Valsblaðið - 24.12.1969, Qupperneq 50
48
VALSBLAÐIÐ
SIGLUFJARÐARFARAR VALS A BADMINTONMÖT ÍSLANDS.
FREMRI RÖÐ: Ólafur Magnússon, Hrólfur Jónsson, Einar Iljartansson.
AFTARl RÖÐ: Gísli Þ. SigurSsson fararstjóri, Ragnar Ragnarsson, Stefán SigurSsson, HörS-
ur Árnason, GuSjón HarSarson, Hafsteinn Baldursson, Helgi Benediklsson og Jón Gislason.
Reykjavíkur, sem þar hafði verið
við þjálfun og tekið að sér að annast
umsjón með móti þessu.
Farið var með okkur i æskulýðs-
heimili staðarins, bjuggum þar með-
an á mótinu stóð. Er það snyrtilegt
í alla staði og greinilega vel um það
gengið, og hugsað.
Hins vegar borðuðum við á hótel
Höfn og verður ekki annað sagt en
að vel hafi farið um okkur þessa
daga.
Þess má líka geta hér, að í sam-
bandi við þetta mót var tekið i notk-
un nýtt gufubað og var öllum þátt-
takendum boðið að nota það endur-
gjaldslaust.
Siglfirðingar hafa þann hátt á, að
þeir hafa sérstakt félag, sem heitir
Tennis- og badmintonfélag Siglu-
fjarðar og sá stjórn þess um mót þetta
og skipulagði það með góðri aðstoð
Garðars, eins og ég tók fram áðan
og einnig var honum til aðstoðar ung-
ur maður úr TBR og reyndar Val
líka, Haraldur Kornelíusson.
Stjórn mótsins og fyrirkomulag
var til mikillar fyrirmyndar. Við
setningu mótsins voru mættir m. a.
bæjarstjórinn á Siglufirði, sem setti
mótið, og ýmsir framámenn um
íþróttir á staðnum.
Rétt er að geta þess, að Siglfirð-
ingar hafa leyst sín íþróttahússmál
á dálítið sérstakan hátt. Þeir eiga
ágæta sundlaug — innilaug — en um
vetrartímann setja þeir gólf, sem
er mjög skemmtilega fyrirkomið yfir
laugina og hafa þannig fengið
skemmtilegan íþróttasal. Þátttakend-
ur í móti þessu voru allmargir, eins
og ég gat um áðan, 10 frá Val, frá
TBR 4, frá Siglufirði 24 má ég segja
og frá Sauðárkróki 6 eða 7.
Árangur keppenda okkar var mjög
góður, i drengjaflokki fengum við
íslandsmeistara í tvíliðaleik og vert
er að geta þess að i úrslitaleik i þess-
um flokki léku eingöngu Valsmenn.
I einliðaleik komst einn okkar pilta
i úrslit, en tapaði aukaleik með litl-
um mun eftir harða og spennandi
keppni. I tvenndarkeppni, sem aldrei
hefur farið fram áður í unglinga-
móti, fengum við líka vinning, að
visu einn okkar pilta með stúlku frá
Siglufirði. Það má geta þess hér að
það er ekki lögð áherzla á það hvorki
í tvíliðaleik eða tvenndarkeppni séu
keppendur úr sama félagi. Þetta
setur svolítið annan svij) á þetta en
við erum vön, í annarri keppni, en
ég býst við, að þetta hafi byrjað
vegna þess að það er oft knappt um
þátttakendur, það getur orðið þess
valdandi, að ekki er hægt að láta
keppni fara fram og t. d. á þessu
móti komu eingöngu piltar frá
Reykjavík og Sauðárkróki, hitt var
allt heimafólk. Stúlkurnar á staðn-
um vilja taka þátt í mótinu og þar
af leiðandi þarf að velja með þeim
pilta. Þær hafa ekki það marga sterka
pilta á staðnum, að það sterkasta
komi fram og þá er valinn þessi kost-
ur. Útkoman þarna var sem sagt
sú, að einn okkar pilta fékk tvo gull-
peninga.
Það er eitt í sambandi við bad-
minton, sem ég vil að komi fram,
sem ég tel að þurfi að breyta, það
virðist vera nokkur hringlandahótt-
ur á því á landsmótum, hvort veitt
eru ein eða tvenn verðlaun, eða sem
sagt fyrstu og önnur verðlaun. Þarna
voru aðeins veitt ein verðlaun. Hins
vegar á unglingamóti. sem haldið
var í Reykjavík árið áður, voru veitt
gull- og silfurverðlaun. Ég tel þvi
rétt og nauðsynlegt fyrir Badminton-
samband Islands að taka þetta til
ákvörðunar og ákveða annað hvort
fyrirkomulagið og láta það standa
alls staðar, þar sem landsmótin fara
fram.
I yngsta flokknum —- sveina-
flokknum — unnu drengir frá Siglu-
firði bæði í einliða og tvíliðaleik og
svo var það einnig i unglingaflokki.
Það setti nokkuð skemmtilegan svip
á þetta mót, að í því tóku þátt all-
margar stúlkur, sem er nýtt á ungl-
ingamótum og til fyrirmyndar fyrir
önnur félög, sem taka þátt í þess-
um mótum. Allar voru þessar stúlk-
ur frá Siglufirði. Ég vil endurtaka
það, sem ég sagði áðan, að móts-
stjórnin öll og keppnin gekk með
mikilli prýði og eiga þar mestan
hlut að máli stjórn Badmintonfélags-
ins á staðnum, Garðar Alfonsson og
Haraldur Kornelíusson, eins og ég
gat um fyrr, sem önnuðust að veru-
legu leyti stjórn keppninnar.
Að mótslokum var haldið hóf fyr-
ir keppendur og ýmsa forustumenn
íþróttamála á Siglufirði. Ég tel rétt
að geta þess hér, að þar bað formað-
ur íþróttabandalags Siglufjarðar mig
að flytja Yal og Valsmönnum sér-
stakar þakkir og kveðjur fyrir ágæta
samvinnu á þessu móti og gott sam-
starf á liðnum árum.
Að því hófi loknu var haldinn
dansleikur, þar sem öllum þátttak-
endum var boðið og var það fram
eftir kvöldi. Þegar hér var komið
var farið að líta út fyrir breytingu
á veðri, því eins og flestum er kunn-
ugt, geta ökuleiðir til Siglufjarðar
orðið snögglega ófærar um þetta
leyti árs. Við Garðar Alfonsson tók-
um því þá ákvörðun að hraða okk-
ur til Sauðárkróks, þegar um nótt-
ina, vegna þess sérstaklega, að von