Æskan - 01.07.1971, Side 54
-4^
POP-HEIMURINN
r
■N
The Herd, frá vinstri: Andy
Bown, Peter Frampton, And-
rew Steele og Gary Tayior.
Steele (fæddur 2. ágúst 1942 í
Hendon). Þegar Frampton hætti
(fór til Humble Pie) í febrúar
1969, kom Henrv Spinetti (f.
31. marz 1951 í Newport, Suður-
Wales) í hans stað, en ]>á fór
að halla undan fæti fyrir liljóm-
svéitinni.
Utanáskrift: c/o KSE,
Kennedy House, 14 Piceadillv,
Manchester 1, England.
Herman’s Hermits
eru frá Mauchester. Arið 1964
kom út fyrsta metsöluplata
þeirra, I’m into something good.
1965 voru þeir búnir að fá 7
gullplötur. Söngvari er Herman
(Peter Noone, fæddur 5. nóv.
1947 í Manchester), aðalgítar-
leikari Derek Leckenby' (fædd-
ur 14. 5. 1943 í Leeds), rythma-
gítarleikari Keith Hopwood (f.
26. október 1946 i Manchester),
hassagitarleikari Karl Green (f.
31. júli 1946 í Manchester) og
trommuleikarinn Barry Wliit-
wam (fæddur 27. júli 1946 i
Manchester). Þeir finna alltaf
]>akkláta áheyrendur fyrir hin
auðlærðu lög sin og léttu texta.
Utanáskrift: c/o KSE,
Kennedy House, 14 Piccadilly,
Manchester 1, England.
The Hollies
geta litið til baka yfir langan
og viðburðaríkan feril. Þeir
nefndu sig i fyrstu (1957) Tlie
Guytones, ]>á The Eourtones,
siðan The Deltas, og fyrsta lag-
ið þeirra, sem vinsælt varð
(1963) var Stay. Þeir slógu i
gegn með laginu Look through
any Window (1965) og eftir
lagið I can’t let go (1966) voru
vinsældir ]>eirra orðnar al]>jóð-
L
POP-HEIMURINN
f----------------------------------------------------
The Hollies, að ofan frá vinstri:
Terry Sylvester, Tony Hicks,
Bobby Elliott, að neðan f. v.:
Bern Calvert og Allan Clarke.
legar. Söngvari er Allan Clarkc
(fæddur 5. apríl 1942 í Salford),
aðalgítarleikari Tony Hicks (f.
16. 12. 1943 i Nelson), bassagit-
arleikari Bern Calvert (fæddur
19. sept. 1944 i Brierfield),
trommuleikari Bobby Elliott (f.
8. desember 1942 í Burnley) og
rythmagitarleikari var Graham
Nash (fæddur 2. febrúar 1942
í Blackpool), en í lians stað
kom Terry Sylvester (fæddur 8.
jan. 1947 i Liverpool). Hljóm-
sveitin tryggði enn betur sæti
sitt i hópi vinsælustu poptón-
listarmanna heims með lögun-
um Jennifcr Eccles og Carrie
Anne (1968) og Sorry Suzanne
og Ile ain’t heavy ... he’s mv
Brother (1969).
Utanáskrift:
c/o Harold Davison,
235—241 Regent Street,
London W. 1., England.
Buddy Holly
fæddist 7. sept. 1936 í Lubbock
i Texas. A áratugnum frá 1950—
1960 hafði hann eins mikil áhrif
á þróun poptónlistarinnar og
Elvis Presley. 1955 stofnaði
hann liljómsveitina The Crick-
ets og með henni söng hann
inn á plötur livert metsölulagið
á fætur öiCru: Oh, Boy, Peggy
Buddy Holly.
Sue, That’ll be the Day, Early
in the Morning, Rave on, Heart-
heat, svo að nefnd séu aðeins
fáein þau vinsælustu. 3. febrú-
ar 1959 fórst hann i flugslysi
skammt frá bænum Mason City
í Iowariki og með honum vinir
hans tveir, rocksöngvararnir
Big Bopper og Ritchie Valens.
En hann hefur ekki fallið í
gleymsku, hæggenga platan The
Buddy Hollj' Story telst til
þeirra LP-platna, sem selzt
hafa i hvað stærstu upplagi.
Mary Hopkin.
Mary Hopkin
fæddist 3. maí 1950 í Pontar-
dawe i Wales. Fjögurra ára að
aldri söng hún í kirkjukór,
fimmtán ára fór hún að leika
á gitar og 1968 vann hún álvuga-