Valsblaðið - 24.12.1969, Side 38
36
VALSBLAÐIÐ
Fyrsta stjárn sktSadeildarinnar, f. v.: GuSmundur Ásmundsson, GuSmundur Kr. GuSjóns-
son, GuSmundur Ingimundarson formaSur, Stefán Hallgrimsson, GuSný Þorsteinsdáttir,
SigurSur Marelsson. Standandi: Jón GuSmundsson og Sigmundur Tómasson.
Katrín Hermannsdóttir í meist-
araflokki kvenna segir:
— Hef nú kannske ekki hugsað
mikið um það, en mér finnst það
vera mikil breyting og ábyggilega
mikið heppilegra fyrirkomulag.
Starfið hefur aukizt og félagsfólki
fjölgað og erfitt fyrir eina stjórn
að anna öllu þessu.
Elías Hergeirsson, meistaraflokks-
maður, svarar á þessa leið:
— Eiginlega vel. Hygg það til
bóta, annars er það reynslan sem
sker úr um það. Höfuðkostirnir væru
þá helzt, að stjórnin færist nær þeim
sem mestan þátt taka í félagsstarf-
inu eða eiga að gera það. Það hefur
lengi verið á vitorði, að ýmsir með-
limir félagsins, sérstaklega þeir yngri,
þekktu ekki þá sem fara með stjórn
félagsins hverju sinni. Nú er þetta
úr sögunni, þar sem í stjórninni sitja
menn, sem þekktari eru hjá þeim
yngri en áður var.
Bergsteinn Magnússon, meistara-
flokksmaður, segir:
— Mér lízt sæmilega á hana. Nú
getum við a. m. k. ekki kennt öðr-
um um, ef ekki gengur allt sem bezt.
Nú er bara við okkur sjálf að sakast,
en ég held nú að þeim erfiðleikum
sem kunna að koma verði mætt með
karlmennsku og bjartsýni.
Það er sjálfsagt að reyna þetta og
í ýmsum tilvikum getur þetta komið
sér vel, að hver deild sé útaf fyrir
sig, t. d. með búninga, en þar hefur
stundum komið til árekstra. Mér
finnst æfingagjaldið þó of hátt, en
raunar veit ég ekki, hvað kostar
að starfrækja svona deild.
Tíu ára reynslan jákvœ'S, aS dómi for-
manna deildanna.
Við höfum nú heyrt um aðdrag-
andann að stofnun deildanna og
störfin fyrstu árin og ennfremur spá-
dóma spakra mamia um það, hvað
þetta boðaði fyrir framtíð Vals.
Nú snúum við okkur til formanníi
deildanna í dag eð) þeirra, sem voru
þar s.l. ár og fara umsagnir þeirra
hér á eftir:
Elías Hergeirsson, form. knatt-
spyrnudeildar:
Ég álít, að deildaskiptingin í fé-
laginu hafi gengið langt fram yfir
björtustu vonir manna. Þeir, sem
voru svartsýnir á þetta, geta sann-
arlega andað rólega eftir reynslu
þessara 10 ára. Mín skoðun er sú,
að það komi bráðum að því. að það
þurfi að skipta deildunum enn meira
og það fyrr en siðar og þá þannig,
að unglingarnir verði alveg sér und-
ir sérstakri sijórn, sem annast ungl-
ingastarfið i-’rstaklega.
Ég er þeirrar skoðunar, að menn
starfi betur ef þeir eru kosnir til
starfans af þeim, sem þeir vinna fyr-
ir. Það væri stórt skref afturá bak ef
horfið væri frá þessari skipan.
Stefán Ha/lgrímsson, form. Skíða-
deildarinnar:
Ég held, að þessarar breytingar
hafi minnst ga'tt hiá okkur í skíða-
deddinni. Við sáum áður um fjár-
má! okkar og því var þetta lítil sem
engin breyting fyrir okkur.
Mér finnst þetta fyrirkomulag
alveg prýðilegt og mundi á engan
hátt vilja brevta því í gamla farið
aftur.
Samvinna milli deildanna hefur
alltaf verið góð og hafi eitthvað ver-
ið að er það nú löngu búið.
Þórarinn Eyþórsson, hinn duglegi
formaður handknattleiksdeildarinnar
um langt skeið og ástsæli þjálfari,
segir:
- Ég er nú ekki rétti maðurinn
til að láta í Ijósi álit mitt og reynslu
í sambandi við deildaskiptinguna,
sem nú í nóvember átti 10 ára af-
mæli. Ég byrjaði ekki að starfa í
Val fyrr en liðin voru næstum þrjú
ár frá breytingunni og hef því ekki
neina viðmiðun, þó svo að ég hafi
verið Valsmaður frá sjö ára aldri.
Ég hef þó lesið Jólablað Vals frá
!959 °g lesið álit þeirra, sem þá
voru fyrir svörum og er þeim sam-
mála með, að þetta hafi verið til
bóta til að koma starfinu á fleiri
hendur. Þá er það einnig staðreynd
að yngri félagarnir hafa fengið meiri
tækifæri til starfa og að mínu áliti
tkeizt bara nokkuð vel,
Ég er líka sannfærður um að hver
grein fyrir sig hafi orðið sterkari,
bæði félagslega og íþróttalega, nema
skíðadeildin, hún er sú eina, sem
Fyrsta stjórn handknattleiksdeildar: F. v. Jón Þórarinsson, SigurSur Guðmundsson, Ján
Kristjánsson form., Áslaug Benediktsdóttir og Sveinn Kristjánsson.