Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 55
VALSBLAÐIÐ
53
og ég held að það hafi verið jafn-
tefli 1:1.
Ég kveið svolítið fyrir að keppa
í fyrsta leiknum, ég var hræddur við
að ég mundi gera svo margar skyss-
ur. Ég var víst innherji og er það
oftast, held þó að ég hafi verið tvisvar
miðherji. Ég hef skorað þrjú mörk
og þegar ég skoraði fyrsta markið var
ég kominn inn fyrir alla, og var um
tíma hræddur um að ég mundi skjóta
fyrir utan, en boltinn fór rétt fyrir
innan markstöng og það varð mark.
Ég hef haft gaman af að keppa,
en ég held að leikurinn við Fram hafi
verið bezti leikurinn, sem við höfum
leikið í sumar.
Við unnum hann 4:2. í þeim leik
skoraði einn drengurinn mark beint
úr horni. Annað mark var líka gott,
það var skallað í bláhornið. Ég hef
ákaflega gaman að fara á æfingar
og mæti á þær allar ef nokkur mögu-
leiki er til þess.
Mér finnst félagslífið gott og
skemmtilegt og drengirnir eru
skemmtilegir og ágætir. Þeir eru
aldrei með rifrildi eða ósamkomulag.
Ég geri ráð fyrir að drengirnir æfi
vel í vetur. Ég er ánægður með Hörð
Hilmarsson sem þjálfara og svo finnst
mér hann góður leikmaður. Hann
lætur okkur æfa mikið leikni og
finnst mér gaman að því.
Ég ætla mér að æfa næsta sumar
og mér finnst allt í lagi hjá Val.
Guðmundur
Þorbjörnsson.
fyrirliði
4. fl. A
Guðmundur hefur áður komið í
þessum þætti, svo við rekjum ekki
fyrstu ár hans í Val, en snúum okk-
ur að síðasta sumri.
Enn kemur hann sem fyrirliði og
virðist því vel til forustu fallinn, en
hefur annars þetta að segja um sum-
arið í sumar:
Drengirnir æfðu vel í sumar og
ég hef heyrt, að það hafi verið 80%
mæting; er ég ánægður með það. Við
komumst í úrslit í íslandsmótinu, en
það er mikið mót, þar sem keppt er
í 6 riðlum um allt land og efsta lið í
hverjum riðli fer svo í úrslitakeppn-
ina. Þessum sex liðum er skipt í tvo
riðla. Með okkur í riðli voru: Akra-
nes og Þróttur frá Neskaupstað.
Fyrst kepptum við gegn Akranesi og
unnum 2:1 og síðan við Þrótt og unn-
um með 8:0. Hinn riðilinn unnu Vest-
mannaeyingar. Úrslitaleikurinn fór
svo fram á Melavellinum. Við skor-
uðum fyrsta markið, en þeir jöfn-
uðu. Svo bættum við einu marki við
fyrir leikhlé 2:1. í leikhléi var málið
rætt og ákveðið, að halda sömu leik-
aðferð; að sækja og berjast. Vor-
um vongóðir, en hræddir þó. Eyja-
menn jafna eftir 10 mínútur og nú
fór mér að detta í hug að við mund-
um tapa þessu, en eftir 5 mín. skor-
uðum við og tókum forustuna, en um
skeið leit út fyrir að það yrði dæmt
af þó dómarinn væri búinn að dæma,
en dómarinn talaði við línuvörðinn
og lét svo dóminn standa. Svo liðu
enn 5 mín. og þá skoruðum við fjórða
markið og þar við sat. Við urðum
ákaflega glaðir og mér fannst sér-
staklega gaman að vinna Islandsmót,
því hafði ég aldrei verið með í áður.
1 Reykjavíkur-mótinu vorum við
komnir í 2:0 í hálfleik í keppni við
KR, en töpuðum fyrir hálfgerðan
klauíaskap. Þeim tókst að jafna og
komast yfir, en þá jöfnuðum við 3:3,
og svo bæta KR-ingar einu marki við
og vinna. Eitt þessara marka varð
fyrir mistök, því að einn KR-ingur
stóð á línu óvaldaður og fékk lang-
an bolta og skallaði auðveldlega í
markið.
Það versta við þennan leik var það,
að hann fór fram kl. 10 að morgni
17. júní, og var enginn okkar í stemn-
ingu til að keppa.
Drengirnir voru mjög samrýmdir
og samhuga og þjálfarar okkar, þeir
Helgi Loftsson og Svanur Gestsson,
voru mjög góðir, fylgdust vel með
flokknum, hvöttu okkur vinsamlega
og spjölluðu við okkur fyrir leiki.
Ég er að miklu leyti ánægður með
sumarið, en þó hefði getað náðzt betri
árangur, en þetta var þó skemmti-
legt sumar. Við í 4. fl. A og B unn-
um Jóns-bikarinn með bezta árang-
ur í einum aldursflokki, innan félags-
ins, en það er eftirsóttur bikar.
Mér finnst að það mætti halda
fleiri fundi og á ég þar við að koma
saman í félagsheimilinu og rabba
saman og það spillir ekki að hafa
mjólk og kökur á borðum.
Ég er bjartsýnn með 4. flokk á
komandi sumri. Það er sama lið og
vann íslandsmótið í 5. fl. fyrir tveim
árum. Ég geng nú upp í þriðja flokk
á næsta ári og sé raunar eftir að
skilja við fjórða flokkinn og þá góðu
félaga sem þar eru og ég hef átt svo
margar ánægjustundir með. Að vísu
fylgist meiri hlutinn að, sem með mér
var í A-liði 4. fl. í sumar upp í þriðja
flokk. Það koma því margir þar til
greina, en ég verð að mæta því með
hörku og reyna að komast í liðið.
Er sem sagt ákveðinn í að halda
áfram og gera mitt bezta.
Ég er ánægður með starfið á Hlíð-
arenda og vona, að hægt verði að
auka æfingamöguleikana inni, ég held
að það sé orðin þörf fyrir það í flest-
um deildum félagsins. Vil svo að lok-
um hvetja alla knattspyrnumenn til
dáða á komandi sumri.
Ég hef víst verið 7 ára, þegar ég
byrjaði að sparka bolta og þá í skól-
anum. Fyrst var ég í Fylki, en gekk
í Val í fyrra og fór þá strax í 5. fl.
og byrjaði á innanhússæfingum og
fór svo að keppa um vorið. Ástæðan
til þess að ég fór í Val var sú, að
drengir, sem fluttu í Árbæjarhverfið,
voru í Val og æfðu áfram með Val,
og vildu vera þar, buðu mér einu sinni
að koma með sér á æfingu og gerði
ég það. Fór með þeim til að sjá
hvernig þetta væri. Mér fannst æf-
ingin skemmtileg og góð og hélt svo
áfram að sækja æfingar hjá Val.
Fyrsti leikur minn með Val var
æfingaleikur við Þrótt og var það
A-liðið sem keppti og hef ég svo keppt
með A-liðinu síðan.
Þennan leik unnum við 5:1. Mér
fannst ákaflega spennandi að keppa
klæddur Valsbúningnum. Ég byrjaði
sem bakvörður hægra megin, en svo
fór ég í framlínuna sem innherji. Mér
finnst skemmtilegra að vera í fram-
línunni, en að vera bakvörður. Fyrsta
markið, sem ég skoraði, var í leik
í Reykjavíkurmóti gegn Þrótti og var
það anzi skemmtilegt að sjá á eftir
boltanum inn í netið.
Eftirminnilegasti leikurinn, sem ég
hef leikið var með 5. fl. Þetta var
úrslitaleikur í riðlinum og unnum við
3:1. Þetta byrjaði með því að þeir
skoruðu fyrsta markið og leizt okkur
ekki á þetta, og svona gekk þetta all-
an fyrri hálfleikinn, að við gátum ekki
jafnað. En í síðari hálfleik byrjuð-
um við á því að skora. Svo leið góð
stund og þá var skorað aftur og þeg-
ar leikurinn var að verða búinn kom
þriðja markið.
Leiðinlegasti leikurinn, sem ég hef
leikið, var við Þrótt. Þeir byrjuðu
með því að skora, en mér tókst að
jafna. Svo tóku Þróttarar til við að
hlaða á okkur mörkum og þessi ósköp
enduðu með 8:2. Ég held að aðal-
ástæðan til þessa hafi verið sú, að