Menntamál - 01.04.1959, Page 31
menntamál
25
Miðað við, að í barnaskólum um land allt væru 6 aldursflokkar
(7—12 ára, incl.), yrði nemendafjöldinn þessi:
Ár Nem. Fjölgun f. f. ári Ar Nem. Fjölgun f. f. ári
1958 21.943 1.543 1963 24.887 478
1959 22.617 674 1964 25.212 325
1960 23.254 637 1965 25.491 297
1961 23.728 474 1966 25.569 78
1962 24.409 681 1967 25.716 147
I sveitum og smærri kauptúnum eru 13 ára börn víðast hvar í
barnaskóla, og ættu þessar áætlunartölur að liækka, sem því nemur.
Miklar sveiflur eru í fjölguninni írá ári til árs samkv. þessari áætl-
un Tryggingarstofnunarinnar. Aætlunin gerir ráð fyrir, að nemend-
um barnaskólanna fjölgi að meðaltali um 530 árlega, og er það all-
miklu minna en verið hefur síðasta árabil.
Nemendafjölgunin verður því sennilega ekki alveg eins ör næstu
árin, þótt líkur bendi til, að hún verði nokkru meiri en þarna er
áætlað.
Töflur þessar sýna, svo að ekki verður urn villzt, að ef hægt á að
verða að sjá þeim þúsundum nemenda, sem við bætast í barna--
skólana (og aðra skóla) á næstu árum, fyrir sérmenntuðum kennurum,
verður að leysa mál kennaraskólans án tafar.