Valsblaðið - 24.12.1969, Side 86

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 86
84 VALSBLAÐIÐ 195 7, er þær urðu Islandsmeistarar. Þó það hafi að sjálfsögðu verið skemmtilegt frá íþróttalegu sjónar- miði, skeði annað sem var ef til vill mikið meira virði fyrir þessar dug- legu stúlkur, og það var hin félags- lega samstaða og einlæga vinátta sem hélt áfram, þótt hætt væri að handleika knött og komnar væru skyldur við heimili, bónda og börn hjá mörgum þeirra. Á mörgum undanförnum árum hafa þær komið saman einu sinni i mánuði, og þá heima hjá hver ann- ari til skiptis, og snúast þá umræð- ur um Þrótt, gamla daga, íþrótt- irnar á líðandi stund, og svo auð- vitað blessuð börnin sín, prjónaskap og tízkuna, svo eitthvað sé nefnt. Þessar stúlkur í Þrótti hafa eftir- minnilega sannað þá kenningu margra íþróttafrömuða og félags- hyggjumanna, að óvíða bindist fólk traustari vináttuböndum en einmitt í iþróttunum, og þá helzt ef um bar- áttu er að ræða að ná vissu marki, og að það tekst. Þar kemur einnig til kraftur, vilji og þrautseigja. Þeg- ar frá líður er það vináttan sem fyrst og fremst lifir í huganum og sem er ef til vill dýrmætasta eign hvers einstaks, sem finnur, að hún er end- urgoldin. Þetta á íþróttahreyfingin í fórum sínum og þessa geta allir notið, sem hafa lag á að höndla það. Þetta gefur fyrst og fremst gildi ein- staklingnum sem finnur þetta og varðveitir, en svona kjarni er lika félagi sínu ómetanlegur í starfi þegar til hans er leitað og hann hefur verk- efni við sitt hæfi. I þessu tilviki er vitað, að i sam- bandi við væntanlegt félagsheimili Þróttar hafa stúlkurnar gert sér grein fyrir því að þær gætu orðið félagi sinu að liði og fátt væri kærkomn- ara íþróttafélögum yfirleitt en að slíkar húsmæður réðu þar ríkjum. Það væri íþróttahreyfingunni mikils virði ef svona hópar yrðu til i félögunum, hópar, sem bæru vin- semd til íþróttanna og félagsins, um leið og varðveitt væru innbyrðis vin- áttubönd, með minningum frá liðn- um dögum i bliðu og stríðu. Slík samheldni og tryggð eykur manngildið, gerir fólkið færara til að mæta erfiðleikum á lífsleiðinni, fær stuðning þeirra, sem þéttast stóðu saman á leikvellinum. Þessar Þróttarstúlkur eru því gott dæmi um það, hvernig íþróttirnar geta skapað samheldni, vináttu og félagshyggju árum saman, þó þátt- takan sjálf í leik sé minningin ein. F. H. Nýir bikarmeistarar K.S.Í. Ritstjóm „Vals“ þótti tilhlýðilegt að birta mynd af hinum nýbökuðu Bikarmeistumm frá Akureyri, sam- gleðjast þeim og óska til hamingju með það afrek. Það var í sannleika sagt tími til þess kominn, að þeir næðu því að komast á toppinn og eiginlega furðulegt hve lengi það hefur dregizt. Akureyri á orðið langa sögu sem knattspyrnubær, eða hart nær 40 ár, sem lið frá Akureyri hafa komið fram í opinberum mótum (Islandsmótum). Oftast hafa Akur- eyringar teflt fram góðum liðum, sem hafa sýnt góða knattspyrnu, og oft er eins og það hafi vantað aðeins herzlumun til að ná hinu þráða marki. En þrátt fyrir það hafa þeir alltaf verið með, þó þeir hafi ekki tekið þátt í hverju móti á fyrstu ár- unum, og á þeim árum urðu þeir að fara til Reykjavikur til að keppa á mótunum. Við viljum endurtaka árnaðaróskir okkar, og óska þeim velfarnaðar i starfi og leik. F. H. IBA — BIKAP- MEISTARAR KSl 1969. Afíari röð f. h : Sam- úel Jóhannsson. Pélur SigurSsson, Gunn- laugur Björnsson, Valsleinn Jónsson, Skúli Ágústsson, Kári Árnason. Fremri rÖS f. h.: Einar Helgason, ViSar Þorsíeinsson, Gunnar AustfjörS, ÞormóSur Einarsson, Eyjólfur Agústsson, Númi FriSriksson, Magnús Jónatansson, Sœvar Jónatansson, Alberl GuSmundsson, form. KSl.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.