Menntamál - 01.03.1936, Qupperneq 20
18
MENNTÁMÁL
að fræðslu- og uppeldisstarfið í öllum skólaflokkum lands-
ins þarf að taka gagngerðum breytingum í nánustu fram-
tið. Þessi staðreynd felur ekki í sér neinn áfellisdóm um
mennina, er við skólana vinna, en er aðeins óhjákvæmi-
leg afleiðing hinna hraðfara breytinga á atvinnuháttum
og menningarlífi þjóðarinnar. Það er gott og blessað og
óhjákvæmilegt, að endurbæta fræðslulögin og hin ytri
starfsskilyrði skólanna, en jafnframt verður innra starf
þeirra að færast nær lífi þjóðarinnar og til samræmis við
kröfur þess og þarfir. Mikilsverður þáttur til undirbún-
ings þessum nauðsynlegustu hreytingum, er stofnun og
starfræksla tilraunaskóla, eins eða fleiri. Hér er eigi
að sinni rúm til að gera nánari grein fyrir hlutverki
þessara stofnana, en væntanlega verður það gert siðar.
Uppeldisleikföng. Eitt af þvi, sem gerir starf barnaskól-
anna torvelt og dregur mjög úr árangri þess, er þroska-
leysi barnanna, þegar þau koma í skóla. Að allverulegu
leyti mun þetta getuleysi ungu barnanna stafa af því, að
þau skortir viðfangsefni við sitt liæfi á heimilum sínum.
Úr þessu mætti vafalaust mikið bæta með því að fá búið
til í landinu fjölbreytt úrval góðra uppeldisleikfanga, sem
liægt væri að selja almenningi vægu verði. Kennararnir
myndu þá að sjálfsögðu telja það skyldu sina að útbreiða
þekkingu á þessum efnum meðal foreldra.
Unglingafræðslan og atvinnuleysið. Ætlunin var að þetta
liefti Menntamála flytti ítarlega grein um málið, en af því
gat eigi orðið og verður því stutt athugasemd að nægja
að sinni.
Eitt af mörgum baráttumálum kennarasamtakanna á
næstu árum mun verða það, að útvega skólavist og hag-
nýt verkefni til handa unglingunum, þegar þeir hverfa úr
barnaskólunum. Þetta mál verður ef til vill auðsóttara,
en ýms önnur, vegna þess, að það er jafnframt atvinnu-
mál. En kennarastéttin mun ekki sætta sig við neinar kák-
úrlausnir, sem aðeins eru nafnið eitt. Ættu sem flestir
kennarar að taka mál þetta til rækilegrar íhugunar.