Menntamál


Menntamál - 01.03.1936, Side 9

Menntamál - 01.03.1936, Side 9
MENNTÁMÁL 7 Það er eins og mannkynið sé nú fyrst að vakna til vit- undar um það, að börnin séu í raun og veru öll von þess um batnandi og fullkomnara líf. Enda er nú svo komið, að ýmsir liinna merkustu og ágætustu manna, sem nú eru uppi, liafa lielgað uppeldismálum þjóðanna störf sín og krafta. Skólar eiga að leggja grundvöllinn að því að kenna barninu listina að lifa. En til þess að geta búizt við því, að ná eitthvað áleiðis að því marki, verður að gefa barninu frelsi til að lifa bernskulifi sínu. Það þarf að veita því slikt umhverfi, að það læri að nota liuga og hönd í samvinnu við aðra, ekki út i blá- inn, heldur að seltu marki. Það er vissulega mikilsvert að vita mikið og kunna margt, en verulegra atriði er þó það, að kunna að nota þekkinguna, og þó enn mest um vert, að eignasl þá afstöðu gagnvart meðbræðrun- um, þjóðfélaginu, að liún knýi til þess, að nota þekkihg- una og þann mátt, er bún veitir, öðrum til gagns og blessunar. Þetta hafa skólarnir um of vanrækt. Allt of mikil á- herzla befir verið á það lögð, að vita, stundum meira að segja á það, að bafa eftir orð án hugsunar. Örskammt er síðan, að nokkuð verulega bar á þeirri skimu í skóla- beiminum, að gera þyrfti skólana að félagslegri stofn- un, þar sem venjur eru festar, þær beztu, er samlíðin þekkir, i sambandi við hugsana- og alhafnalíf, sem börn- um er eiginlegt, en sem miðar þó sem mest í þá átt, er búast má við að þau eigi í vændum. Allt uppeldi á fyrst og fremst að miða að þvi, að gera mennina félags- hæfa, kenna þeim að starfa saman, búa saman. En til þess þarf fyrst og fremst að rækta bróðurþelið, hjarta- hlýjuna. Það þarf m. ö. o. í öllu uppeldisstarfi, að leggja meiri rækt en verið hefir, við kærleiksbugsjón þá, sem kristindómurinn er reistur á fyrir 19 öldum. Þetta er boðskapur hins þroskaða uppalanda, er eg gat um í upphafi, sem heilsar öld barnanna glaður og

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.