Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 93

Andvari - 01.01.1945, Page 93
ANDVAIU Við Skaftárelda 89 inn mun ætla, að slílcum kappsmanni hafi vel líkað, er til- lögur hans og álitsgerð var að engu haft, og þess hafa með- nel'ndarmenn hans efalaust varir orðið, þótt hvergi komi her- lega fram, — nema í niðurlagi fundarbókunarinnar, sem fyrr var frá skýrt, er trauðlega verður skilið á annan hátt en þann, að hér sé nefndin að leggja lítils háttar plástur á kaun kamm- erherrans: Þegar öllu var á botninn hvolft, var hugmynd hans ekki gersamlega hafnað — í ýtrustu nauðsyn! Sú nauðsyn gafst ekki, sem betur fór. Og Carl Pontoppidan segir, að hann hafi aldrei glaðari verið en þann dag, er hann gat komið í veg fyrir það, að ráðizt yrði í hrottílutning þenn- an. Enginn efast um góðfýsi þessa rnæta manns, en hér þurfti i'eyndar lítils við. Hugmyndin var svo fráleit. Hins vegar þótti sýnt, að íslendingar þyrfti enn hjálpar. Samskotin irá Ivauj)- mannahafnarbúum 1783—84 hrukku skammt. Framan af ari 1785 var í ráði að leita samskota handa íslendingum utan Danaveldis, en að athuguðu máli þótti það ekki fært. Loks var i'áðið að hefja almenn samskot í Danmörku og Noregi og gekk l>að allgreiðlega. Carl Pontoppidan telur, að samskotin til ís- lendinga 1783—85 hal'i alls numið 46 109 rd. 46 sk. Þar að auki telur hann framlag konungs, það er að segja verzlunar- innar, til hallærishjálpar, 77 894 rd. 24 sk. Var þetta ekki lítið ié, eða rúmlega 124 þús. rd. alls. En þvi miður urðu samskotin sumarið 1785 að Jitlu liði. Þau koniu of seint. Hallærið með öllum sínum óskaplegu hörniungum var liðið hjá. Eftir var hversdagsleg neyð sárfátækrar þjóðar, sem engin samskot gátu bætt. Þótti þá snjallast að leggja féð í sjóð og geyma það ■síðari tima. Þannig varð til hinn svokallaði Kollektusjóður, en hann nam við árslok 1797 47 822 rd. 54 sk. X. Með sumri 1785 má kalla, að létti móðuharðindunum, eftir samfelld tvö ár. En ömurlegt er þá að líta yfir uppskeru hung- urdauðans. Eftir því sem næst verður komizt, hafði fólki fækk- að á árunum 1783—85 um rúm 9 þús. Fullyrða má, að mikill þorri þessa fólks lézt al' harðrétti, liungri og' hungursóttum,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.