Andvari - 01.01.1921, Side 27
Andvari].
Norðurreiðin 1849 og síðar.
23
með Skagfirðingum, og þeir þurftu að líkindum að
fá betri ráðleggingar í lögum en þeir höfðu á Karlsár-
fundi, því það blandast tæplega neinum hugur um,
að einhver lagamaður hefur lagt á ráðin með það,
hvernig haga skyldi »Norðurreið«. —
Samþyktum Karlsárfundar átti að halda leyndum.
En síra Halldór Jónsson í Glaumbæ (síðar á Hofi)
hafði fengið vitneskju um, hvað gerðist á fundinum,
og pati var kominn út um það. Sveitaherrarnir Einar
umboðsmaður Stefánsson og Ari Arason á Flugumýri,
einkum hinn síðari, köstuðu ónotum að þeim, sem
á Karlsárfundi höfðu verið, á fjölmennu uppboði.
Síra Halldór Jónsson talaði mjög stillilega, og sagði
sjer svíða það mest, að mennirnir væru svo margir
úr sínum sóknum. Allir munu þeir hafa verið hræddir
um, að mennirnir færu sjer að voða og að við upp-
reist lægi. þella ýtti undir norðurreiðarmenn að flýta
aðgerðum, og á uppboðinu var ákveðið, að Valla-
laugarfundurinn skyldi verða haldinn 22. maí.
Við Vallalaug voru komnir saman 160 manns. Þeir
ræddu ýmislegt, sem þeim þótti að þyrfii að umbæta
og breyta, og komu svo að þörfinni á amtmanna-
skiftum í Norðuramtinu. 43 af þeim ætluðu að ríða
norður með erindi sýslubúa, og koma því til amt-
mannsins. Hinir eldri menn ræddu lengi um málið
og lögðu það niður fyrir sjer. Enginn preslur var á
fundinum; hreppstjórar voru þar ýmsir, en enginn
þeirra skyldi fara í förina, því þá yrðu þeir þegar
skoðaðir sem fyrirliðar. Það var alþýðuviljinn, sem
átti að ráða förinni. Á fundinum var samið svolát-
andi skjal til amtmannsins:
»t*essir fáu gestir, sem nú að þessu sinni heim-
sækja þetta hús, eru lílið s5rnishorn af þeim stóra
*2