Valsblaðið - 24.12.1969, Side 87

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 87
VALSBLAÐIÐ 85 Valur vinnur! Valsmenn, vinir gó&ir! þið verðið stundum móðir, •—- en til í hark, hark, hark. Það heyrast hlátrasköllin, liringinn í kringum Völlinn —- hver setti mark, mark, mark? Benfica fékk að frœðast um fótaspörk, og hrœðast, — það vakti tal, tal, tál. í hásœti skal hafna og hildarleiki jafna, — hver sigrar Val, Val, Val? Heyr! Heyr! Heyr! Að fótum okkar falla: einn og líka tveir. Með nákvœmni skal skalla og skot í mörkin ,,salla“. — Já, svona, meir, meir, meir! En þrfúkorter senn þrýtur, það sést að vinna hlýtur: — Valur, Valur, Valur! Klukkan kallar: stopp, stopp, stopp! — komin upp í topp, topp, topp. Húrra! sprund og halur. Kristinn Magnússon. VALSEKKJURNAR - Frh. af bls. 63. Fjöldinn í klúbbnum er þegar orð- inn 9, en rétt til inngöngu hafa kon- ur og unnustur meistaraflokksmanna í Val og nafnið segja þær að skýri sig sjálft! „Kynni okkar hér hafa aðeins orð- ið vegna þátttöku bænda okkar i knattspyrnunni í Val, því áður lágu leiðir okkar ekki saman. Þetta er svo skemmtilegt og við hlökkum til hvers einasta kvölds, sem við kom- um saman. Þá má geta þess að við höfum sérstakt gjald og gjaldkera og er sjóðurinn þegar tekinn að gildna, því við borgum í hann þegar við komum saman“. Nú vaknaði forvitni okkar, hvað ætti að gera við sjóðinn og fórum fínt í að grennslast eftir því. Þær litu hver á aðra og kímdu og svo kom svarið: „Við höfum hugsað okkur að bjóða körlum okkar út á veitinga- hús rétt áður en íslandsmótið hyrj- ar, veita þeim vel og nota tækifærið sameiginlega til að stappa í þá stál- inu, að standa sig í mótinu og við gerum ráð fyrir, að þeir þori ekki annað. Svo þarf ekki að taka það fram, að þar sem börn eru á heim- ilum okkar verða veir að vera „barna- píur“ þessi klúbbkvöld. Jú, jú, við erum áhugasamar um knattspyrnuna í Val, förum á alla leiki á sumrin og öskrum þá og æp- um og fáum þá stundum að heyra, að við séum okkur til skammar, en það verður að hafa það“, sagði þessi glaðværi hópur að lokum. Það þarf ekki að taka það fram að við nutum mikillar gestrisni og gerðum gómsætum og ljúffengum kökum góð skil. Þetta var í sannleika sagt góð frétt að konur meistaraflokksmanna Vals skyldu hefjast handa um að hittast við og við til að blanda geði saman, stytta sér stundir og fá þannig svo- litlar uppbætur fyrir hinar mörgu einverustundir, sem þær lifa við, þegar bóndinn sinnir þessum félags- störfum, á einn eða annan hátt. Það er skemmtilegt til þess að vita, að íþróttir skuli á þennan hátt geta orð- ið til að þjappa fólki saman til vin- áttu, þó það taki ekki þátt í sjálfum félagsstörfunum. Þetta verður á margan hátt beinn og óbeinn stuðn- ingur við Val og íþróttirnar. Félags- starfið og félagslyndið er sá kjami, sem hvert félag byggist á, og því margþættari sem hann er og heil- steyptari verður starfið árangurslík- ara. Konan i félagsstarfinu er ekki siður traust en karlar og satt að segja hefur hlutur konunnar, sem ekki hefur tekið beinan þátt í félags- lifinu, en verður fyrir óþægindum af fjarveru húsbóndans, ekki verið sá gaumur gefinn, sem vert væri, og í mörgum tilvikum hefur hinn vel- viljaði hugur til íþróttanna og mannsins gert honimi það kleift að sinna þessum málum. Við árnum því saumaklúbbnum „Valsekkjurnar“ heilla í starfi og vonum að þau vináttubönd sem þar bindast vari sem lengst. F. H.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.