Menntamál - 01.03.1936, Blaðsíða 50
48
MENNTAMÁL
standa auð hálft árið að lcalla. Það verður að nota liús-
in betur en nú er gert, og það verður með því eina
móti, að lengja starfsár kennaranna, eins og frv. legg-
ur til. (Sjá frekar um þetta atriði i greinargerð frv. 1.
gr., bls. 14).
2) Sveitirnar myndu flestar óska eftir undanþágu frá
skólaskyldu milli 7—10 ára aldurs, og yrði þvi hin raun-
verulega skólaskylda þar sú sama og nú, þ. e. frá 10
—14 ára. En sú heimild til handa fræðslumálastjórn-
inni, að færa skólaskylduna niður, ef heimilin sinna
ekki lestrarkennslunni svo í lagi sé, myndi verða til
þess, að skólanefndirnar litu betur eftir slíku en nú á
sér stað, og gæti það orðið driffjöður til nýrra átaka
í þessum efnum, og veitti ekki af.
3) Farskólafyrirkomulagið myndi smátt og smátt
þoka fyrir hinu nýja skipulagi, eftir því sem áhugi og
efni stæðu til. Hrepparnir færu að atliuga sín mál; þeir,
sem möguleika hafa til samvinnu um skóla, færu að
tala sig saman og finna grundvöll undir samstarfið.
Reynt yrði að efna til byggingasjóða, álcveða skólastæði
o.þ.u.l. þegar ákveðið mark er til að stefna að. Hætt
myndi með öllu að styrkja skólaskýli hér og þar, sem
reist eru af vanhyggju og vanefnum, og eru því til engr-
ar frambúðar. í fyllingu tímans yrði svo fræðslumála-
stjórn að hafa endanlegt úrskurðarvald um það, hvar
skóli slculi vera, hve stórt svæði skuli að honum standa
og hversu margar heimavistir megi telja honum nauð-
synlegar o. s. frv.
Þannig myndi þetta smátt og smátt þokast í áttina
að settu marki. Höfuðatriðið er það nú, að koma auga
á það skipulag, sem telja má heillavænlegast og til fram-
búðar, og stefna að því með festu og forsjá. Það mætti
því segja, að frv. sé einskonar form eða áætlun, sem
aldarfjórðungi, eða svo, er ætlað að fylla lífi.
h) Sú verulegasta breyting, sem á yrði nú, ef frv.