Menntamál


Menntamál - 01.03.1936, Síða 74

Menntamál - 01.03.1936, Síða 74
72 MENNTAMÁL ið þekktir hér áður. Inngangurinn að bókinni er að mestu leyti leiðbeiningar fyrir leiðtogana, skrifaður af glöggum skiln- ingi og þekkingu á málefninu. Geta þvi bæði kennarar, æskulýðs- leiðtogar og greindir foreldrar, sem hafa huga á því að fylgjast með börnum sinum í þeirra lifsstarfi, mikið af bókinni lært, og ætti hún þvi að vera þeim öllum kærkomin handbók. Lárus J. Rist. Pedagogiskt Forum. Útgef. Gustav Ekberg og Axel Hag- nell. Gautaborg 1936. Þetta er stórt og glæsilegt rit, nál. 300 bls. að stærð,, og fjall- ar um skólamál Norðurlanda. Er þar fjöldi stuttra ritgerða um námsgreinar skólanna, íþróttir, útilíf .skólavinna allskonar o. fl. Aðalsteinn Sigmundsson birtir þar ritgerð, er heitir: „Islandsk slöjd“. Fjallar greinin um tréskurð, sem Aðalsteinn hefir undan- farna vetur lagt stund á með nemendiun sinum, 11—13 ára drengj- um. Greininni fylgja nokkrar myndir af munum eftir drengina. Árni Friðriksson: Dýramyndir handa skólum. I. Hrygg- dýr. Útg. ísafoldarprentsmiðja h/f. Reykjavík 1935. Bók þessi er með 302 myndum, á 107 bls. Myndir þessar eru af öllum hryggdýraflokkunum. Hverri mynd fylgir stutt skýring, aðallega um stærð dýrsins og heimkynni. Tel eg það kost, að skýringarnar eru hjá myndunum, en ekki sér, eins og oft er í útlendum myndabókum. Frágangur bókarinnar er góður og smekklegur. Hér á landi hefir ekki verið völ á öðrum dýramyndum við kennslu en útlendum. Allar slíkar myndir vantar skiljanlega allt, sem er sérkennilegt í íslenzku dýralifi, en auðvitað ber fyrst og fremst að fræða nemendur um dýr sins lands. Ilöf. „Dýra- mynda“ hefir lagt áherzlu á að sýna sem allra flest af islenzk- um hryggdýrum, og er það einn stór kostur bókarinnar. Þar sem myndirnar eru eðlilega litlar, er ekki hægt að sýna þær á sama hátt og stórar veggmyndir, og væri auðvitað æski- legast, að hver nemandi hefði sina bók, hvort sem hann hlust- ar á kennarann eða vinnur sjálfstætt, t. d. i sambandi við vinnu- bækur. En víða munu erfiðleikar á þvi, að nemendur eignist bækur þær, sem þeim eru nauðsynlegar; þess vegna þyrftu skól- arnir að eiga nokkur eintök bókarinnar, sem nemendurnir fengju til afnota i kennslustundum. Myndir eru jafn nauðsynlegar við nám í náttúrufræði eins og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.