Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 56
54
VALSBLAÐIÐ
okkur vantaði fjóra pilta, sem voru
uppi í Reykholti. Það var gert mikið
grín að okkur á eftir.
Það var ekki mikið um fundi í
sumar, en ég held að það ætti að gera
meira að því og koma oftar saman.
Við í fjórða flokki unnum Jóns-
bikarinn og verður hann víst afhent-
ur á aðalfundi deildarinnar.
Mér þykir gaman að vera í þessu
öllu saman og kann vel við mig suður
frá á Valssvæðinu. Ég er mjög bjart-
sýnn með næsta ár, flokkurinn er það
góður að hann ætti að geta náð langt,
ef allir æfa og mæta vel. Mér líkaði
vel við þjálfarana í sumar, en þeir
voru: Helgi Loftsson og Svanur Gests-
son, en nú tekur Róbert við flokkn-
um og féll mér vel við hann í 5. fl.
Ólafur
Magnússon.
Ég byrjaði að iðka knattspyrnu
þegar ég var 10 ára og fór þá í 5. fl.
Bróðir minn var þá í Val og æfði þar,
og hef ég víst orðið fyrir áhrifum
frá honum. Ég fór fljótt að keppa
og þá strax í marki og hef síðan ver-
ið þar, þegar ég hef keppt. Það hef-
ur sjálfsagt verið eitthvað í mér
sjálfum sem dró mig í markið, en ég
hef aldrei annars staðar leikið. Ég
játa, að mér þótti mikið koma til
Sigurðar Dagssonar, þegar hann var
uppá sitt bezta og má vera, að hann
hafi óbeint haft áhrif á mig.
Fyrra árið í fjórða fl. keppti ég
ekki, en á því síðara komst ég aftur
í samband við markið og hef verið
þar síðan.
Varðandi s.l. sumar má segja, að
það hafi verið gaman að koma út sem
haustmeistari. Sjálfur úrslitaleikur-
inn var lélegur af okkar hálfu lengi
vel og Framararnir voru betri í upp-
hafi leiksins, en þeim tókst þó ekki
að skora og þannig leið leiktíminn
að hvorugur skoraði, og voru Fram-
arar þeir óheppnu.
Það var ekki fyrr en í framlenging-
unni sem við vöknuðum og eftir það
áttum við leikinn og skoruðum tvö
mörk gegn engu.
Á undanförnum árum hefur alltaf
verið hörð barátta milli Víkings og
Vals í þessum flokki og hefur Vík-
ingi veitt betur eða síðan í úrslitun-
um í 5. flokki, er við unnum, en í
báðum liðum hafa sömu strákar verið
á þessum árum. í sumar hefur þetta
snúizt við og nú unnum við báða
leikina sem við áttum við Víking.
Ég er ánægður með árangurinn í sum-
ar, tapað fáum leikjum og unnið eitt
mót. Þetta þakka ég mest þjálfaran-
um. Drengirnir sóttu æfingarnar
nokkuð vel, en gat þó verið betra, ef
stefnt hefði verið að því að ná topp-
árangri. Félagsandinn hefði mátt
vera betri, og kom það helzt fram
ef illa gekk í leikjum, einmitt þegar
mest þurfti á félagslegri samstöðu
að halda.
Æfingaaðstaða er mjög góð hjá Val
og félagsheimilið ætti að bjóða upp á
gott félagslíf, en mér finnst félags-
heimilið okkar ekki nóg notað.
Ég hef fylgzt nokkuð með meist-
araflokki í sumar. Var nokkuð ánægð-
ur til að byrja með, en þegar fór að
líða á sumarið fór þetta að detta nið-
ur hjá þeim. Sennilega ekki nóg æf-
ingasókn, eftir því sem mér sýndist.
Ég vil að lokum þakka þjálfaran-
um fyrir það sem hann hefur gert
fyrir okkur í sumar og vetur, og vona
að þriðji flokkur haldi vel saman
næsta ár og þeir sem fara upp í ann-
an flokk vinni þar að heill og fram-
gangi flokksins. Ég er bjartsýnn með
3. fl., sem ég kveð nú, og annan flokk
sem ég flyzt í, og hef hug á því að
berjast um það að komast í liðið.
Kristinn
Bernburg
fyrirliði
3. fl. B
Það gekk yfirleitt ágætlega í okk-
ar flokki, en mótin voru dálítið rugl-
ingsleg, og hafa dregizt á langinn og
náð fram á skólatímann. í vor gekk
þetta vel og áttum við sterkan þriðja
flokk og jafnan. Munur á A og B hjá
okkur var lítill og oft unnum við
A-liðið á æfingum. Þegar í mótin kom
vorum við oftast við toppinn, en náð-
um þó ekki að sigra í móti. Mér
fannst að oft réði óheppni og voru
þetta yfirleitt ákaflega jafnir leikir.
1 haustmótinu vorum við í úrslit-
um við KR og töpuðum með 1:0.
KR-ingarnir voru sterkari og áttu
skilið að vinna og var vörn þeirra
sérstaklega sterk. Miðsumarsmótið
gekk svipað og hin mótin. Við töp-
uðum oftast ekki nema einum leik
og getur það talizt sæmileg frammi-
staða.
Andinn var góður í flokknum í
sumar, en mér finnst of fáir fundir,
ég held að það hafi verið aðeins tveir
fundir með flokknum á s.l. ári, og
það finnst mér of lítið. Ég held að
flokkurinn hefði gott af því að hitt-
ast t. d. einu sinni í viku og spjalla
um þessi mál. Ég held að drengirnir
séu yfirleitt sammála þessu.
Ég er ekki ánægður með árangur-
inn hjá meistaraflokki í sumar, og
ég er ekki heldur ánægður með æf-
ingarnar hjá þeim. Mér fannst of
mikið dúll í æfingunum, sérstaklega
í inniæfingunum sem ég sá. Fannst
þar of mikill leikaraskapur. Þetta er
flokkurinn sem á að koma mest út
úr og yfirleitt gert mest fyrir hann,
og það á að gera. Það var t. d. voða-
legt að sjá Val og Breiðablik keppa
um daginn og sjá, hve Valsmennirnir
voru slappir. Það var ömurlegt að
sjá það, að einn sóknarmaður hjá
Breiðabliki lék sér að því að leika
í gegnum alla vörnina og skora. And-
inn í liðinu hlýtur að hafa verið lé-
legur. Mér finnst, að Valur hafi það
góða aðstöðu, að það ætti að koma
meiri árangur hjá flokkunum og þá
sérstaklega meistaraflokki.
Lárus Loftsson var þjálfari flokks-
ins, og féll okkur mjög vel við hann,
enda hefur hann mikla reynslu.
Ég vildi svo að lokum óska þess
að Valur haldist lengi uppi og takist.
að efla félagslífið frá ári til árs. Það
mundi þýða meiri aðsókn að félag-
inu, betri félagsanda, betra félag.
Árni
Geirsson
fyrirliði
2. fl. A
Árni hefur komið fram í þessum
þætti og sagði þá frá fyrstu árum
sínum í Val og fleiru; nú segir hann
frá því, sem gerðist í öðrum flokki A
í sumar.
Ég or ánægður með annan flokk
í haustmótinu, því að það mót unn-
um við og miðað við það, að 6—7
menn úr öðrum flokki voru ekki not-
aðir mestan hluta sumarsins, þá var
frammistaðan góð, sem og heildar-
árangur. Þessir annars flokks menn
voru notaðir í meistaraflokki. Satt
að segja komumst við ekki í gang
fyrr en með haustinu. Að taka svona
marga úr öðrum flokki og veikja
hann á þennan hátt er ef til vill rétt-
lætanlegt ef stutt er á milli leikja í
meistaraflokki og menn því þreyttir,
en það voru oft hlé á milli leikja,