Valsblaðið - 11.05.1972, Page 45

Valsblaðið - 11.05.1972, Page 45
VALSBLAÐIÐ 43 Egill G. Vigfússon og Sigríður Skúladóttir með son sinn Friðrik. Þorsteinn Auðunsson skipstjóri og Oddný Sigurgeirsdóttir með son sinn Þorstein Þorsteinsson. Benedikt Jakobsson cg Svandís Guðmundsdóttir með syni sína. „Foreldrar œttu að sýna íþróttaáhuga barna sinna meiri áhuga66, sögðu hjónin SifíríiHur Skúla- dóttir e»!i lEegill (>. Viqfiísson — Sonur okkar, Friðrik, er í 4. fl. og ég get ekki annað sagt en að okk- ar reynsla af dvöl hans í Val sé mjög góð, sagði Sigríður, þegar við tókum þau hjónin tali við Valsheimilið rétt áður en mfl.-stúlkurnar okkar buðu upp á kaffi. — Hafið þið áður komið hingað á Valsdaginn? — Við höfum alltaf komið síðan sonur okkar gekk í félagið og mér finnst, sagði Sigríður, að allir for- eldrar ættu að gera það og ekki bara á Valsdaginn, þeir ættu að sýna íþróttaáhuga barna sinna meiri áhuga vegna þess að fátt er hollara fyrir þau en að vera við íþróttaiðkun í félagi eins og Val. — Mér finnst Valsdagurinn til mik- illar fyrirmyndar, sagði Egill og ég hefði viljað sjá hér fleiri foreldra horfa á börn sín leika í dag. Við reyn- um alltaf að fara á þá leiki, sem son- ur okkar tekur þátt í, við vitum að hann hefur mjög gaman af því. Og undir það vil ég taka, að sonur okkar hefur haft sérlega gott af veru sinni í Val. — Nokkuð sem ykkur finnst að bet- ur mætti fara hjá félaginu? — Ekki það ég veit, sagði Egill, við höfum ekkert nema gott af félag- inu að segja, og meðan svo er gagn- rýnir maður ekki. „Fi<5 mœtum alltaf66, söfiiHu þau kunnu Vaískjón Svandís tiuömuudsdóttir oif ISrnrdikí Jakohsson — Blessaður vertu, við mætum hér á hverjum Valsdegi, hann er okkar hátíðisdagur, sagði Benedikt Jakobs- son, og til hans hlakkar maður allt árið. Ég vissi að þetta er rétt, því að ég hef séð þau hjónin við Valsheim- ilið á hverjum Valsdegi undanfarin ár. — Hann er bráðnauðsynlegur þessi Valsdagur, sögðu þau bæði, að minnsta kosti fyrir okkur sem eigum alla drengina okkar í félaginu. — Þið fylgist vel með því, sem hér fer fram, oftar en á Valsdaginn? •— O-já, við gerum það, við gætum nú varla komizt hjá því. — Þar sem þið þekkið félagið þetta vel, er eitthvað í félagsstarfinu sem ykkur fyndist að betur mætti fara? — Nú, það vantar sjálfsagt alltaf eitthvað, en það er sérstaklega eitt sem ég vil koma á framfæri, sagði

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.