Andvari - 01.01.1891, Síða 67
65
á Saxiihóli, Öndverðarnesi og í Máíahlíð, en þessar
kirkjur voru afteknar og sóknunum skipað til Tngj-
aldslióls og' Fróðár með bréfi Páls Stígssonar höfuðs-
manns og Gísla biskups Jónssonar 27. desember 1565,
A Ingjaldshóli var í fyrstu bænahús; en Árni biskup
Helgason vígði þar kirkju »guði til lofs og dýrðar
og hans signuðu móður jungfrú Sanctæ Mariæ og
heilögum píslarvottum Cosmæ og Damiano og öllum
heilögum mönnum«. .1. S. Plum1 lýsir kirkjunni ná-
kvæmlega eins og hún var um aldamótin, eins lýsir
hann bænum á. Ingjaldshóli; þar bjó þá umboðsmað-
urinn. Tekur Pliun það fram, að þar sé ágæt bygg-
ing og framar en annarsstaðar í íslenzkum bæjum,
því þar sé stofuhús undir lopti með tveim gluggum,
þiljað að innan og með trégólfi. Sýnir þetta bezt,
að ekki hafa híbýli manna þá verið beisin í þeim
byggðarlögum, þó þar væri í þá daga mokflski. Frá
Ingjaldslióli er góð útsjón til jökulsins og fjallanna,
sem út af honum ganga. Norður undan Snæfellsjökli
ganga allbreið fjöll, sem enda með Enni við sjóinn;
þar uppi, héðan til suðvesturs, eru 3 allhá fell með
sköfium: Geldingafell, Sandfell og Hestíjall. Mörg
fell eru hér fleiri á undirhlíðum jökulsins suður af
Ingjaldshóli; þar er Skál, Bárðarkista, Nasi og svo
Búrfell einstakt fyrir neðan. í Bárðarkistu kvað ger-
semar Bárðar gamla Snæfellsáss vera geymdar, en
það er ekki allra meðfæri að komast í kistuna; hefír
enginn enn þá haft þá eiginlegleika, sem til þess
þarf, en það er sagt að hún standi opin fyrir hverj-
um þeim, sem fæddur er af sjötugri kerlingu, hefír
í 12 ár eingöngu lifað á kaplamjólk og ekkert gott
heflr lært, en enginn slíkur piltur hefir enn þá geflð
') Reiseiagttagelser, bls. 49—53.
5