Valsblaðið - 24.12.1969, Side 36

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 36
34 VALSBLAÐIÐ DEILDIRNAR Á þessu hausti eru liðin 10 ár frá því Valur tók upp deildaskiptingu, þar sem íþróttagreinar þær sem fé- lagið hafði á stefnuskrá sinni voru að vissu marki gerðar sjálfstæðar með stjórn og sér-fjárhag. Um þessa skiptingu voru svolítið skiptar skoð- anir, mönnum var ekki alveg ljóst hivernig þetta mundi þróast. Ekki •er hægt að segja að nein átök yrðu um málið, því almennt vildu menn einhverja breytingu frá því sem áð- ur var. Á aðalfundinum 1959 var gengið frá nýjum lögum fyrir félag- ið sem endurskoðuð voru og þessi nýju ákvæði felld inn í þau. Það þótti rétt að rifja svolítið upp aðdragandann að breytingu þessari og af því tilefni snerum við okkur til Sveins Zöega, sem var formaður á þessu ári og næstu árum á eftir, og í nefndinni sem lagði málið fyrir aðalfundinn. Er frásögn hans á þessi leið: „Ég er ákaflega áncegöur meS störf deildanna“. Þegar ég var beðinn að taka að mér formennsku fór ég að velta fyr- ir mér, að ýmislegt þyrfti að gera og þá m. a. að gera þyrfti breyt- ingar á sjálfu skipulagi félagsins. Á 10ÁRA þeim árum fannst mér að hávær- ustu raddirnar kæmu frá ungu mönnunum. Þeir voru alltaf að kvarta að þeir eldri væru fyrir, svo ungu mennirnir kæmust ekki að. Ég verð að viðurkenna, þó mér fyndist það ekki þá að öllu leyti eðlilegt, að það var sanngjarnt að mörgu leyti. Staðreyndin er sú, að ungu menn- irnir eiga erfiðara með að komast upp, meðan þeir eldri halda áfram að starfa og láta aldrei á sér bilbug finna og þar að auki fannst mér fé- lagið orðið það stórt og viðamikið, að það þyrfti að breyta til þannig, að koma starfinu á fleiri hendur. Það vill nú verða svo, að þegar um er að ræða stjórnir annars vegar, vilja aðrir ekki koma þar við. Þeim finnst að stjórnin eigi að sjá um allt og gera allt og nefndirnar, sem stjórnin er að fela störf og ákvarð- anir um eitt og annað, eru raun- verulega ekki ábyrgar, heldur vinna þær á ábyrgð stjórnarinnar. Þannig verða þær hysknari og rólegri í störf- um en ástæða væri til. Þess vegna fannst mér með þvi að breyta þessu í deildir, þá mundi það auka möguleikana fyrir þvi, að fyrst og fremst undir handleiðslu stjórnarinnar, að þá mundu deild- Sveinn Zöega, sá sem stóS að skiplingu fé- lagsins í deildir. irnar verða miklu sterkari en nefnd- irnar voru áður. Þarna kæmi sér- stakur formaður, sem væri i raun- inni einn ábyrgur með sinni stjórn, þó með aðalstjórn félagsins að bak- hjarli. Sem sagt, mér fannst að það þyrfti að gera verulegar breytingar. Þess vegna fékk ég það samþykkt á einum af fyrstu stjórnarfundunum eftir að ég var kosinn formaður, að skipa nefnd í þetta mál og voru í hana kjörnir Valgeir Ársælsson og Gunnar Vagnsson, auk mín. Við komumst að þeirri niðurstöðu, að félaginu skyldi skipt i þrjár deild- ir og leggja fram frumvarp um það á aðalfundi, þannig, að hver deild yrði sjálfstæður aðili innan Vals, og undh- yfirstjórn aðalstjórnar fé- lagsins. Þetta frumvarp kom svo fram 4. nóv. 1959 og fékk mjög góðar við- tökur og töldu menn þetta heppilegt fyrirkomulag. Síðan var boðað til funda með knattspyrnumönnum, handknattleiksmönnum og skiða- mönnum, hverjum fyrir sig, og frá þessu gengið þar, og svo endanlega frá málum þessum á framhaldsaðal- fundi 22. nóv. Eitt atriði varð þó útundan, sem ég hefði haft mikinn áhuga fyrir að fá samþykkt, en það náði ekki fylgi þá af einhverjum annarlegum ástæð- um liggur mér við að segja. Þar sem deildaskiptingin var orð- in staðreynd, aðalstjórn starfandi i félaginu, Fulltrúaráð starfandi af fullum krafti við hliðina á stjórninni, „Byltingastjórnin" 1959. F. v. Páll GuSnason, Valgeir Ársœlsson, Sveinn Zöega form., Einar Björnsson og Gunnar Vagnsson.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.