Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 33

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 33
VALSBLAÐIÐ 31 Eru þér minnisstæðir sundmenn frá þessum árum? Já, mér er t. d. Friðrik Eyfjörð mjög eftirminnilegur; Gísli Þorkels- son, mjög góður vatnsknattleiksmað- ur; svo voru ágætir menn í liði Ár- manns eins og Þorsteinn Hjálmars- son, og ákaflega góðir vinir mínir allt þetta á eftir. Af okkar eigin mönnum má nefna Jón Inga Guð- mundsson, Jón D. Jónsson, Magnús Pálsson, Ingiberg Sveinsson, og ekki má gleyma Þórði Guðmundssyni, sem er sennilega einhver bezti vatnsknatt- leiksmaður sem hér hefur verið fyrr og síðar. Alltaf traustur og öruggur, maður sem alltaf stóð fyrir sínu, og lék það afrek að verða Islandsmeist- ari með 10 ára millibili. Mér er minnisstætt eitt sundmót sem ég tók þátt í, og það var þegar Sundhöllin var vígð. Ég var þá kandi- dat á Landspítalanum. Átti frí með- an mótið fór fram, en átti ekki að fá það vegna anna á spítalanum. Varð það til þess að ég kom á síðustu stundu til keppninnar, og var þar að auki mjög þreyttur. Mig minnir fast- lega að ég hafi unnið mitt sund alveg á síðustu metrunum, en það voru að mig minnir 100 m. Faðir minn hafði alltaf verið á móti keppni, og miklum æfingum, það tefði frá námi, honum fannst víst að mér veitti ekki af öll- um mínum tíma við námið, ég hef víst ekki verið nógu heill í náminu, klofinn í marga hluta, á milli áhuga- málanna; hann var alltaf hræddur um að ég mundi ekki standa mig við námið. En það sýndi sig nú síðar að það var ástæðulaust. Útvarpað var frá þessari vígslu Sundhallar- innar, og hlustaði faðir minn á út- sendinguna. Þegar fór að draga að leikslokum var farið að nefna nöfn þeirra sem fremstir voru, og kom þá mitt nafn fram, og þó ekki fyrr en á síðustu metrunum, því það var ekki fyrr en á síðustu metranum sem gert var út um sundið, og sigurinn því óvæntur fyrir alla, og sjálfan mig líka. Hann hlustaði á þetta, og ég heyrði eftir þetta að þá fannst hon- um meira til um þessa „íþróttavit- leysu“, eins og hann kallaði það, en áður. Ólympíuför 1936 og keppni í vatns- knattleik. Hvað vilt þú segja mér um Ólympíu- för vatnsknattleiksmanna 1936, sem þú varst þátttakandi í? Það var sérstaklega gaman fyrir mig að fara þessa ferð með mínum góðu vinum. Ég hafði ekki verið heima nema hluta úr ári. Áður hafði ég verið mikið í burtu, mest í Þýzka- landi, og var því létt fyrir mig, þar sem ég þóttist vera fær í tungumál- inu, eftir tveggja ára nám þar. Ég þekkti líka styrkleika Þjóðverjanna í vatnsknattleik. Ég hafði keppt með þýzka háskólanum sem ég var í og það var gott lið, og margir færari þar en ég þó ég fengi að vera í kapplið- inu. Ég vissi að þeir voru sterkir og ég varaði þá við þessu hér heima. Við yrðum að beita sterkari brögð- um, og taka sterkara á þessu, sýna meiri hörku en við gerðum. Það sýndi sig líka þegar við kom- um út. Ferðin var mjög ánægjuleg og við lærðum mikið á henni. Við kepptum við nokkur lið þarna, og mig minnir að við höfum unnið suma leikina, en leikjunum í sjálfri olympíu- keppninni töpuðum við öllum. Við lögðum mikið að okkur í þessari keppni. Ég held að ég hefði ekki ver- ið talinn feitur nú til dags þegar ég fór í þessa för, var satt að segja tálg- aður, en ég léttist um 6 kg. keppnis- tímabilið í Berlín, og ég veit ekki satt að segja hvaðan þessi kíló komu, en þau voru farin. Og hinir lögðu ekki minna að sér en ég. Við töpuðum og var ég sá eini sem var rekinn úr leik í sjálfri Ól-keppn- inni, og ég held að ég sé eini íslend- ingurinn sem hefur verið rekinn úr leik á Olympíuleikum. Ég skammast mín ekkert fyrir það, ég var beittur óleyfilegri hörku og tók á móti eins og ég var maður til, reyndar vorum við báðir reknir upp úr, en ég var sá eini sem hef hinn nefnda ,,heið- ur“! Mér er eftirminnilegt að Þjóðverj- arnir, Ungverjarnir og mig minnir Bandaríkjamennirnir voru í sérflokki, en við æfðum með þeim. í liði þeirra voru tveir læknar með og hafði ég gaman af að sjá þá, því að í þá daga var heldur litið niður á þá hér heima, sem fengust við langskólanám og voru einnig í íþróttum. Það var talið að það gæti ekki farið saman. Ég fékk sönnun fyrir því, sem ég vissi reyndar með sjálfum mér, og hafði séð í Þýzkalandi að háskólamennirnir voru oft þeirra beztu menn. Kepptir þú nokkurntíma í sundi á námsárum þínum erlendis? Ég keppti aðeins í vatnsknattleikn- um fyrir Albertus Universitet í Kön- igsberg. En svo lenti ég í svolitlu skemmtilegu ævintýri, sem ég man ekki hvort ég hef sagt þér frá. Ég lenti með nokkrum útlendingum og Þjóðverjum í bæ, sem mig minnir að heiti Allenstein. Svo hittist á, að í þessum hópi var maður sem var í sama félagi í New York og Peter Fick, þáverandi heimsmeistari í skrið- sundi, og átti heimsmetið. Lét hann mikið af þessu, var í sundbol með Ólympíufarar 1936: Aftasta röð f. v.: Magnús B. Pálsson, Þórður Guðmundsson, Jón Pálsson, Þorsteinn Hjálmarsson, Stefán Jónsson. — Miðröð: Úlfar Þórðarson, Jón 1). Jónsson, Jónas Halldórsson, Rögnvaldur Sigurjónsson. — Fremstir: Jón Ingi Guðmundsson og Pétur Snæland.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.