Menntamál - 01.03.1936, Qupperneq 78
76
MENNTAMÁL.
Kennaranámskelð í vor.
Á siðasta þingi var veittnr 2000 kr. styrkur til kennaranám-
skeiðS í vor. Þar af verður 1400 kr. varið til námskeiðs í Reykja-
vik, en 600 kr. til námskeiðs á Akureyri. Fræðslumálastjórnin
hefir falið stjórn S. í. B., ásamt skólastjóra kennaraskólans, að
sjá um námskeiðið í Reykj'avík, og er nú afráðið, að það verði
haldið i júnímánuði og standi 15—20 daga. Aðalgreinar verða
reikningskennsla og móðurmálskennsla; aulc þess íþróttir, teikn-
un, útikennsla í náttúrufræði og ef til vill málmsmíði (slöjd) og
fleiri greinar, eftir því, sem við verður komið. L. G. Sjöholm hef-
ir verið ráðinn til að kenna á námskeiðinu. Nánari tilhögun nám-
skeiðsins verður auglýst síðar í blöðum og útvarpi.
Umsóknir má senda til stjórnar S. í. B., Rvík (Pósthólf 616)
eða skólastjóra kennaraskólans, Reykjavík.
Kvedj a.
Þar eð eg er á förum, til dvalar erlendis um lengri tíma, læt
ég nú af ritsjórn Menntamála. Þakka ég öllum stuðningsmönn-
um ritsins samvinnuna síðastliðið ár.
Gunnar M. Magnúss.
Ríkisútgáfa skólabóka. Frumv., sem fellt var á síðasta þingi
við 3. umr. í neðri deild, er nú komið i gegn um efri deild.
Eftir er að vita, hvað neðri deild gerir nú við það.
Launamálið. Engin ákveðin svör hafa enn fengizt um lausn
launamáls barnakennara, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnar
og launamálanefndar S. í. B.
Kreppan og Menntamál. Pappír, jafngóður og í siðasta árg.
var ófáanlegur í landinu. Verða þvi lesendur að afsaka, þótt
myndirnar séu óskýrari en æskilegt væri.
Útgefandi: Samband islenzkra barnakennara.
Útgáfustjórn: Sigurður Thorlacius, form., Guðjón Guðjónsson
og Sigríður Magnúsdóttir.
Ritstjóri: Sigurður Thorlacius, Austurbæjarskólanum.
Afgreiðslu- og innheimtum.: Sigriður Magnúsdóttir, Þórsgötu 19.
Félagsprentsmiðjan.