Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 12
10
VALSBLAÐIÐ
Starfið er margt
LJr skýrslu aðalstjórnar
1 greinargerð þeirri, sem hér íer
á eftir, er í stórum dráttum getið ým-
issa atriða varðandi félagsmál Vals,
sem komið hafa fyrir og aðalstjórnin
hefur látið sig varða sérstaklega á
kjörtímabili því, sem hófst með aðal-
fundi félagsins, sem háður var 11.
febr. 1971 — en sem nú er á enda
liðið.
Sú stjórn, sem innan tíðar skilar
af sér störfum, var þannig skipuð:
Þórður Þorkelsson formaður, kjörinn
sérstaklega á aðalfundi, Þórarinn Ey-
þórsson, Friðjón Friðjónsson, Jón
Kristjánsson og Einar Björnsson. Alls
voru haldnir milli 20—30 stjórnar-
fundir.
Svo sem um getur í greinargerð s.l.
árs er þá þegar hafinn undirbúningur
að 60 ára afmæli félagsins, sem var
á þessu ári. Formaður afmælisnefnd-
ar var skipaður fyrrv. formaður Vals,
Ægir Ferdinandsson. Var hér vissu-
lega um ærið og viðurhlutamikið starf
að ræða, og má segja að meginstarf
stjórna og deilda framan af árinu hafi
snúizt að framkvæmdum afmælis-
haldsins. En um undirbúning og fram-
kvæmdir er vísað til frásagna á öðr-
um stöðum í blaðinu, þar sem greint
er frá hinu margþætta undirbúnings-
starfi og framkvæmdum í því sam-
bandi. En óhætt má fullyrða að af-
mælishaldið allt tókst með ágætum
og var Valsfélögum og félaginu í heild
til hins mesta sóma.
Eitt er það stórmál, sem verið hef-
ur í höndum stjórnarinnar um lengri
tíma undanfarið, og þó það sé enn
ekki endanlega komið í höfn, nálgast
það þó jafnt og þétt sett mark, en það
er stækkun Hlíðarendalandsins. Er
mál þetta mikið hagsmuna- og áhuga-
mál allra Valsfélaga og ríður á miklu
fyrir félagið og framtíð þess, að það
fái sem fyrst farsæla lausn. Borgar-
yfirvöldin hafa sýnt Val velvilja og
skilning í þessu sambandi. Guðmund-
ur Kr. Guðmundsson arkitekt hefur
verið meginstoð og stytta Vals í máli
þessu. En hann og formaður Vals hafa
manna mest unnið að málinu, og kom-
ið fram fyrir félagsins hönd gagn-
vart hinum opinberu aðilum, sem
hér eiga hlut að máli. Mega félagar
vissulega vera Guðmundi þakklátir
fyrir það af hversu miklum áhuga
og ósérhlífni hann hefur unnið að
málinu fyrir Val.
Getraunastarfsemin hélt áfram á
árinu, og jókst sú starfsemi í heild.
Sjálfsagt má alltaf segja það að betur
megi gera hverju sinni. Harðdugleg-
asti sölumaður Vals á þessu sviði var
Gísli Sigurðsson húsvörður, en hann
sýndi fádæma kraft og árvekni í sölu-
mennskunni og gaf þar öðrum fé-
lagsmönnum glæsilegt fordæmi.
Vissulega kostar getraunasalan
mikla vinnu, starf og árvekni, en þar
er líka til mikils að vinna, og því
meira, sem betur er á málum haldið.
Hér er vissulega um mikla fjárhags-
lega búbót að ræða fyrir deildirnar.
Minnast má hér á, að „sveltur sitj-
andi kráka, en fljúgandi fær“.
Þá er það orðinn fastur liður í sum-
ardagskrá Vals að efna til „Vals-
dags“ og að þessu sinni var efnt til
fjórða Vals-dagsins og hann haldinn
hátíðlegur og með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Veður var gott og
fjöldi fólks lagði leið sína að Hlíðar-
enda þennan dag. Prentað prógramm
lá fyrir. Formaður Vals, Þórður Þor-
kelsson, setti hátíðina með stuttri
ræðu, þar sem hann m. a. gat þess,
að: „Valsdagurinn væri kynningar-
dagur á þeirri starfsemi, sem fram fer
að Hlíðarenda innan Vals“. „Við vilj-
um reyna“, sagði formaðurinn einn-
ig, „að ná til foreldra þeirra ungl-
inga, sem verja verulegum hluta af
frítíma sínum hér á íþróttasvæði Vals,
svo foreldrar og aðrir aðstandendur
þeirra unglinga, sem hingað sækja,
geti af eigin raun kynnt sér, hvernig
starfsemin gengur fyrir sig“.
Þá skeði sú nýbreytni, að þarna
mætti 3. flokkur knattspyrnudrengja
frá Akureyri. En þetta er í fyrsta
sinni, sem hópur drengja frá Akur-
eyri mætir til þátttöku á Valsdegin-
um. Formaðurinn bauð þá sérstak-
lega velkomna og lýsti ánægju sinni
yfir komu þeirra, sem vissulega setti
svip sinn á daginn. Nánar er svo skýrt
frá deginum á öðrum stað í blaðinu.
Formaður undirbúnings að Valsdeg-
inum var Þórarinn Eyþórsson.
Um gang mála hjá hinum ýmsu
deildum vísast til skýrslna þeirra í
blaðinu. Þó skal þess getið hér, að
1. júlí kom flokkur knattspyrnu-
manna frá Brumunddalen í Noregi,
undir stjórn Reidar Sörensen. En
sambandið milli Brumunddalen og
Vais á sér alllanga sögu. Ennfremur
skal minnzt á heimsókn KFUM-liðs-
ins frá Árósum í Danmörku eða Ár-
hus-KFUM, sem hér dvaldi á vegum
handknattleiksdeildarinnar.
Þórður Þorkelsson, formaður Vals.
Þá skal ennfremur minnt á sigra
kvennaflokks félagsins, sem sigraði
með miklum glæsibrag í Islandsmót-
inu í handknattleik úti og inni 8.
sinn í röð. Þá eignaðist Valur á árinu
fyrstu Islandsmeistarana í körfu-
knattleik með sigri 3. fiokks. Auk
þess sigraði meistarafl. Vals í innan-
hússknattspyrnumóti KSÍ. Þá voru
afmælisleikir háðir bæði í knatt-
spyrnu og handbolta og afmælismót
í körfubolta.
Fundur var haldinn með aðalstjórn
og formönnum hinna ýmsu deilda og
stjórnum þeirra, þar sem félagsmálin
voru rædd almennt. Eru slíkir fundir
hinir gagnlegustu, ef vel tekst til.
Unnið var að stofnun „Fram-
kvæmdasjóðs Knattspyrnufélagsins
Valur“ og frumdrög að reglugerð
samin.
Valsblaðið kom út með svipuðu
sniði og undanfarna áratugi. Aðal-
ritstjóri þess er Frímann Helgason,
en auglýsingarstjóri Friðjón Guð-
björnsson. Sýnt er að félagsmenn
kunna almennt vel að meta blaðið.
Þá má ennfremur geta þess, að á
síðasta aðalfundi voru ný lög sam-
þykkt fyrir félagið. Frumvarpið að
lögum þessum var samhljóða því sem
áður hafði verið borið fram, en náði
þá ekki samþykki. Með þessum nýju
lögum er m. a. aðalfundur félagsins
gerður að fulltrúafundi.
Eins og á sumrum fyrr, unnu ung-
lingaflokkar á vegum borgarinnar á
félagssvæðinu, að lagfæringu og
snyrtingu, og ber að þakka það.
Meðal kunnra Valsmanna, sem
merkisafmæli áttu á árinu, var Úlf-
ar Þórðarson (60 ára) og Geir Guð-
mundsson (50 ára).
Hér er aðeins stiklað á stóru um
megindrætti félagsstarfsins á árinu,