Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 5
VALSBLAÐIÐ
3
VALUR
60
ÁRA
Á árinu 1970 skipaði stjórn félags-
ins nefnd til þess að undirbúa afmæl-
isár félagsins. Gerði stjórnin ráð fyr-
ir því, að af því tilefni kæmu fram
þeir aðilar sem sjá um íþróttastarf-
semi félagsins sérstaklega, og þeim
öðrum greinum, sem stundaðar eru
innan félagsins, þótt í smærri stíl
væri. Ennfremur að efnt yrði til
myndarlegs afmælishófs fyrir félags-
menn, sem aldur hefðu til þátttöku.
Átti þetta að vera nokkurs konar
þverskurður af starfsemi Vals eins
og hún lítur út á þessum merkilegu
tímamótum.
Samdi nefndin skrá um allt. það,
sem hún lagði til um hátíðahöldin,
og hafði til þess samráð við deildir
og aðra sem það snerti. Urðu þessi
atriði alls 22, og munu flest þeirra
hafa farið fram á tilsettum tíma.
Nefndin var skipuð eftirtöldum
mönnum: Ægir Ferdinandsson, form.,
Frímann Helgason, Friðjón B. Frið-
jónsson, Einar Björnsson, Þórarinn
Eyþórsson.
Verður leitazt við að segja frá þess-
um atriðum í stórum dráttum hér á
eftir.
Veglegt afmœlishóf að
Hótel Borg 3. apríl
Mikill mannfagnaður var haldinn
að Hótel Borg og komu þangað marg-
ir félagsmenn og boðsgestir. Formað-
ur hátíðarnefndarinnar, Ægir Ferd-
inandsson, setti hófið með stuttri
ræðu, en veizlustjóri var Frímann
Helgason.
Aðalræðuna við þetta tækifæri
flutti formaður félagsins Þórður Þor-
kelsson, og fara hér á eftir nokkrir
kaflar úr ræðu Þórðar:
— — — ,,Við Valsmenn munum
ávallt minnast þess með stolti, að
flautað var til leiks af nokkrum
drengjum úr unglingadeild KFUM,
sem stofnuðu Val 11. maí 1911.
Við Valsmenn munum ávallt hugsa
til séra Friðriks Friðrikssonar, sem
fljótt kom auga á gildi íþróttanna
fyrir æskuna, var síhvetjandi ungu
Vottuð er látnum stofnendum Vals og brautryðjend-
um svo og öllum Vals-félögum, sem horfnir eru yfir móð-
una miklu, virðing og þökk, jafnframt því sem hylltir
eru þeir, sem enn dvelja vor á meðal.
Minnzt er KFUM, þar sem félag vort á rætur sínar og
upphafs þess er að leita. Sérstaklega þó séra Friðriks,
hugsjónamannsins og æskulýðsleiðtogans. Bræðrafélög-
um og öðrum íþróttasamtökum, og heildarsamtökunum,
ÍSÍ, er flutt þakklæti fyrir áratuga samvinnu í leik og
starfi, í bliðu sem stríðu. Þakkaður er opinberum aðilum
margs konar stuðningur við starf vort og síaukinn skiln-
ingur á gildi þess á liðnum árum.
Valur hefur á þeim sex áratugum, sem hann hefur
starfað, vaxið frá því að vera samtök fáeinna ungra
drengja en duginikilla, í það að verða sterkt félag, sem
ungir menn og konur hafa fylkt sér um í æ rikara mæli.
Jafnframt því sem aðstaða öll til íþróttastarfsins hefur
verið aukin og endurbætt frá ári til árs. Mjór er mikils
vísir, segir máltækið, það sannast hér í sambandi við
framgang Vals. Vart mun ungu drengjunum, sem hófu
merki Vals fyrir sex áratugum, hafa boðið það í grun, að
er tímar liðu fram myndi upp af fræi þeirra vaxa slíkur
voldugur meiður, íþróttalega og félagslega, sem Valur
er í dag.
Valsfélagar! Hvað framtíðin ber í skauti, fær enginn
séð, hversu feginn sem hann vildi. En sé sagan skoðuð
í ljósi fortíðarinnar, er ekki ástæða til annars en vænta
hins bezta af framtíðinni. Oss er það ljóst að verkefni
framtiðarinnar eru margþætt og því aðeins fáum við
leyst þau að allir, yngri og eldri félagar, þoki sér þétt
saman um hugsjónaarf og framtíðarheill félagsins.
Stjórn Vals afmælisárið:
Frá vinstri: Jón Kristjánsson, Einar Björnsson, Friðjón B. Friðjónsson, Þórður
Þorkelsson formaður, Karl H. Sigurðsson, Hermann Gunnarsson og
Þórarinn Eyþórsson.