Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 21
VALSBLAÐIÐ
19
Þarna hefur örn Hallsteinsson snúið á „mulningsvélina“ í úrslitaleik
Islandsmótsins 1971.
Eins og fram kemur í skýrslunni, hef-
ur mikið verið starfað og árangur góður,
þó að menn séu aldrei ánægðir, og það
er eins og það á að vera. Til þess að ná
miklum árangri verður hver og einn fé-
lagsmaður að krefjast starfs af sjálf-
um sér, þá lætur árangurinn ekki á sér
standa. Handknattleiksdeild Vals hefur
oft átt marga slíka. — F. H.
Frá aðalfundi
handknattleiksdeildar
Viivarinn Eyþórsson kosinn
formaður
Skýrslu stjórnarinnar flutti Guðmund-
ur Frímannsson formaður deildarinnar
og gat þar helztu atriði sem á döfinni
voru hjá stjórn deildarinnar á liðnu
starfsári.
Þá las Stefán Bergsson, í forföllum
gjaldkera, reikninga deildarinnar.
Urðu nokkrar umræður um skýrslu og
reikninga deildarinnar, og sýndu reikn-
ingarnir að afkoma var allgóð.
Snerust ræður einnig mikið um fé-
lagslífið og hvað þyrfti að gera til þess
að það yrði fjölbreytilegt, og þannig að
það þjappaði fólkinu saman á glöðum
stundum, þar sem það gæti kynnzt betur,
orðið betri félagar utan vallar sem innan.
Guðmundur Frímannsson baðst und-
an endurkosningu sem formaður, en í
hans stað var kosinn Þórarinn Eyþórs-
son.
Aðrir í stjórn voru kjörnir: Guð-
mundur Frímannsson, Þórður Sigurðs-
son, Stefán Bergsson og Sigurjóna Sig-
urðardóttir.
í varastjórn voru kosnir: Birgir Harð-
arsson, Jafet Ólafsson og Geirarður
Geirarðsson. Þá voru kosnir 15 fulltrúar
á aðalfund Vals og 10 til vara.
Á fundinn kom Tómas Á. Tómasson
framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar Egill
Skallagrímsson, og var gert fundarhlé
á meðan hann ræddi við félagsmenn um
hin nýju samskipti Vals og Ölgerðarinn-
ar. Kom hann á ýmsan hátt færandi
hendi, og þakkaði formaður félagsins
honum komuna.
Fundarstjóri var Þórður Þorkelsson
og fundarritari Kristján Þorvaldsson.
fJr skýrslu
badmintondeildar
Starf deildarinnar var með líku sniði
og undanfarin ár, deildin hafði að mestu
sömu tima og árið áður. Þó fækkaði um
einn tíma á laugardögum, þar sem mæt-
ing í sameiginlegum tíma árið áður
hafði verið illa nýttur. Tímarnir á
sunnudögum nýttust mjög illa, enda var
þeim sleppt nú í haust er starf hófst að
nýju. Það hefur komið fram áður, að
tímar deildarinnar eru á mjög óhentug-
um tíma. Hefur það gert það að verk-
um að tímum deildarinnar hefur farið
mjög fækkandi, þar sem deildin hefur
orðið að hætta við þá tíma, sem verst
hefur verið að leigja út. Meðan deildin
fær ekki fleiri tíma til ráðstöfunar á
nothæfum tíma, er ekki hægt að auka
starfsemi hennar, sem nokkru nemur.
Opið badmintonmót var haldið í til-
efni sextíu ára afmælis félagsins. Var
það A-flokksmót bæði einliðaleikur og
tvíliðaleikur. Þátttaka í mótinu var góð.
Sigurvegari i einliðaleik varð Sigurður
Haraldsson, TBR. Sigraði hann Jón
Gíslason, TBR. Sigurvegarar í tvíliða-
leik urðu Sigurður Haraldsson og Jón
Gíslason, TBR.
Átta unglingar fóru til Akureyrar, til
þátttöku í unglingameistaramóti íslands,
á vegum deildarinnar. Fararstjóri var
Rafn Viggósson. Árangur sumra þeirra
var nokkuð góður, en enginn vannst þó
meistaratitillinn, þó til úrslitaorrustu
hefði komizt í nokkrum greinum.
Hið árlega innanfélagsmót var haldið
að venju og var þátttaka í því mjög góð.
Sigurvegarar í mótinu urðu þeir Helgi
Benediktsson og Stefán Sigurðsson, unnu
þeir í úrslitaorrstu þá Elías Hergeirs-
son og Þorvald Jónasson.
Þjálfari yngri flokka var áfram Rafn
Viggósson, og þakkar stjórnin honum
ágæt störf. Sér í lagi þar sem stuðning-
ur stjórnarinnar hefur verið með lak-
asta móti, í uppbyggingu unga fólksins.
Er það von okkar, að næsta stjórn, sem
við tekur, reyni að bæta um, og efla ung-
lingastarfið, svo að badmintondeild Vals
verði stórt nafn í badmintoníþróttinni.
Við eigum efniviðinn, t. d. nöfn eins
og: Helgi, Ragnar, Stefán, Einar, Hrólf-
ur, og fleiri mætti nefna.
Fulltrúi Vals í BSl var Örn Ingólfs-
son, en nú á síðasta þingi var kjörinn
i hans stað Kristján Ingólfsson. Stjórn
deildai'innar vill hér koma á framfæri
sérstöku þakklæti til húsvarðar, Gísla
Sigurðssonar, fyrir stuðning hans og
hjálpsemi við deildina.
Frá aðalfundi
badmintondeildar
fiísii (inóiiinnilsstni kosinn
formaður
Aðalfundur Badmintondeildar Vals
var haldinn í félagsheimilinu 8. des. Við
það tækifæri flutti formaður deildar-
innar, Örn Ingólfsson, skýrslu stjórn-
rainnar, og ennfremur voru reikningar
henriar lesnir af gjaldkera, Gylfa
Felixsyni.
Nokkrar umræður urðu um skýrslu og
reikninga deildarinnar. Annars var
fundurinn heldur fámennur.
Á fundinum var ennfremur rætt um
nauðsyn þess, að fá fleiri æfingatíma
fyrir deildina, og var stjórninni falið
að athuga það mál við rétta aðila.
Þá var það upplýst á fundinum, að
Badmintonsamband íslands ætlaði að
efna til námskeiðs fyrir badminþjálf-
ara, milli jóla og nýárs, og var um það
rætt að Valur reyndi að senda þangað
menn og stjórninni falið að undirbúa
það mál.
Stjórnarkjör fór þannig, að nýr for-
maður var kjörinn, Gísli Guðmundsson,
og meðstjórnendur voru kjörnir: Gylfi
Felixson, Kristján Ingólfsson, Helgi
Benediktsson og Þórður Guðmundsson.
Meðstjórnendur voru kjörnir: Ragnar
Ragnarsson, Stefán Sigurðsson og Hrólf-
ur Jónsson.
Talsverður áhugi var á fundinum
fyrir málefnum deildarinnar, og áhugi
fyrir þvi að ná meira lífi í hana en verið
hefur.
Fundarstjóri var Þórður Þorkelsson
og fundarritari Ormar Skeggjason.