Valsblaðið - 24.12.1969, Side 83

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 83
VALSBLAÐIÐ 81 Ólafur Jónsson hefur setiS flesta fundi KRR í 25 ár. ÞaS þarf elju og áhuga til. um gjörvallt landið og verið örugg fyrirmynd samtakanna í heild, er þeim óx fiskur um hrygg, um sér- mál íþróttahéraðanna, jafnt í þétt- býli sem strjálbýli, að því er til skipulags íþróttanna almennt tekur. Hversu vel tókst þegar i ujíphafi má og þakka það, að til forystu völd- ust hinir ágætustu menn. En fyrsti formaður KRR var Egill Jacobsen kaupmaður. Áhugamaður mikill um knattspyrnuna og skipuleggjari svo af bar, og með honum voru svo hver maðurinn öðrum betri, Ex’lendur Ó. Pétursson, síðar formaður KR um árabil, Pétur Sigurðsson, siðar há- skólaritari, Magnús Guðbrandsson, verzlunarmaður og Axel Andrésson, verzlunarmaður, einn kunnasti knattspyrnudómari okkar um ára- tugi og einn hinn bezti útbreiðslu- maður, sem íþróttahreyfingin hefur átt og kennari i knattspyrnu. Lfnd- an samstilltu átaki slíkra valin- kunnra áhugamanna hlutu steinar í götu íþróttanna og sérstaklega knatt- spyrnunnar að velta úr vegi. Með stofnun KRR hefst þegar skipulegt alhliða umbótastarf til eflingar íþrótt- inni og sameinaðs átaks knattspyrnu- félaganna í borginni fyrir auknu gengi hennar. Stjórnað var af festu í Reykjavík og jafnframt sem hvetj- andi og uppörfandi umburðarbréf voru send út um land, til félaga og flokka, sem þar höfðu hafið merki knattspyrnunnar að hún. Hvatt var til þess að félög utan Reykjavíkur sendu flokka á Islandsmót og styrk- ir boðnir í því skyni. Árið 1919 er vissulega merkilegt tímamótár í sögu íslenzkrar knatt- spyrnu, ekki aðeins að því er snert- ir stofnun KRR og með þvi aukið og eflt skipulag knattspyrnuíþrótt- arinnar í þéttbýlinu og í heild í land- inu. Það ár gisti og landið fyrsta erlenda knattspyrnuliðið, sem hing- að kom i boði ISÍ, en KRR sá um allar móttökur hinna erlendu gesta, sem voru frá Akademisk Boldklub í Kaupmannahöfn. En lið þess var talið hið bezta í Danmörku um þær mundir. Stofnun KRR og fyrsta knattspyrnuheimsóknin fór saman. Síðan þetta skeði hefur mikið vatn til sjávar runnið og margt stórvirk- ið verið unnið innan knattspyrnu- hreyfingarinnar, en hvað sem þvi líður leikur ekki á tveim tungum, að stofnun KRR og fyrsta erlenda knattspyi-nuheimsóknin hingað til lands er og verður um alla framtið einn mesti viðburður innan íslenzkr- ar knattspyrnuhreyfingar og sá sem fyrr og siðar ber hæst í sögu hennar. Heimsókn AB, leikni liðsmanna þess og snilli hafði gagnger áhrif á leikmenn vora og allan almenning. Vissulega stóðust íslenzku leikmenn- irnir móthei’jum sínum ekki snún- ing, um það vitna úrslit leikjanna, sem lesa má um í samtímafrásögnum blaðanna. En lxvað sem úrslitum hinna einstöku leikja leið, opnaði heimsókn þessi leikmönnum vorum nýjan og áður óþekktan heim snilli og leikni með knöttinn. Snilli og leikni, sem ekki aðeins væri bundin við pilta suður í Danmörku, heldur gæti og orðið „eign“ lxvers og eixxs á hvaða breiddargráðu sem væri og þá einnig úti á Islandi, ef rétt væri á öllu haldið. Þannig m. a. hafði þessi fyrsta knattspyrnuheimsókn sín góðu og jákvæðu áhrif. Einn liðurinn í þeim hátíðahöld- um, sem fram fóru í tilefni af 50 ára afmæli KRR, var heimsókn AB að nýju. Það þótti sjálfsagt að reyna að fá lið í heimsókn þaðan, til þess að undirstrika og rifja upp gömul samskipti og endurnýja kynninguna. Þetta tókst vegna vinsemdar núver- andi ráðamanna félagsins. AB kom hingað um mánaðamótin júní/júlí og lék hér þrjá leiki. Þann fyrsta við lA og sigraði 4:1, næst við KR, sem sigraði með 1 :o og loks við lands- liðið, sem einnig sigraði með 1:0. Alls varð markatalan 4:3 Dönurn i vil, en er þeir voru hér í fyrra skipt- ið skoruðu þeir allt 31 mark megn 8. Eftir leikinn við landsliðið, sem var síðasti leikur AB hér að þessu sinni, bauð Reykjavíkurborg til glæsi- legs samsætis að Höfða, sem Páll Lín- dal borgarlögmaður stjórnaði og flutti jafnframt ræðu f. h. borgarstjóra, sem ekki gat verið viðstaddur. Bauð Páll Danina velkomna og þakkaði AB þess merka þátt til þroska ís- lenzkrar knattspyrnu fyrr og síðar. Þakkaði hann jafnframt KRR fyrir gagnmerkt 50 ára starf. Þá flutti for- maðxxr KRR stutta ræðu, þar sem hann þakkaði borginni fyrir hinar glæsilegu móttökur og vinsemd alla, AB fyrir heimsóknina og afhenti síð- an gjafir hixxum erlendu gestum og félagi þeirra. Loks talaði svo farar- stjóri AB og lét í ljós mikið þakk- læti fyrir afburða góðar móttökur og ánægjulega för í alla staði. Áður en til heimsóknar AB kom. sem var einn mesti viðburðurinn í afmælishaldinu, efndi KRR til inn- anhússmóts í knattspyrnu í Laug- ardalshöllinni hinn 23. marz Og var nú um alla hnúta búið til keppni þessarar, svo sem lög mæla fyrir um, m. a. með tilskyldunx veggjum umhverfis „völlinn“. 1 móti þessu tóku þátt öll Reykjavíkurfélögin, auk þess ÍA og fBK. Útsláttarkeppni var viðhöfð og lauk mótinu með sigri Vals, sem hlaut glæsilegan bikar til eignar, er gefinn var af frú Soffiu Jacobsen (konu Egils Jacobsen, fyrsta formanns KRR) og sonum, Hauki og Olfari. Þá fór fram afmælisleikur á Laug- ardalsvellinum seinxxi hluta maímán- aðar, þar sem úrvalslið Reykjavíkur og úrvalslið Suðvesturlands léku. Loks var svo efnt til veglegs af- mælishófs hinn 24. maí í Sigtúni. Komu i hóf þetta á annað hundrað maixns. Ölafur Jónsson bauð gesti velkomna og stjórnaði hófinu, en Ólafur er sá meðlimur KRR, sem þar hefur lengst allra átt sæti eða 25 ár samfleytt. Þá flutti formaður KRR, Einar Björnsson, erindi um ráðið og starfsemi þess á liðnum ára- tugum. Gat liann þess m. a. að alls hefðu 21 maður gegxxt formanns- stöðu í ráðiixu. Þá voru heiðraðir 25 menn og sæmdir merki KRR, sem starfað höfðu á vegum knattspyrn- unnar í Reykjavík, einnig 4 knatt- spyrnudómarar. Við þetta tækifæri var Geir Hallgrímsson borgarstjóri sæmdur gullmerki KRR fyrir marg-

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.