Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 17

Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 17
VALSBLAÐIÐ 15 höllinni. Þá er einnig rétt að geta þess, að m.fl. karla og kvenna svo og 2. fl. karla æfðu m.jög vel milli jóla og nýárs. Sumarstarfið. Sumarstarf deildarinnar var með mjög líkum hætti og s.l. ár, þó fengu flokk- arnir nokkuð lengri hvíld en í fyrra. í byrjun júnímánaðar hófust æfingarnar í m.fl. karla og kvenna og æfðu tvisvar til þrisvar í viku. Þá fékk stjórnin Guð- mund Harðarson til að sjá um og fylgj- ast með þrekástandi meistaraflokks karla. Hlaupið var úti, um Öskjuhlíð- ina, og síðan farið inn í sal og tekin svokölluð stöðvaþjálfun. Þrekpróf eða „TEST“ hafa svo verið tekin einu sinni í mánuði síðan og sér Guðmundur Harð- arson um þau. Boltaæfingar voru yfir- leitt sér, og sá Reynir um þá hlið máls- ins. Æfingar voru nokkuð vel sóttar, en dálítið heltist þó úr, er drengirnir fóru í sumarfrí o. þ. h. Þá æfði landsliðið eina viku í mánuði hverjum í sumar og tóku sex Valsmenn þátt í þeim og mættu vel þar. M.fl. og 2. fl. kvenna æfðu mjög vel yfir sumarmánuðina. Stefán Sandholt stjórnaði æfingunum og samdi sérstaka æfingaáætlun. Var þar eins og hjá pilt- unum mikið um hlaup úti, séræfingar fyrir markmenn, skotæfingar o. fl. Stúlk- urnar æfðu bæði úti og inni eftir því sem við átti og var mjög mikill áhugi hjá þeim allan tímann. íslandsmótið utanhúss var svo haldið helgina 28. og 29. ágúst í Njarðvíkum. Fenginn var bíll fyrir allan hópinn, til að efla liðsandann og hafa samastað meðan á mótinu stóð, og var þar ávallt mikil kátína alla ferðina. Islandsmótið utanhúss í 2. fl. kvenna fór fram á Húsavík dagana 20., 21. og 22. ágúst. Valur tók þátt i því. Flogið var norður á föstudagseftirmiðdag, en komið til baka á mánudagsmorgun. Far- arstjórar í þessari ferð voru Jón H. Karlsson þjálfari stúlknanna og Jón Pétur Jónsson. 3. fl. kvenna æfði einnig mjög vel í sumar og voru mætingar hjá þeim mun betri en í fyrra. Þjálfarar veturinn 1971—1972. Stjórn þeirri, sem lætur af störfum, þótti ekki annað koma til mála en að ráða þjálfara fyrir þetta keppnistíma- bil. Þó að stjórninni reyndist erfitt í fyrstu að fá fólk til þjálfunar, rættist þó úr og er ekki ástæða til annars en að halda að vel hafi til tekizt við ráðningu þjálfara. Stórvægilegar breytingar verða ekki á starfsliði deildarinnar, en nokkrar tilfærslur verða þó milli flokka og er það ekki nema eðlilegt. Reynir Ólafsson verður áfram með meistara- og I. flokk karla, en eins og fram kemur í skýrslum fyrri ára hafa piltarnir verið mjög ánægðir með hann, og er ekki nokkur vafi á því, að hann er bezti þjálfari, sem þeir hafa haft. Eins og áður segir tók Guðmundur Harðarson að sér þrekþjálfunina og að fylgjast með þjálfunarástandi piltanna og verður von- andi áframhald á því, þó svo að endan- lega hafi ekki verið frá því gengið. Þórarinn Eyþórsson verður áfram með 2. flokk karla, og fer það vel, þar sem drengirnir voru mjög ánægðir með hann. 3. flokk karla taka Stefán Bergsson og Þórður Sigurðsson að sér. 4. flokkur karla fær tvo nýja þjálf- ara, þá Örn Petersen og Gísla Haralds- son. Báðir nýir menn í starfi hjá deild- inni. Með 5. flokk karla verður Jóhann Ingi Gunnarsson, sem nú tekur í fyrsta skipti að sér þjálfun, og með honum verður Kristján Þorvalds. Meistara- og I. flokkur kvenna halda sínum þjálfara frá því í fyrra, Stefáni Sandholt. Með 2. flokk kvenna verður Geirarður Geirarðsson, en hann hefur þjálfað s.l. tvö ár hjá deildinni. Með 3. flokk kvenna verða þær Sigur- jóna Sigurðardóttir og Bergljót Davíðs- dóttir. Sem betur fer eru ekki margir þjálf- arar, sem nú hverfa frá störfum, aðeins fjórir. Þeir eru: Stefán Gunnarsson, Jón H. Karlsson, Soffía Guðmunds- dóttir og Hákon Guðmundsson, og stjórn- in færir þeim beztu þakkir fyrir vel unnin störf, og vonar að þau láti sem fyrst sjá sig aftur í starfi við þjálfun- ina. Nýju þjálfarana: Bergljótu Davíðs- dóttur, Örn Petersen, Gísla Haraldsson, Jóhann Inga Gunnarsson og Stefán Bergsson, bjóðum við velkomin til starfa og vonum að þeim megi vel líka og þau megi njóta mikillar ánægju við þjálf- arastörfin. Meistaraflokkur karla. I Reykjavíkurmóti 1970 urðu þeir nr. 2, skoruðu 78 mörk gegn 57, og hlutu 8 stig. í íslandsmóti innanhúss 1971, I. deild, urðu þeir nr. 2, eftir úrslitaleik við F. H., sem tapaðist 10—12. í mótinu sjálfu skoruðu þeir 198 mörk, en fengu á sig 169 mörk, og hlutu 16 stig. í íslandsmóti utanhúss 1971, léku þeir í A-riðli og urðu nr. 3 í riðlinum með 4 stig, skoruðu 72 mörk gegn 68. Valur tók þátt í hraðmóti H. K. R. R., og lenti liðið gegn Ilaukum í fyrstu umferð og var sleginn út með 12 mörkum gegn 10. Liðið tók einnig þátt í hraðmóti vegna 40 ára afmælis Hauka. Lentu þeir enn einu sinni gegn Haukum, og töpuðu. Valur lék gegn Danmerkurmeisturun- um 1971, Efterslægten, sem kom á veg- um H. K. R. H. Efterslægten vann leik- inn 16 gegn 11. 1 haust lék liðið tvo aukaleiki við F. H. Sá fyrri var fjáröflunarleikur vegna þátttöku F. H. í Evrópukeppninni, og vann Valur 21 gegn 14. Síðari leikurinn var á 60 ára afmælisleikkvöldi Vals og tapaðist sá leikur 21—18. Liðið lék einnig gegn danska I. deild- arliðinu Árhus K. F. U. M., sem var hér í boði Vals. Sigruðu þeir Danina með 23 mörkum gegn 18. 1. flokkur karla: 1 Reykj avíkurmóti 1970, urðu þeir nr. 3, skoruðu 33 mörk gegn 28, og hlutu 8 stig. 1 íslandsmóti 1971 urðu þeir nr. 3, skoruðu 54 mörk gegn 54, og hlutu 6 stig. 2. flokkur karla. Þeir urðu Reykjavíkurmeistarar 1970, skoruðu 34 mörk gegn 26, og hlutu 8 stig. I íslandsmóti 1971 urðu þeir nr. 4, í Reykjavíkurriðli, skoruðu 51 mark gegn 44, og hlutu 5 stig. Þeir léku forleik vegna heimsóknar Árhus K. F. U. M. gegn Fram, og töp- uðu 11 gegn 12. 3. flokkur karla: 1 Reykjavíkurmóti 1970, lentu þeir í 5. sæti, skoruðu 38 mörk gegn 51, og hlutu 4 stig. 1 íslandsmóti 1971 urðu þeir næst- neðstir í Reykjavíkurriðli, skoruðu 55 mörk gegn 57, og hlutu 3 stig. Þeir léku forleik vegna heimsóknar Árhus K. F. U. M., við Víking, og töpuðu 9 gegn 10. 4. flokkur karla: I Reykjavíkurmóti 1970, urðu þeir í 4. sæti, skoruðu 11 mörk gegn 18, og hlutu 3 stig. I íslandsmóti 1971, urðu þeir í 3. sæti í Reykjavíkurriðli, skoruðu 58 mörk gegn 26, og hlutu 9 stig. Meistaraflokkur kvenna: I Reykjavíkurmóti 1970 urðu þær nr. 3, skoruðu 21 mark gegn 15, og hlutu 5 stig. 1 íslandsmóti innanhúss 1971, I. deild, urðu þær nr. 1, skoruðu 130 mörk gegn 79, og unnu alla sína leiki, nema einn, sem varð jafntefli. 1 íslandsmóti utanhúss 1971, léku þær í B-riðli, og unnu alla sína leiki, og skor- uðu 43 mörk gegn 15, og hlutu 6 stig. Léku til úrslita við U. M. F. N., og sigr- uðu með 9 mörkum gegn 5, og urðu því íslandsmeistarar utanhúss 1971. Á afmæliskvöldi Vals léku þær við Ármann, og sigruðu 16—5. Þær léku einnig- forleik vegna heim- sóknar Árhus K. F. U. M., gegn úrvals- liði H. S. I., og sigruðu með yfirburð- um 1. flokkur kvenna: í Reykjavíkurmóti 1970, urðu þær nr. 1, skoruðu 7 mörk gegn 6, og hlutu 2 stig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.