Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 16
14
VALS BLAÐIÐ
Frá aðaUundi
knattspyrnudeildar
Itans liaAianadsson hasinn
forntaður
Aðalfundur knattspyrnudeildar Vals
var haldinn 13. jan. s.l. Fundarstjóri var
Þórður Þorkelsson og' fundarritari
Mag-nús Ólafsson. Fjölmennt var á fund-
inum og töluverðar umræður um skýrslu
stjórnar og reikninga. Mest var rætt um
starf þjálfaranna, og voru allir á einu
máli um að samstarf þeirra og stjór.nar-
innar væri ekki nógu mikið. Þeir þyrftu
bæði meiri aðstoð og meira aðhald frá
stjórninni. Nokkuð var rætt um þá ný-
breytni að hafa tvo þjálfara hjá meist-
ara og 1. flokki. Allir voru sammála
um, að það væri rétt leið, þó að tilraunin
í sumar hefði ekki tekizt eins vel og
menn hefðu vonað.
Ný stjórn var kosin, og eru í henni
eftirtaldir menn:
Formaður Hans Guðmundsson, og með
honum Elias Hergeirsson, Gísli Þ. Sig-
urðsson, Magnús Ólafsson og Svanur
Gestsson. Varamenn eru Steindór Hjör-
leifsson, Halldór Einarsson og Sigurður
Halldórsson. Fráfarandi stjórn voru
þökkuð hennar störf, og þá einkum gjald-
keranum, Gísla Þ. Sigurðssyni fyrir frá-
bæra frammistöðu. Reikningar deildar-
innar sýndu mjög góðan fjárhag og
mikla eignaaukningu. Stærstu tekjulið-
irnir eru af sölu getraunaseðla og hagn-
aður af leikjum Vals í 1. deild, en helzti
útgjaldaliðurinn er laun þjálfaranna.
Búið er að ráða þjálfara fyrir þetta ár,
og eru þeir þessir:
Meistaraflokkur: Óli B. Jónsson,
2. flokkur: Lárus Loftsson og honum
til aðstoðar Guðlaugur Björgvinsson,
3. flokkur: Helgi Loftsson og honum
til aðstoðar Svanur Gestsson,
4. flokkur: Róbert Jónsson,
5. flokkur: Smári Stefánsson og
Júgóslavinn Stanojev Krsta.
Ur skýrslu
handknattleiksdeildar
Óhætt ei' að segja, að æfingar hafi
verið mjög vel sóttar og stundum of vel
sóttar, 60—70 manns á 100 mln. æfingu,
veitir ekki mikla möguleika til kennslu.
Flokkarnir æfðu mjög svipað og und-
anfarin ár, þó bættist 3. fl. kvenna ein-
um tíma við, þannig að æfingatímar í
viku hverri urðu 22 í stað 21 árið áður,
og mínútufjöldinn varð 950 í stað 900
mín á viku árið áður. Stjórn deildarinn-
ar hefur á s.l. ári unnið mjög mikið að
því að auka tímafjölda yngstu og fjöl-
mennustu flokkanna, en erfitt hefur
reynzt að fá nokkra tíma, enda þótt
þörfin verði brýnni ár frá ári. Þá má
geta þess, að tekizt hefur að skapa m.fl.
kvenna aðstöðu til æfinga í Laugardals-
Fagnandi foringi með verðlaunin. bikarinn, konu og dóttur.
Innanhússmeistarar Vals 1971:
Frá vinstri: Bergsveinn Alfonsson, Ingvar Elísson, Hörður Hilmarsson, Sigurður
Jónsson, Ingibjörn Albertsson, Jóhannes Eðvaldsson, Árni Geirsson, Sigurður Jónsson
og Þórir Jónsson.
Haustmót:
Valur varð nr. 2 í B-riðli með 4 stig.
Setti 13 mörk gegn 5. Leikir Vals:
Valur—Víkingur 2—4, Valur—Ármann
8—1, Valur—Fylkir 3—0.
5. flokkur C:
Reykjavíkurmót:
Valur varð nr. 5, hlaut 3 stig. Skoruð
voru 5 mörk gegn 7. Leikir Vals:
Valur—Fylkir 1—1, Valur—Þróttur
3—1, Valur—Víkingur 0—2, Valur—
Víkingur 0—2.
Miðsumarsmót:
Valur sigraði í A-riðli með 3 stigum
en tapaði í úrslitaleik. Mörk 3 gegn 4.
Leikir Vals:
Valur—Fram 1—1, Valur Fram ?—?,
Valur Víkingur 3—2.
Haustmót:
Valur varð nr. 2 í B-riðli og hlaut 2
stig. Skoruð voru 3 mörk gegn 3. Leikir
Vals:
Valur—Víkingur 0—3, Valur—Fylkir
3—0.
Mtí