Valsblaðið - 24.12.1969, Qupperneq 64

Valsblaðið - 24.12.1969, Qupperneq 64
62 VALSBLAÐIÐ Þarna hafSi Sigga leikiS 100 leiki og fœr blómvönd og innilegan koss. Hversu margir hefSu ekki viljaS vera í sporum litlu stúlk- unnar viS þetta tœkifœri! bug á sér finna hvorki utan vallar né innan, þótt eitthvað syrti í álinn. Og ekki er ólíklegt, að aldrei hafi Sigga betur séð þá þakklætisskuld, sem Valsstúlkurnar stóðu í við Þór- arin, og nú væri það hennar og þeirra stolt að sigra í þessu móti, vegna hans. Þetta fannst mér liggja einhvernveginn í loftinu. Þegar leikirnir hófust leyndi það sér ekki, að stúlkurnar í hinum lið- unum vissu hvaðan þeim var mest hætta búin í leikjum sínum við Val: Siggu skyldi gætt, hvað sem það kost- aði og ef ein dygði ekki skyldu fleiri koma til. Og það sýndi sig, að þessar ráð- stafanir voru ekki að ástæðulausu, en þær dugðu hvergi, slíkur var kraft- ur Siggu og baráttuvilji fyrir félag sitt. Hún varð fyrir því óhappi, að fá slæmt högg á hendi, sem var það alvarlegt, að við vildum að hún leit- aði læknis, en við það var ekki kom- andi og ekki nóg með það, við urð- um að lofa því næstum undir eið, að láta engan um þetta vita og forð- ast að láta það berast til stúlknanna í hinum félögunum, það mundi efla þær í sókninni og stúlkurnar í henn- ar liði máttu helzt ekki vita þetta heldur, það mundi ef til vill draga úr trú þeirra á sigur, ef fyrirliðinn væri vanheill í hendi. Nei, sagðist ekki vera komin upp á Akranes til þess að vera sveipuð inn í sárabindi. Hún væri komin hingað, ásamt hin- um Valsstúlkunum, til að vinna þetta mót! Það leyndi sér ekki að í leik henn- ar, hvatningarorðum til leiksystra sinna, að þetta var henni mikið al- vörumál og þó varð hún í hverjum leik fyrir sérstakri aðsókn í tíma og ótíma, sem knúði hana til meiri átaka en eðlilegt var. Ég gleymi aldrei eitt sinn, þegar hún var komin inn á línu til að skjóta og lætur sig falla inn á teig- inn, en fallið var þungt, því hún hafði tvær úr vörninni á bakinu og skall á steinsteyptan völlinn Kom hún litlu síðar til okkar og bað um plástra á sárin, en satt að segja var erfitt að átta sig á hvar ætti helzt að líma þá. Samt var það gert. Eftir skamma stund sáum við hana rífa þá af aftur. Hún sagði síðar, að þeir hefðu þvælzt fyrir og svo lét hún sig hafa það að halda áfram með hálf skinnlausa lófa, og sársaukinn kvaldi. Þannig hélt hún áfram til síðustu sekúndu í úrslitaleiknum -— og hún stóð við það sem hún sagði: Valur vartrt mótiS. Það var þreytt kona, sem gekk út af leikvellinum á Akranesi, áleiðis í búningsklefann, þar sem hún tók sér sæti á bekknum í horninu. Hún hafði lagt í leikinn alla orku sína, hún hafði gefið Val hvern snef- il af kröftum sínum. Hún fól and- litið í höndum sínum, þöktum sár- um, hún átti ekkert eftir nema svo- lítinn sætan, mér liggur við að segja, yndislegan grát, eins og lítil stúlka, sem grætur af gleði, meira en af sárs- auka, og vafalaust hefur hvort tveggja sameinast i þessari mannlegu athöfn. Þessi frammistaða Siggu er mér ógleymanleg. Hún er dæmið um hinn fúsa félaga, manneskjuna, sem legg- ur sig alla fram, þegar heiður félags- ins er annars vegar. Hún er dæmið um félagann, sem skilur þá ábyrgð sem á honum hvílir þegar mikið liggur við. Það er svona hugarfar, svona vilji og framkoma, sem gefa íþróttunum alveg sérstakl gildi og gefur ómetanlegt fordæmi Að lokum sagði Jón: Ég vil taka það alveg skýrt fram til að fyrir- byggja misskilning, að allar stúlk- urnar sýndu frábæran baráttuvilja og samstöðu í þessum erfiðu leikjum og var unun á það að horfa, þó við- brögð Siggu og framganga í leikjun- um sem einstaklings vektu athygli mína og aðdáun, sem raunar er ekki í fyrsta skipti. Þegar Jón hafði lokið sögu sinni setti mig hljóðan, ég var eins og Jón fullur aðdáunar og það mátti engu muna, að ég, gamall skúrkur úr hörð- um leikjum, harðsvíraður úr blaða- þvargi og illskeyttur úr orðaskaki á fundum og þingum um áratugaskeið, tæki höndum fyrir augu til að forða ofurlitlu rennsli niður kinnarnar. Til þess að fá nánari skýringar á þessu, sem gerðist á Akranesi og því, að Sigga taldi mótið þar það eftir- minnilegasta, sem hún hafði tekið þátt í á hinum viðburðaríka íþrótta- ferli sínum, fór á fund hennar og bað hana að segja mér hvað það hefði verið, sem gerði mótið á Akra- nesi svona einstætt fyrir hana? — Þetta var erfiðasta helgi, sem ég hef lifað. Við urðum að leika fjóra leiki á tveimur dögum. Fyrsta leikinn eftir hádegi á laugardag og svo ann- an til um kvöldið. Þriðji leikurinn var svo kl. g á sunnudagsmorgun, og sá fjórði var úrslitaleikurinn kl. 3 sama dag. Við vorum líka óheppnar að í okk- ar riðli voru sterkustu liðin að Fram undanteknu, sem var í hinum riðl- inum. Það má því segja, að við urð- um að taka á öllu okkar í hverjum leik. Við þetta bættist, að völlurinn var úr steinsteypu og þegar maður datt á hendur eða hné skrapaðist skinn af eða bólguhnúðar komu á hné og hendur og lagaði blóð úr. Ég hafði lika fengið áföll á tvo fingur, þannig að þeir voru stokkbólgnir, auk aumra bletta um allan skrokk- inn, vegna harkalegra pústra sem ég varð fyrir. Það var engu líkara en að ég væri alltaf i ónáðinni hjá mót- herjunum og drógu þær livergi af. Við þetta bættist ofsaleg spenna og hugaræsing um það, hvernig þessu öllu mundi reiða af. Það bætti lika gráu ofan á svart, að Þórarinn var veikur í Reykjavík. Okkur stelpunum þótti það alveg hræðilegt, að hann væri svo langt i burtu, hann sem alltaf hafði verið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.