Menntamál


Menntamál - 01.03.1936, Side 56

Menntamál - 01.03.1936, Side 56
54 MENNTAMÁL Nemendur Chatzkys voru af allt öðru sauðahúsi en nemendur hinna skólanna tveggja. Þeir voru ekki vand- ræðabörn i venjulegri merkingu, en flestir vanhirtir um- renningar úr fátækrahverfum Moskwa. Fyrstu árin 1906 —1911 starfaði skóli Chatzkys sem sumarhæli rétt fyrir utan horgina, en 1911 fluttist hann lengra í hurtu og starfaði upp frá því allt árið. í hinum nýju heimkynn- um fengu börnin stóra höll til umráða, en Chatzky sjálf- ur bjó ásamt bróður sínum í litlum kofa rétt hjá. Böm- in áttu nú að bjarga sér sjálf að öllu leyti. Þau urðu að gera innkaup á lífsnauðsynjum sinum i næsta þorpi, að búa út matinn, að skipa félagsmálum sínum og ráða fram úr hverjum vanda, sem að liöndum bar. Svo sem vænta mátti skorti börnin gersamlega úrræði og for- ystu til að skipuleggja félagslíf sitt og skipta verkum. Fyrstu dagana var því allt á tvístringi og vandræðin fóru vaxaudi því lengur sem leið. Chatzky lét eigi að síður allt afskiptalaust. Hann svaraði fyrirspurnum og gaf ráð þegar þess var óskað, án þess að liirða um, hvort eftir þeim væri farið. En að sama skapi sem úrræðaleysi hinna villtu götubarna fór vaxandi, þá hvarf tortryggni þeirra til hinna fullorðnu, og svo fór að lokum, að mik- ill meiri hluti þeirra leitaði á náðir Chatzkys og báðu hann hjálpar. Chatzky setti hreinlæti og reglusemi sem skilyrði fyrir aðstoð sinni. Og brátt ríkti meðal þessara litlu munaðarleysingja og flækinga meiri reglusemi og agi en trúlegt mætti þykja og langt fram yfir það, sem hugsanlegt liefði verið að koma á með valdboði hinna fullorðnu. Ungfrú N. Kiritchko, sem vann við skóla Chatzkys, lýsir honum á eftirfarandi hátt: „Þungamiðjan í starfsreglum skólans er sú, að börn- unum sjálfum er falið að halda aga og stjórn. Reglu- semin í skólanum er á þeirra valdi, og þau talca námið alvarlega vegna þess, að þau hafa mikinn áhuga fyrir

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.