Menntamál - 01.03.1936, Blaðsíða 40
38
MENNTÁMÁL
bezt, þá er komið að því, að velja texta og strika blað-
ið, sem á að skrifa á. Nota má pappírsræmu til þess að
strika við og mæla.
Nemendur ákveða liæð stafanna og línubil eftir að
hafa reynt fyrir sér á sérstöku blaði, hvað bezt megi
fara. Einnig breidd jaðranna. Hæfilegt er, að 4—6 orð
séu í hverri línu til jafnaðar. Jaðrarnir eru vanalega
nokkru breiðari til hliðanna en að ofan, en allt að helm-
ingi breiðari að neðan:
Hlutföll blaðsins eru hér 9: 7.
Þegar stafirnir standa svo þétt saman, að línurnar
myndi likt og samfelldan borða, þá fer vel, að bilið á
milli þeirra sé breitt, t. d. jafnbreitt línunni, og að
jaðrarnir séu ríflegir.
Eftir að búið er að strika fyrir jöðrunum, eru linur
og bil merkt vinstra megin á blaðið með punktum, ofan
frá og niður eftir; siðan hægra megin og strikað á milli.
— Hér verður að beita mestu nákvæmni. Nú er tekið
til að skrifa. Fyrst létt með blýanti, svo að hægt sé