Valsblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 13
VALSBLAÐIÐ
11
og þá einkum það' sem að aðalstjórn-
inni veit. Vissulega eru ærin umsvif
í svo margþættu félagsmálastarfi,
sem einkennir Val og sem sí og æ með
ári hverju verða meiri og meiri.
Innan Vals starfa 5 íþróttadeildir,
sem að vetrinum þurfa 50 tíma til æf-
inga í íþróttahúsi félagsins og dugir
hvergi nærri, heldur varð að bæta
10 tímum við annars staðar.
E. B.
l r skýrslu
knattspyrnudeildar
Stjórnin:
Stjórnin, sem nú skilar af sér störf-
um, var kosin á aðalfundi deildarinnar
í nóv. 1970.
Formaður var kosinn Sigurður Mar-
elsson. Aðrir stjórnarmeðlimir skiptu
þannig með sér verkum: Björn Carlsson
varaform., Gísli Þ. Sigurðsson gjald-
keri, Þorsteinn Friðþjófsson ritari og
Svanur Gestsson meðstjórnandi. Vara-
stjórn: Magnús Olafsson, Lárus Og-
mundsson og Guðjón Guðmundsson.
Varamenn voru boðaðir á stjórnarfundi.
Haldnir voru 18 bókaðir fundir.
Fulltrúar:
K.R.R., aðalfulltrúi Elías Hergeirsson,
til vara Iíóbert Jónsson.
Æfingar og þjálfun:
Meistaraflokkur: Árni Njálsson var
ráðinn þjálfari, en hann lét af störfum
strax í febrúar af persónulegum ástæð-
um, og olli það miklum vonbrigðum. I
hans stað komu þeir Hreiðar Ársælsson
og Róbert Jónsson, og þjálfuðu þeir
cinnig 1. flokk.
Þjálfarar yngri flokkanna:
2. flokkur: Þorsteinn Friðþjófsson.
3. flokkur: Lárus Loftsson með Guð-
laug Björgvinsson til aðstoðar.
4. flokkur: Helgi Loftsson með Svan
Gestsson til aðstoðar.
5. flokkur: Þorsteinn Marelsson byrj-
aði en varð að hætta vegna veikinda.
Hörður Hilmarsson og Smári Stefáns-
son tóku þá við. Æfingasókn var góð
í öllum flokkum, og margir æfingaleikir
háðir bæði úti og inni.
Árangur í mótum (ágrip) :
Meistaraflokkur: í Reykjavíkurmóti í
öðru sæti með 6 stig, í Islandsmóti nr.
4—5 með 14 stig, í Bikarkeppni sigruðu
Völsunga, Húsavík 1—0, en töpuðu fyr-
ir Breiðablik 1—2.
í knattspyrnu innanhúss sigraði flokk-
urinn bæði í íslandsmóti og Reykjavíkur-
móti.
Yngri flokkarnir sigruðu í eftirtöld-
uni mótum:
2. flokkur A: Haustmót.
2. flokkur B: Reykjavíkur- og
miðsumarsmót.
3. flokkur: A: Haustmót.
3. flokkur B: Miðsumarsmót.
4. flokkur A: íslandsmót.
4. flokkur B: Reykjavíkur- og
miðsumarsmót.
5. flokkur A: Haustmót.
Alls voru send 11 lið til keppni í 34
mótum.
Ivvennaknattspyrna:
Innanhússmót í knattspyrnu kvenna,
það fyrsta hér á landi, fór fram um
páskana. Valsstúlkur tóku þátt í þessu
móti, sem var með úrsláttarfyrirkomu-
lagi, og töpuðu sínum fyrsta leik. Um
það má segja, að fall sé fararheill, og
betur muni takast til í næsta skipti.
Ferðalög innanlands:
Vegna þátttöku í landsmótum var far-
ið á eftirtalda staði:
Meistaraflokkur: Vestmannaeyjar,
Akranes, Keflavík og Akureyri.
2. flokkur: Vestmannaeyjar.
3. flokkur: Vestmannaeyjar, Garður.
4. flokkur: Sandgerði.
Meistaraflokkur lék á Húsavík í Bik-
arkeppni, á Akureyri minningarleik um
Jakob Jakobsson, 1—1, og æfingaleik í
Vestmannaeyjum, 2—2.
5. flokkur fór í eins dags ferð austur
fyrir fjall og lék á Selfossi.
I landsleikjum léku:
Ingi Albertsson og Jóhannes Eðvalds-
son, sem voru þar nýliðar, og Hermann
Gunnarsson.
Valsdagurinn 1971:
Valsdagurinn var að þessu sinni ekki
fyrr en 12. sept. Eins og áður komu þá
margir gestir að Hlíðarenda til að kynn-
ast félagsstarfinu. Á þessum degi eru
yngri flokkar félagsins fyrst og fremst
í sviðsljósinu, en að þessu sinni komu
meistaraflokkarnir einnig fram, og gerði
það daginn ennþá eftirminnilegri.
Getraunir:
Sala á getraunaseðlum hefur talsvert
aukizt, og er þessi starfsemi orðin einn
veigamesti þátturinn í fjáröflun deild-
arinnar. Gjaldkerinn, Gísli Þ. Sigurðs-
son, hefur haft yfirumsjón með þessu
mikla og vandasama starfi, en fjöldi
Valsmanna hefur einnig lagt hö.nd á
plóginn.
í Faxaflóaúrvali unglinga,
sem keppti í Skotlandi við góðan orðstír,
léku Grímur Sæmundsson og Ólafur
Magnússon.
Jónsbikarinn
verður nú afhentur í 8. sinn og hlýt-
ur hann 4. flokkur.
Fundir:
Nokkrir fundir voru haldnir með
flokkunum eins og áður. I lok keppnis-
tímabilsins voru síðan haldnir „upp-
skeruhátíðir“, þar sem sigurvegarar úr
mótum hlutu viðurkenningar.
Iþróttamiðstöðin:
Meistaraflokkur dvaldi á Laugarvatni
23.—25. júlí, ásamt nokkrum piltum úr
2. flokki, og 4. flokkur 25.—30. júlí. Voru
þessar ferðir bæði til gagns og gamans.
Islandsmeistarar í 4. fl.
Aftasta röð f. v.: Helgi Loftsson, þjálfari, Hilmar Oddsson, Sverrir Gestsson, Ólafur
Iíunólfsson, Þorsteinn Runólfsson, Björn Jónsson, — Miðröð f. v.: Atli Ólafsson,
Guðmundur Kjartansson, Karl Björnsson, Óttar Sveinsson, Bjarni Harðarson. —
Fremsta röð f. v.: Pétur O. Gunnarsson, Albcrt Guðmundsson, Atli Eðvarðsson og
Guðmundur Þorbjörnsson, fyrirliði.