Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 20

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 20
18 VALSBLAÐIÐ 3. sæti, skoruðu 17 mörk geg-n 15, og hlutu 7 stig. I íslandsmóti 1971, urðu þær í 3. sæti í Reykjavíkurriðli, skoruðu 26 mörk g-eg-n 15, og hlutu 9 stig. Aðsókn að mótinu var mjög slæm, enda var veðrið afleitt flesta mótsdag- ana, rigning og rok, og oft mjög dimmt yfir, þannig að erfitt var oft að sjá boltann. Fjárhagsleg útkoma úr mótinu var í samræmi við aðsóknina. Stjórnin vill þakka Þórarni og meðnefndarmönn- um hans frábær störf, sem þeir inntu á mótinu í alls konar veðrum, og létu eng- an bilbug á sér finna. Heimsókn Árhus K. F. U. M. Dagana 5. til 9. nóvember dvaldi hér í boði handknattleiksdeildar Vals danska I. deildarliðið Árhus K. F. U. M. í tilefni 60 ára afmælis Vals fyrr á þessu ári. Lék það hér þrjá leiki gegn Val, F. H. og úrvalsliði H. S. í. Fóru leikar þann- ig, að liðið tapaði tveimur fyrstu leikj- um sínum gegn Val með 23—18 og með 17—-15 gegn F. H., en tókst að sigra úrvalslið H. S. 1. með 20 mörkum gegn 19. Danirnir rómuðu mjög dvöl sína þennan stutta tíma, sem þeir dvöldu á Islandi, enda reyndi móttökunefndin að gera allt til að ferð þessi tækist sem bezt. Var meðal annars farið með þá á Þingvelli og reynt að koma þeim í út- reiðartúr (pá hesteryg), sem því miður mistókst, þar sem ekki var hægt að út- vega hesta. íþróttaráð Reykjavíkur sýndi gestunum þá vinsemd, að bjóða þeim ásamt móttökunefnd í hádegis- verðarboð á Hótel Sögu, en handknatt- leiksdeild Vals hélt þeim síðasta kvöld- ið lokahóf með „Smörrebröd og öl“ að Hótel Loftleiðum. Mestan þátt í að heim- sókn þessi varð möguleg átti Bjarni Jóns- son, en hann dvelur sem kunnugt er um þessar mundir í Árhus við nám í tækni- háskóla þar og æfir og leikur með I. deildarliði Árhus K. F. U. M., var hann milligöngumaður Vals og Árhús K. F. U. M., meðan samningar um ferð þessa stóðu yfir. Ferðalög Meistaraflokkur karla fór í keppnis- ferð til Akureyrar í lok októbermánað- ar í boði K. A. Farið var norður á laug- ardagsmorgni og leikið um eftirmiðdag- inn við K. A. Valur sigraði í þeim leik með 29 mörkum gegn 13. Á sunnudags- morgun var svo létt æfing og farið í laugina á eftir. Eftir hádegið var svo leikið aftur við K. A. og sigraði Valur í þeim leik nú með 28 mörkum gegn 13. Ferðin tókst mjög vel í alla staði, og var Val til mikils sóma, enda mikið lagt upp úr því að hún yrði leikmönnum til gagns og ánægju. Fararstjórar í þessari ferð voru Reynir Ólafsson, Jón Kristjánsson og Guðmundur Harðarson. Á fundi með meistaraflokki kvenna nú í sumar, sýndu þær því mikinn áhuga að takast á hendur utanferð, svipaða og þær fóru sumarið 1964. Hafa stúlkurn- ar nú þegar hafið fjársöfnun að fyrir- hugaðri ferð, sem vonandi getur orðið að veruleika. Ýmislegt Eins og öllum er kunnugt fór félagi okkar Bjarni Jónsson til Danmerkur til náms. Áður en hann hélt utan hafði hann gert samning við danska I. deildarliðið Árhus K. F. U. M., að leika með þeim meðan hann dveldist ytra. Stjórn deild- ai'innar ásamt meistaraflokki karla hélt honum kaffisamsæti í Valsheimilinu og voru þar haldnar margai' ræður honum til heiðurs. Stjórnin óskar Bjarna góðs gengis í Danaveldi. Ekki var Bjarni fyrr farinn, en Val bættist nýr liðsmaður í hópinn frá Akureyri. Var þar kominn Gísli Blöndal fyrrum leikmaður með K. A. og þar áður með K. R. Stjórnin vill ekki láta hjá líða að bjóða Gísla velkominn í Val og vonar að honum líki vel í herbúðum okkar. Stuttu síðar bætt- ist meistaraflokki kvenna góður liðs- styrkur frá Húsavík, þær Björg Jóns- dóttir og Hulda Magnúsdóttir, sem áð- ur léku með Völsungum. Stjórnin vill einnig bjóða þær velkomnar í „Valkyrju- hópinn“ og vonar að þeim líki vel starfið hjá Val. Eitt er það mál, þar sem Valur stend- ur mjög höllum fæti, en það er hve fáir dómarar eru starfandi á vegum Vals. Aðeins einn milliríkjadómari og þrír héraðsdómarar og þar af tveir utanbæj- armenn. Allir sjá að hér þarf mikilla úr- bóta við, því að án dómara verður enginn handknattleikur leikinn. Það þarf því mjög að vera til athugunar hjá næstu stjórn að koma þessum málum í betra horf. Á 60 ára afmælishófi á Hótel Borg í apríl s.I., var Bergi Guðnasyni afhent viðurkenning fyrir 200 leiki í meistara- flokki karla og' Björgu Guðmundsdótt- ur fyrir 100 leiki í meistaraflokki kvenna. Stjórn deildarinnar óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn. Að lokum vill stjórnin minnast tveggja manna sem starfað hafa frábærlega fyrir handknattleikinn í Val, svo að segja á hverjum einasta degi síðastliðið ár. Það eru að sjálfsögðu þeir Þórarinn Eyþórs- son og Jón Kristjánsson. Við vitum öll að handknattleikurinn í Val stendur í mikilli þakkarskuld við þessa menn, sem ávallt hafa verið reiðubúnir að rétta okkur í stjórninni hjálparhönd og stutt við bakið á okkur á erfiðum tímum. Vill stjórnin þakka þeim sérstaklega vel unn- in störf um leið og við vonum að við meg- um njóta starfskrafta þeirra um ókom- in ár. Lokaorð Kæru félagar! Við viljum að lokum þakka ykkur öllum, sem stutt hafið okkur í stai'fi á einn eða annan hátt. Starfið á s.l. ári var mjög mikið og því ýmislegt sem aflaga fór, en við vonum að vera okkar í stjórninni skilji eitthvað eftir sig. Verkefni þau, sem næsta stjórn fær að glíma við, verða mörg og erfið og án ykkar hjálpar fær hún ekki ráðið fram úr þeim. Við treystum ykkur nú, kæru félagar, til að takast á við vandann með stjórninni og vera virkari í starfi stjórn- arinnar á næsta ári. Við viljum hér með færa aðalstjórn, hússtjói-n, húsverði og stjórnum annarra deilda þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á s.l. ári. Meistarar á árinu: Reykjavíkurmeistarar 1970: 2. flokkur karla. 1. flokkur kvenna. íslandsmeistarar innanhúss 1971: Meistaraflokkur kvenna. íslandsmeistarar utanhúss 1971: Meistaraflokkur kvenna. Urvalslið: Þá vann meistaraflokkur kvenna einn- ig GRÓTTU-mótið 1970 og svo aftur 1971. I úrvalsliðum léku eftirtaldir Vals- menn: A-Landslið kvenna: Björg Guðmundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttii', Sigurjóna Sigurðardóttir. A-Landslið karla: Bjarni Jónsson, Gunnsteinn Skúlason, Hermann Gunnarsson, Ólafur Benediktsson, Ólafur H. Jónsson, Stefán Gunnarsson. Unglingalandslið karla: Ólafur Benediktsson, Torfi Ásgeirsson. Flokkar Mót Unnin mót L U J T Mörk % M.fl. karla 3 0 20 13 2 5 348—294 70 M.fl. kvenna 3 2 17 14 1 2 194—108 85,3 1. fl. karla 2 0 12 7 0 5 87—82 53,9 1. fl. kvenna 2 1 4 3 0 1 29—20 75 2. fl. karla 2 1 10 6 1 3 85—70 65 2. fl. kvenna 3 0 16 10 3 3 101—59 71,9 3. fl. karla 2 0 14 3 1 10 93—108 25 3. fl. kvenna 2 0 13 7 2 4 43—30 61,5 4. fl. karla 2 0 12 4 4 4 69—44 50 fl. samtals 21 4 118 67 14 37 1049—815 62,7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.