðu hörkur þessar til fardaga. Magnús Stephen-
sen segir, að jörð hafi frosið tvær álnir niður, og væri frost í
jörðu syðra í júlí 1784. Vorið var fremur hlýtt og gott syðra
e» grasspretta livarvetna lítil, nema í Vestur-Skaftafellssýslu,
enda jörð viða skaðkalin. Hér bættist svo við veikindi fólks-
nis og magnleysi og varð því víða lítill heyfengur. Þurfti og
viðast ekki mikils við. í Árnes- og Rangárvallasýslu jukust
enn vandræðin, er þar gerði landskjálfta mjög harða 14.—16.
agUst, en í landskjálftum þessum hrundu 372 bæir að meira
hlut eða minna, þar á meðal staðurinn í Skálholti. Spilltist
niatarforði og aðrar eignir manna, en kofar þeir, er í flýti
'ar hrófað upp úr rústunum, voru næsta lélegir. Hörmungar
þessar urðu því affarameiri, er fullbáglega var ástatt fyrir. Svo
hrapallega tókst enn til, að Eyrarbakkaskip, sem færa átti
léruðum þessum matvöru, strandaði fyrir Meðallandi og varð
|ngu at bjargað af farmi, en mjög örðugt um aðdrætti frá
Jmlægari höfnum sökum hestaskorts.
Þegar er fregnir bárust um Skaftárelda til Kaupmannahafn-
•nai haustið 1783, ákvað stjórnin að hefjast handa um hjálp til