Andvari - 01.01.1921, Blaðsíða 84
80
Fiskirannsóknir 1919 og 1920.
lAndvari.
byggja á. Svo samdi eg bók: Oversigt over Islands
Fiske, sem út var gefin 1909 af dönsku hafrannsókna-
stjórninni (Kommissionen for Havundersögelser). Hún
er stutt yfirlit yfir hið helzta, sem menn vissu á
þeim tima um lífshætti islenzkra fiska, heimkynni
þeirra og nytsemi. Síðan hefir allmikið bæzt við um
aldur þeirra og vöxt (sjá skýrslur minar) og all-
margir áður óþektir fiskar fundist. 1 ofangreindri bók
eru taldir 105, í fiskatali Gröndals 1891 66, en nú
má telja 124 þekta innan við 400 m. dýptarlínuna.
Annars ber mér ekki að dæma þetta starf mitt, eg
veit bezt sjálfur, hve ófullkomið það er, en vona þó
fastlega, að það sé betur unnið en ekki og muni í
framtíðinni bera einhvern ávöxt, svo að fé því, og
tíma, sem til þess hefir verið varið, hafi ekki verið á
glæ kastað. Hefði eg átt að vinna þetta verk á þann
hátt, sem eg hefði helzt kosið, hefði það hlotið að
kosta miklu meira fé en eg hefi haft til umráða, og
hefði sennilega getað fengið, og meiri vinnu en hjá-
verk manns, sem gegnir annríku embætti mestan
hluta ársins. Skal eg svo ekki orðlengja um það, en
snúa mér að framtíðinni.
Það sem kostað hefir verið til fiskirannsókna af
íslands hálfu, síðan Feddersen ferðaðist hér, er ekki
annað en styrkur sá, sem eg hefi notið. En samtímis
minu starfi hafa Danir unnið mikið að sjó- og
fiskirannsóknum hér við land og nutum vér þar góðs
af, eins og áður er sagt. Gerðu þeir þetta bæði af
því, að þeir um eitt skeið höfðu töluverðan áhuga á
að stunda hér veiðar meira en áður, og svo af því
að þeim var falið það sem yfirráðendum landsins.
En nú er orðin sú mikla breyting á, að ísland er
orðið fullvalda ríki, svo að Danir munu víst þykjast