Menntamál - 01.04.1959, Síða 103
MENNTAMAL
97
hefur Freysteini skólastjóra tekizt að leiða fram furðu-
lega mörg og fjölbreytileg söguleg atriði frá skólanum,
vexti hans og hlutverki, einnig frá nemendum skólans og
mörgu fleira. Vart þarf að taka fram, úr því að Frey-
steinn hefur verið nefndur, að bókin er skipulega samin,
drættir allir dregnir hóflega og skýrt. Kunnugur er hann
málefnum skólans. Hefur verið þar heimamaður alls um
40 ár. Við að lesa vel ort kvæði, þar sem hvert orð er á sín-
um stað og hendingar falla létt, getur manni dottið í hug,
að auðvelt hafi verið að yrkja. En það kostar oft mikið
erfiði að safna að sér, velja úr og raða niður. Veit ég, að
skólastjórinn hefur lagt mikla og vandaða vinnu í þessa
bók, og eru unnendur skólans honum innilega þakklátir
fyrir.
í formálanum segir höf. um nemendasamband Kenn-
araskólans: „Nemendasambandið hefur á undanförnum
árum beitt sér fyrir ýmsu því, sem skólanum mætti verða
til velfarnaðar og vegsauka. Á aðalfundi sambandsins
1956 var rætt um útgáfu afmælisritsins, og var stjórn
sambandsins veitt heimild til að skipa útgáfunefnd, sem
hrinda skyldi málinu í framkvæmd. Skipaði stjórnin síð-
an þriggja manna nefnd haustið 1956. í nefndina voru
valin þau Árni Þórðarson skólastjóri, Gunnar Guðmunds-
son yfirkennari og Þuríður Kristjánsdóttir kennari."
Sagan á að hvetja okkur til að bæta nútíð og framtíð.
Nemendasambandið tók þegar eftir stofnun þess fyrir
um það bil tólf árum upp. baráttu fyrir endurbyggingu
Kennaraskólans og vann þar mikilsvert starf til vakning-
ar og undirbúnings, einmitt þegar lítt var farið að vora
í þeim efnum og frost á hverri nóttu. Sambandið sá í von-
arhillingum 50 ára afmæli skólans haldið í nýjum og for-
svaranlegum húsakynnum skólans. Sú von rættist ekki.
En loftkastalarnir eru þó komnir á grunn á jörðu niðri.
Með þessu afmælisriti eru frumkvöðlar þess og höfundur,
skólastjóri Kennaraskólans, ekki að horfa í gaupnir sér