Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 30

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 30
28 VALSBLAÐIÐ á að þjálfa og kenna. Hins vegar eru þjálfarar eins og aðrir menn, þeir hafa mismunandi áhrif á þá menn sem þeir umgangast, og Óla hefur verið einkar lagið að hafa róandi áhrif á menn og haft sérstakt lag á að fá menn til að koma á æfingar. í þessu efni bind ég miklar vonir við hann. Við vitum báðir hvað Óli hef- ur gert fyrir Val, og hví skyldi hann ekki halda því áfram. — Er eitthvað í leikja- og móta- fyrirkomulaginu, sem þú ert óánægð- ur með? — Það má segja að það komi of oft fyrir að leikir séu allt of þéttir, og svo í annan stað líður stundum of langt á milli leikjanna og sjá allir þau áhrif sem það hlýtur að hafa fyrir liðin sem fyrir þessu verða. En eins og við vitum, er vafalaust erfitt að koma þessu öllu fyrir, þ. e. mót- unum, landsleikjum heima og heiman, heimsóknum, leikjum í Evrópukeppni, sem öllu verður að raða niður á þetta stutta keppnistímabil okkar. Mér finnst, að það eigi og þurfi að vera fastir og ákveðnir leikdagar, og fyrir liðin er það heppilegast, að leikirnir dreifist sem jafnast niður á keppnis- tímabilið. — Álítur þú að leikir í fyrstu deild séu orðnir of margir miðað við mót og leiki sem nefnt var hér að fram- an? — Mér finnst, með tilliti til hins stutta tíma sem við hér höfum til keppni, að leikirnir séu of margir, og þá ekki síður vegna áhugamennsku leikmanna hér. Ég vil leggja áherzlu á það, að áhugamennska okkar, eins og hún er í dag, sé ekki framkvæm- anleg, nema þá að afturför verði í íþróttinni. Gamli áhugaandinn er fyr- ir hendi, en það er orðið svo nú á tímum, að menn vilja fá eitthvað fyrir snúð sinn. Það er meira um að vera í þjóðfélaginu, svo margt sem er í boði, og þetta síast inn í íþrótt- irnar. Ég er ekki að tala um að menn fái fjárfúlgur fyrir að leika knatt- spyrnu, heldur verði reynt að sjá svo um að hliðrað verði til fyrir þá menn, sem leggja það á sig að vera ofar- lega í íþróttinni, og keppa jafnvel fyrir landsins hönd. Þar gæti komið til greina aukið frí í sambandi við ferðir og leiki. Ég vil taka það fram, að ég er ekki fylgjandi hreinni at- vinnumennsku, ennþá held ég að hún sé ekki tímabær hér í okkar fámenni. — Er eitthvað sem þér liggur á hjarta varðandi Val, og ert þú bjart- sýnn með nýbyrjaða árið? — Mér liggur ekkert sérstakt á hjarta, það hefur verið gaman að standa í þessu, og eins og ég hef sagt áður, þá er ég gjörsamlega sannfærð- ur um það, að þetta Valslið, sem við eigum í dag, lofar það góðu, að ef þessir ungu menn gefa sér tíma fyrir félagið og sjálfa sig, að þá er ég í engum efa um að það nær árangri. Og því skyldi maður ekki vera bjart- Sigurdór Sigurdórsson: „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt^, segir hinn nýji Valsmaður Gísli Blöndal Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum Valsmanni að nýr maður gekk í raðir okkar í haust er leið og gerði það á þann hátt að eftir hlaut að vera tekið. Hér á ég við hinn frá- bæra handknattleiksmann Gísla Blön- dal sem fluttist frá Akureyri til Reykjavíkur og gekk þá í Val. Það kom mörgum á óvart að hann skyldi gera það, því að Gísli er uppalinn í KR, þ. e. áður en hann fluttist til Akureyrar fyrir nokkrum árum. Aðspurður um ástæðuna fyrir því að hann gekk í Val en ekki í KR, þegar hann kom suður, sagði Gísli, sýnn. Það væri voðalegt að vera ekki bjartsýnn, engin ástæða til annars, sagði þessi geðþekki ,,gestur“ knatt- spyrnunnar í Val. að það væri eingöngu vegna þess að sig hefði langað til að fá tækifæri til að leika með góðu liði, þar sem vel væri unnið að handknattleiks- málunum og sér hefði ekki litizt bet- ur á annað félag en Val. — Og hvernig hefur þér svo líkað veran í félaginu, Gísli? — Alveg sérstaklega vel, það sem af er, en þess ber að geta að ég er ekki búinn að vera í félaginu nema nokkra mánuði og það er ef til vill of stuttur tími til að leggja einhvern dóm á félagslífið. Ég hef raunar ekki gert annað þennan tíma, en að mæta á æfingar og síðan heim aftur og svo einstakir rabbfundir, en ég get ekki sagt annað en að mér hafi líkað mjög vel. — Þér hefur verið tekið vel af þeim sem fyrir voru í liðinu? — Já, já, mikil ósköp, mér var strax í byrjun tekið mjög vel, enda eru þarna úrvals félagar í hópnum. Þetta er í augum okkar Valsmanna söguleg mynd, þ. e. a. s. mynd af Bjarna Jónssyni, sem nú leikur með Árhus KFUM og Gísla Blöndal, scm kom í hans stað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.