Valsblaðið - 24.12.1969, Side 82

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 82
80 VALSBLAÐIÐ tJlfar Þórðarson, formaður ÍBR. ÁkafamaÓ- urinn um íþróita- og féalgsmál. *3[>róHal anclaícKj Uey Ljai/íLur 25 dra ÍÞRÓTTABANDALAG Reykjavíkur varð 25 ára á þessu ári. Með stofnun þess var merkilegrt skref stigið í þróun félagsrnála íþróttafélaganna í Reykjavík. Með stofun IBR hefst til valda sameiginleg yfirstjórn íþróttamálanna hér í borg, sem jafnframt verður félögunum, hverju fyrir sig og sameiginlega, til trausts og lialds. I»á er og sá þáttur IBR ekki hvað sízt mikilvæg- ur, að koma fram út á við, í nafni samein- aðrar íþróttahreyfingar höfuðborgarinnar, þegar það á við. Áður en IBR kom til sögu, voru félögin, hvert í sínu lagi, að ota sínum tota. En „hvað má höndin ein og ein, allir vinnum saman“. Það hefir gerzt undir traustri stjóm IBR í fjórðung aldar. Aldarfjórðungsafmælisins var minnzt með veglegu hófi í Sjálfstæðishúsinu hinn 25. okt. s. 1. Formaður IBR tJlfar Þórðar- son rakti þar í ágætri ræðu, sögu IBR og starf á liðnum ámm. Meðal gesta var borgarstjórinn í Reykjavík og forseti Isf ásamt öðmm liðsoddum íþróttahreyfing- arinnar. Allir ræðumenn, sem tóku til máls, m. a. borgarstjóri Geir Hallgrímsson og forseti ÍSf luku upp einum munni um ágætt starf ÍBR á liðnum áratugum. I*á var ÍBR færðar ýmsar góðar gjafir. Veizlu- stjóri var Andreas Bergmann varaformað- ur IBR og einn þeirra, sem átt hafa hvað lengst sæti í stjórn þess. Fjölmenni var. Fyrsti formaður ÍBR var Gunnar I*or- steinsson hrl. en aðrir þeir, sem gegnt hafa formannsstöðu eru þessir: Ólafur Sigurðsson, Gísli Halldórsson, Baldur Möller og Úlfar Þórðarson. Sá, sem lengst hefir gpgnt formensku I ÍBR, er Gísli Hall- dórsson alls 14 ár, eða þangað til hann var kjörinn forseti ÍSÍ, fyrir nokkrum árum. Framkvæmdastjóri ÍBR er Sigurgeir Guð- mannsson og hefir hann verið það um ára- bil. Valsblaðið óskar ÍBR, í tilefni 25 ára af- mælisins, allra heilla. Megi ætíð ríkja ein- lægt samstarf innan ÍBR byggt á gagn- kvæmum skilningi hins sanna íþrótta- anda. EB UR OÐRUM KNATTSPYRNURÁÐ REYKJAVÍKUR 25 ÁRA Svo sem kunnugt er, varð Knatt- spyrnuráð Reykjavíkur fimmtíu ára á þessu ári. En það var stofnað hinn 29. maí árið 1919, að tilhlutan ISÍ. Hér er vissulega um merkan áfanga að ræða, á löngu, samfelldu og giftu- drjúgu forystustarfi fyrir þá íþrótt, sem vinsælust er meðal manna — knattspyrnunni. Eins og að líkum lætur var þess- ara tímamóta minnzt með ýmsum og verðugum hætti. Skal þess getið hér að nokkru, en hins vegar vinnst ekki tími né rúm til, að rekja svo neinu nemi, hina margþættu og viðburðariku sögu ráðsins um hálfr- ar aldar skeið. En á það skal þó bent, að með stofnun KRR er fyrsta tilraunin gerð til þess að sameina vissa þætti íþrótta- hreyfingarinnar að sérstakri sam- eiginlegri forystu undir yfirstjórn ISl. Það var heldur ekki nein til- viljun, að knattspyrnan varð fyrir valinu. Á þeim tíma, sem KRR var stofnað, var íþróttahreyfingin ung að árum og lítt reynd. Landssam- band hinna dreifðu og lítilsmegandi íþróttafélaga aðeins 7 ára gamalt. En sú íþróttagrein, sem þá fór i far- arbroddi og jafnan síðan, var knatt- spyrnan. Yíða um landið voru til flokkar og félög, sem æfðu og léku knattspyrnu, bæði i liinum stærri kaupstöðum og hinum dreifðu byggð- um. I Reykjavík voru t. d. fjögur félög starfandi er ÍSÍ var stofnað. Þessi félög ásamt þeim, sem síðar hafa bætzt við á Reykjavíkursvæð- inu, eru meðal gildustu þátta íþrótta- hreyfingarinnar í dag. Forysta KRR og starfsferill á liðn- um áratugum sannar, að hér hefur vel tekizt til, ekki aðeins er viðkem- ur Reykjavík og umhverfi hennar. Því starfsemi KRR hefur, svo ekki leikur á tveim tungum, haft mikil og góð alhliða áhrif frá upphafi vega KnattspyrnuráS Reykjavíkur. Sitjandi: Jón GuSjónsson (F), Einar Björnsson formaSur (V), Ólafur Jónsson (Vík). Standandi: Sigurgeir GuSmannsson, framkvœmdastjóri KRR, Gunn- ar Eggertsson (Á), Jens Karlsson (Þ) og Haraldur Gíslason (KR).

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.