Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 68
sig fram. Snæfellsjökull er ekkert tignarlegur hérna
megin, undirfjöjlin draga mikið úrogayo eru upp ur
hjarninu hryggir og grjótrákir, sem fremur óprýða.
Frá Ingjaldshóli gengu þeir Bjarni Pálsson og Egg-
ert Olafsson upp á jökulinn, og skal þess síðar getið.
Norður af Ingjaldshóli við sjóinn eru þrjú fiskiþorp,
Kefiavík, Sandur og Rif. Rif heyrir undir Ingjalds-
hól, þár var snennna verzlun mikil við útlenda, komu
Englendingar þar opt á 15. öld. og þar drápu þeir
Björn Þorleifsson ríka 1467. Til þess að verzla á
íslandi áttu Englendingar að hafa leyíisln'éf Dana-
konungs, svo var áskilið í samningum milli ríkjanna,
auk þess áttu þeir að gjalda konungi sekkjagjöld,
er svo eru kölluð, þau voru hér um bil 6°/o af verði
farmsins. Margir Englendingar fóru þó leyfislaust
til Islands og sumir þrjózkuðust við að borga sekkja-
gjöldin, út af þessu spunnust sífelldar deilur milli
kaupmanna og valdsmanna konungs. Árið 1463
bannar Kristján I. íslendingum að verzla við útlenda
kaupmenn áður en þeir hafa borgað sekkjagjöld og
var þá farið að ganga harðara eptir þessum tolli en
áður. Björn ríki var þá hirðstjóri og gekk rikt eptir
gjaldinu og þegar lionum var ekki hlýtt gerði hann
upptækar vörur fyrir Englendingum og Skotiun og
komst því í mikla óvináttu við þá, svo þeir réðust
á hann í Rifi og drápu hann og 7 menn aðra, en
tóku son hans liöndum, en Olöf kona Björns leystí
út son sinn með miklu silfri og hefndi síðar bónda
síns grimmilega. Á ísafirði lét hún taka 3 enskár
duggur og drepa fiesta er á voru, og er sag't hún
einu sinni hafi haft 50 enska fanga á Skarði og látið
þá gjöra þar kirkjustúkuna. Eptir þetta verzluðu
Englendingar enn í Rifi, uns Þjóðverjar boluðu þeim