Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 8
6
VALSBLAÐIÐ
Fleiri en 200 leiki:
Árni Njálsson,
Sigurður Ólafsson.
Þorsteinn Friðþjófsson,
150—200 leiki:
Ellert Sölvason,
Sveinn Helgason,
Hermann Hermannsson,
Halldór Halldórsson,
Gunnar Gunnarsson,
Einar Halldórsson.
100—150 leiki:
Bergsteinn Magnússon,
Bergsveinn Alfonsson,
Björgvin Daníelsson,
Björgvin Hermannsson,
Björn Júlíusson,
Elías Hergeirsson,
Frímann Helgason,
Geir Guðmundsson,
Guðbrandur Jakobsson,
Gunnar Sigurjónsson,
Hafsteinn Guðmundsson,
Halldór Einarsson,
Hermann Gunnarsson,
Ingvar Elísson,
Magnús Snæbjörnsson,
Matthías Hjartarson,
Ormar Skeggjason,
Reynir Jónsson,
Sigurður Dagsson.
Fyrir 10 ár í mfl.:
Agnar Breiðfjörð,
Björgúlfur Baldursson,
Grímar Jónsson,
Guðmundur Sigurðsson,
Hólmgeir Jónsson,
Jóhann Eyjólfsson,
Jóhannes Bergsteinsson,
Jón Eiríksson,
Magnús Bergsteinsson,
Óskar Jónsson.
Allar þessar knattspyrnu-kempur
hlutu nýjan verðlaunagrip, sem fram-
vegis verður afhentur þeim, sem leika
100 leiki í meistaraflokki, og er grip-
urinn eftir Friðrik Friðleifsson mynd-
Þeir höfðu 200 Ieiki að baki og vel það,
og fengu verðskuldað bikar í heiðurslaun.
Sigurður Ólafsson tv. og Þorsteinn
Friðþjófsson t.h.
skera. Hetjurnar þrjár, sem leikið
hafa yfir 200 leiki, fengu einnig veg-
lega silfurbikara.
Afmœlisleikir 'í
knattspyrnu
Afmælismót var haldið í Laugar-
dalshöllinni í knattspyrnu innanhúss
og sigruðu Keflvíkingar. Einnig voru
leiknir afmælisleikir í öllum flokkum
á Valsvellinum í maí. Aðal-afmælis-
leikurinn fór fram á Laugardalsvelli
29. júlí við landsliðið, sem sigraði
4:0. Allir, sem tóku þátt í þessum
afmælisleikjum, fengu skjöl til minja
um þátttöku.
Á afmælishátíð félagsins s.l. vetur
heiðraði Knattspyrnudeild Vals 39
menn, sem leikið hafa flesta leiki í
meistaraflokki. Um þessa menn má
með sanni segja, að þeir hafa borið
hita og þunga hinna liðnu ára, í fyrsta
lagi úti á knattspyrnuvellinum, og
síðan margir þeirra einnig í stjórnar-
störfum og í ýmsum framkvæmdum
félagsins. Listi yfir þessa menn fylg-
ir hér með.
Heimsókn
Brumunddalen
Einn liður í hátíðahöldum, vegna
60 ára afmælis Vals, var heimsókn
2. flokks norskra pilta frá þessu fé-
lagi og dvöldu þeir hér frá 1. til 17.
júlí. Dagskrá heimsóknarinnar var í
stuttu máli þessi:
Fyrstu dagana dvöldu þeir í Reykja-
vík, skoðuðu borgina og nágrenni,
heimsóttu Norræna húsið, komu á
söfn og ýmsa merkilega staði.
Fyrsta kappleikinn léku þeir við
Fram og sigruðu 1:0, en þann næsta
léku þeir við KR og töpuðu 1:3. Eftir
það var farið upp á Akranes og komið
við í Vatnaskógi í boði KFUM. Uppi
á Skaga voru frábærar móttökur, en
heimamenn gáfu ekkert eftir á vell-
inum og sigruðu 4:1.
Því næst var farið austur yfir fjall
og fyrst stanzað á Þingvöllum. Síðan
ekið til Laugarvatns, Geysis og að
Gullfossi. Á heimleið var komið við
í Skálholti og Hveragerði. Á þessu
sólríka sumri var þessi dagur einn
mesti rigningardagurinn, og skyggði
það nokkuð á ferðina.
Næsti áfangastaður Norðmann-
anna var Vestmannaeyjar, en þar
voru þeir gestir IBV. Þrátt fyrir tap
fyrir Eyjamönnum 0:5, var ferðin
mjög ánægjuleg.
Síðasti kappleikur þeirra var svo
á Laugardalsvellinum við gestgjafa
sína Val. í þessum leik lék 2. flokk-
ur Vals með sínu sterkasta liði, en
fjórir piltar höfðu nærri eingöngu
leikið með meistaraflokki í stað þess
að keppa með sínum jafnöldrum. Val-
ur sigraði í leiknum með 3:0.
Norðmennirnir gistu í félagsheim-
ilinu og fengu þar morgunverð, en
borðuðu annars á heimilum jafnaldra
sinna í Val.
Knattspyrnudeildin þakkar öllum
þeim, sem aðstoðuðu við móttökur
flokksins, ekki sízt Anitu húsmóður
að Hlíðarenda.
Ákveðið er, að 2. flokkur Vals end-
urgjaldi heimsóknina og fari til Nor-
egs næsta sumar.
Skrá yfir nöfn þeirra, sem voru í
flokknum frá Brumunddalen, sem
„Valsmenn léttir í lund“, var orð að sönnu í afmælishófinu á Borg s.l. vetur. Þeir
sem þarna taka Iagið eru: Frá vinstri: Jóhann Eyjólfsson, Þorkell Ingvarsson, Guð-
brandur Jakobsson, Geir Guðmundsson, Magnús Snæbjörnsson, Ellert Sölvason,
Hrólfur Benediktsson, Albert Guðmundsson, Sigurður Ólafsson, Hermann Hermanns-
son og Frímann Helgason.