Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 28
26
VALS BLAÐIÐ
félags fái tækifæri til að keppa við
það. Það mundi hvetja og eggja hvert
félag til að búa sig undir slíkan leik,
sagði Stefán að lokum.
Rafn Viggósson, pjálfari
í badminton
Ert þú ánægður með árangurinn
af þjálfuninni á síðasta keppnistíma-
bili?
Miðað við árangur í mótum er ég
að nokkru leyti ánægður, við vorum
í úrslitumog undanúrslitum í drengja-
flokki og frammistaðan í tvíliðaleikn-
um var góð. Siglfirðingarnir voru
taldir alveg öruggir með sína keppni,
en það þurfti aukaleik til þess að fá
úrslit, en Valsmennirnir stóðu þetta
vel í þeim. Mér virtist þeir kunna
eins mikið og Siglfirðingarnir, en þeir
höfðu ekki úthald á við þá.
Voru æfingarnar vel sóttar í fyrra-
vetur?
Æfingasóknin var þolanleg, en ekki
eins góð og árið áður. Ég byrjaði um
áramótin og vissi því ekki hvernig
að þessu var búið fram að þeim tíma.
Núna í vetur hefur ekki verið nógu
vel mætt á æfingarnar og mætti vera
meira miðað við fyrri ár. Ég held að
þetta mætti auka til muna ef haldið
væri uppi áróðri fyrir það.
Æfingatímar nægjanlegir?
Ég var dálítið óánægður með það
að deildin lét af hendi einn tíma fyrir
þá yngri, tíma sem hefði þurft að
halda í. Þeir eldri hefðu einnig getað
notið góðs af tímanum. Fimmti flokk-
ur í knattspyrnu fékk tímann og kom
fram, að ýmsir þeirra voru einmitt
þeir sömu sem höfðu leikið badmin-
ton árið áður. Æfingatímarnir eru
of fáir.
Er mikið af ungu efnilegu fólki
sem æfir?
Ekki sem skarar neitt fram úr sér-
staklega. Ef drengirnir æfa vel kem-
ur þetta. Knattspyrnan dregur dreng-
ina mikið til sín, þeir flytja í önnur
bæjarhverfi og því hætta fleiri að æfa
hjá okkur en æskilegt er. Þeir kvarta
líka yfir því, að þeir fái ekki nógu
marga æfingatíma til þess að ná við-
hlýtandi árangri.
Ég er þeirrar skoðunar að við ætt-
um hægara með að halda í þetta fólk
ef við hefðum meira lif í kringum
þetta, fleiri leiki, fleiri mót; piltar
hafa gaman að því og sækjast í það
sem á margan hátt verður að kallast
eðlilegt. Þá á ég við, að það ætti að
koma á nokkrum æfingamótum milli
félaga og eins föstum innanfélags-
mótum, en undanfarið hefur aðeins
verið eitt slíkt mót á vetri. Það hljóta
allir að sjá, að það er allt of lítið fyrir
þá sem æfa með keppni í huga, og
vissulega fá menn enga keppnis-
reynslu með slíku fyrirkomulagi. Á
opinberu mótin komast aðeins þeir
sem komnir eru svo og svo langt í
greininni. Á þessu þarf að verða breyt-
ing.
Hvers vegna æfa ungar stúlkur ekki
meira þennan leik en raun ber vitni?
Ég veit það satt að segja ekki og
hef þó oft um það hugsað. Það gæti
verið að þær hefðu ekki þá þolinmæði
sem þarf til þess að ná árangri. Það
getur líka komið til, að það er eins
og þær geti ekki tileinkað sér þá
hörku í slætti sem til þarf og það er
eins og þær vilji ekki koma fram,
þó að þar séu undantekningar og
minnist ég þá stúlku frá Hafnarfirði
sem æfði með Val, hún hafði þetta
allt í sér.
Þetta er ekkert einstakt fyrir Val,
það er sama sagan í TBR. Ég minn-
ist þess ekki að hafa séð það í dönsk-
um tímaritum um badminton, að þar
væru nokkrir erfiðleikar að fá stúlk-
ur til þess að æfa og það með góðum
árangri. Þetta virðist vera eitthvað
sérstakt fyrir okkur og ég veit ekki
hvað gera skal til þess að fá stúlkur
meira í badminton.
Ert þú bjartsýnn með árangurinn
á komandi vetri?
Satt bezt að segja er ég óánægður
með deildina í dag, og mér finnst
deildarstjórnin ekki nógu virk. Ég ef-
ast ekki um að ef þeir störfuðu meira
meðal hinna yngri og sýndu áhuga
fyrir íþróttinni, mundi áhuginn og ár-
angurinn meðal þessa fólks ekki láta
á sér standa.
Ólafur Thorlacius, þjálf-
ari í körfuknattleik
Einn af aðalþjálfurum Vals er Ól-
afur Thorlacíus, og annast hann þjálf-
un meistaraflokks í körfuknattleik.
Ólafur er enginn nýgræðingur í iðk-
un íþrótta, og hefur komið mikið við
sögu í tveimur íþróttagreinum. Hann
mun hafa byrjað með iðkun hand-
knattleiks og þá hjá Fram. Fluttist
síðan suður í Garðahrepp og æfði
þá í F. H. í 6—7 ár og varð á þeim
árum sex eða sjö sinnum Islands-
meistari í handknattleik úti og inni.
Körfuknattleik hefur hann stund-
að allt frá 1952, að hann gekk í
Körfuknattleiksfélagið Gosa, sem síð-
ar var Körfuknattleiksfélag Reykja-
víkur, og nú síðast deild í Val. í þeirri
grein hefur hann leikið 15 landsleiki,
svo að hann kann ýmislegt fyrir sér í
þeirri íþrótt.
Jafnhliða þessum æfingum öllum
hefur hann um langt skeið leiðbeint
um körfuknattleik í ýmsum flokkum
og um tíma þjálfaði hann KR einnig,
og nú annast hann þjálfun meistara-
flokks Vals. Sjálfur hætti hann að
keppa með íiði sínu, meistaraflokki
á s.l. hausti, en hann er 35 ára.
Ert þú ánægður, að félagið skyldi
verða deild í Val?
Já, þetta var orðið svo erfitt hjá
okkur, við áttum orðið árvissa yngri
flokka, en höfðum engan samastað
fyrir æfingar og fundahöld, og stóð
þetta okkur fyrir þrifum, og sáum
ekki neina breytingu framundan.
Hvernig hefur þetta gengið?
Þetta hefur gengið vel, drengirnir
hafa æfingar hjá Val og þar koma
þeir á fundi, og má geta þess að nú
fyrir nokkru síðan var fundur í Fé-
lagsheimilinu þar sem sýndar voru
kvikmyndir af körfuknattleik, og
kynntum við leikinn fyrir þeim, þar
voru og veitingar og þótti þeim þetta
hin bezta skemmtun. Til fundarins
komu um 130 piltar.
Stjórnin hefur líka fundi sína
þarna, og allt skipulag verður betra
og starfsemin öruggari. Nú erum við
þessir eldri að hætta og leggjum þá
meira í stjórnarstörf og að kenna og
leiðbeina.
Er meistaraflokkurinn efnilegur?
Það má nú segja að við séum að
skapa nýjan meistaraflokk, því hann
samanstendur að kalla af annars
flokks og þriðja flokks mönnum frá
því í fyrra. Þetta eru allt ungir og
efnilegir menn, sem hafa staðið sig
fram yfir allar vonir það sem af er
vetrinum. Þeir eru mjög samstæðir
og áhugasamir, og með sama áfram-
haldi verður ekki annað sagt en að
þeir lofi góðu í framtíðinni.
Nokkrar sérstakar óskir og vonir?
Þegar maður þjálfar flokk er það
alltaf manns heitasta ósk að hann
nái sem lengst, ennfremur er það
ósk okkar og von að geta verið með
allar æfingar í Iþróttahúsi Vals.
FÉLAGAR!
Kmi sk;il iiiímmI á uinboð Vsils
fyrir ITrygginganiiilsf ööina h.f. Ku
■■■■■Imm) Jirifla hofur Valur liafl iiiiiI-
aufariu ár. og gofii) gói)a raun.
Kn svnl rr iit) inri) aoikuu siarfi á
|>rssu svi«)i niá grra rnu lirfur.
I'ail a-lli a<) vrra Valsfrlöguin Irll
vrrk ai) auka slarfsrini þrss frá
Jivi smn nú rr, og auka ]>anni£
vrrulrga Irkjur frlagsius af uin-
boilinu.
Ilrr rr ui. a. uin bifrriöairygg-
ingar ai) ræila, svo og ailrar Irygfi-
ingar. I'|»|ilv si nga r ■ Jirssu sam-
bamli fásl hjá formanui frlagsius
og ilrililanna.