Menntamál - 01.03.1936, Síða 77
MENNTAMÁL
Reykjanesskóltnn.
75
Veturinn 1935—’36 eru í barnaskólanum 34 nemendur. í ung-
lingadeild, sem starfar í þrjá mánuði, jan., febr. og marz, eru
41 nemandi. Auk bóklegra námsgreina er kennt: sund, leikfimi
og handavinna. Sundlaugin er 30,5x12 m. að stœrð, óyfirbyggð,
en getur verið það heit, að liægt er að nota hana hvernig sem
viðrar. Samdar hafa verið s'érstakar reglur um sundkunnáttu
nemenda. Þessar reglur eru: I., II., III. og IV. stig, sem nem-
endur hafa fengið prófskírteini fyrir, i lok hvers áfanga. Hér
á eftir er útdráttur úr þeim kröfum, sem gerðar eru á hverju
stigi.
I. stig: 100 m. bringusund klæðlaus.
II. — 100 m. bringusund i fötum og afklæðast fötum á sundi.
300 m. bringusund á 10 mínnlum, 100 m. baksund á
4 mínútum og kafa eftir smáhlut á 3 m. dýpi. Tilsögn
í að bjarga drukknandi manni og losna úr tökum hans.
Lífgunaræfingar.
III. — 300 m. bringusund í fötum á 12 mínútum. 1000 m.
bringusund, klæðlaus á 32 mín. 300 m. baksund á 10
min. 100 m. björgun í fötum með sinn líka. 3000 m.
þolsund. Afklæðst á sundi, kafað eftir smáhlut á 4 m.
dýpi og tilsögn í björgun og lífgun.
IV. — 1000 m. bringusund í fötum á 37. min. 300 m. baksund
í fötum á 12 min. 5000 in. þolsund og 100 m. björgun
í fötum með fullþungan mann í fötum.
Flestir hafa lokið I. og II. stigi, margir eru með III. stig og
26 eru byrjaðir á IV. Farið ec í laugina á hverjum degi og er
það, sem vænta má, vinsælasta kennslustundin.
(Samkv. fregn frá Aðalsteini Eiríkssyni skólastjóra).
Fræðslulagafrumvarpið. Nefndin, sem samdi frv., kom saman
í febrúar og gerði enn á ný nokkrar fremur smávægilegar breyt-
ingar á frumv., að athuguðum till. kennara og skólan. (sjá „Álit
og tillögur“, eftir form. nefndarinnar, Sn. Sigfússon, á öðrum stað
i blaðinu). Frumv. ei- flutt i n. d. Alþingis af meirihlula mennta-
málanefndar.