Menntamál - 01.04.1959, Qupperneq 91
MENNTAMÁL
85
BIRGIR THORLACIUS:
Menntamálaráðherrafundur
NorÖurlanda 1959.
(Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, gat eigi tekið þátt í
menntamálaráðherrafundi Norðurlanda að þessu sinni, en Birgir
'I’horlacius, ráðuneytisstjóri, sótti lundinn af fslands háifu. Hefur
hann látið MENNTAMÁL fá eftirfarandi frásögn af fundinum).
Menntamálaráðherrafundur Norðurlanda var að þessu
sinni haldinn í Oslo dagana 2., 3. og 4. febrúar. Slíkir fund-
ir hafa verið haldnir við og við síðan 1938 til skiptis í
höfuðborgum Norðurlanda, — einu sinni í Reykjavík, ár-
ið 1955.
Á fundum þessum er rætt samstarf landanna í menn-
ingarmálum og leitazt við að benda á leiðir til að auka það
og efla á sem flestum sviðum.
Fundurinn í Osló hófst með því, að fulltrúi hvers lands
gerði nokkra grein fyrir því, sem gerzt hefði í hverju
landi um sig á sviði menningarmála, einkum frá því er
síðasti fundur var haldinn, — en það var í Stokkhólmi
sumarið 1957.
I skýrslu þeirri, sem menntamálaráðherra Noregs,
Birger Begersen, flutti, kom m. a. fram, að Norðmenn hafa
nú, eftir tillögu fjármálaráðuneytisins, ákveðið að lista-
mannalaun skuli vera skattfrjáls. Er hér um að ræða laun
til 52 listamanna, og nema þau 9.000,00 norskum krónum
á ári til hvers. Þá hafa Norðmenn í athugun, hvernig
haga skuli listskreyting opinberra bygginga. Danir hafa