Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 49

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 49
VALSBLAÐIÐ 47 Frímann Hvlgasonz Konan á bak við Valsmanninn Þegar við fórum af stað með þenn- an þátt í blaðinu í fyrra, virtist hann falla í góðan jarðveg. Mönnum er Ijós sá sannleikur, að starf og staða konunnar bak við alla Valsmenn, sem starfa og strita fyrir Val, er mikils virði, þó þær séu ekki í sjálfu sviðs- ljósinu. Við komumst að raun um það í fyrra, að það er erfitt að velja ,,þá réttu“, því þær geta verið svo marg- ar, þó segja megi líka, að hverju sinni komi „sú rétta“, eða konan sem hef- ur hjálpað til við félagsstarfið á sinn hátt. Eins og við gátum um þá, verður hver og ein, sem valin er, nokkurs konar samnefnari fyrir hinar allar og viðurkenning og þakklæti fyrir hið beina og óbeina starf fyrir félagið. Valsmaðurinn, sem þessi kona stendur á bak við og valin var að þessu sinni, er Sigurður Ólafsson. Hann þarf ekki að kynna mikið fyrir Valsmönnum sem fylgzt hafa með Val síðustu 35 árin. Hann byrjaði feril sinn sem knatt- spyrnumaður og fór í gegnum alla þá flokka, sem þá var um að ræða, og komst í meistaraflokkinn 1936 og lék þar í 20 ár samfleytt. Við það má bæta að fáir eða engir hafa stundað æfingar af meiri elju og áhuga en hann. Kom þar fram hinn sterki eigin- leiki Sigurðar sem og í öðrum störf- um fyrir Val, og raunar hvar sem hann fer, en það er takmarkalaus samvizkusemi. Á þessum 20 árum lék Sigurður 202 leiki, sem er mun meira en næsti maður hefur komizt. Löngu áður en Sigurður lagði skóna á hilluna var hann farinn að taka þátt í almennum félagsstörfum og er enn ötull og sívinnandi á félagssvæð- inu. Uppbygging Hlíðarenda hefur sannarlega notið starfskrafta hans, og þá ekki síður að því er til viðhalds eigna Vals kemur. Snemma var hann kjörinn í stjórn Vals, fyrst sem ungur og líklegur „hlustandi“ í stjórninni, en þá var sá háttur hafður á að velja tvo unga menn í stjórnina, sem áttu að kynn- ast stjórnarstörfum, með það fyrir augum að taka við síðar. Það varð líka hlutskipti Sigurðar, sem átt.i sæti í aðalstjórn Vals í 17 ár og þá oftast sem varaformaður. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um störf Sigurðar fyrir Val og mörgu sleppt, sem vonandi verður tækifæri til að minnast síðar. Það lætur því að líkum að öll þessi störf Sigurðar hafi skipað honum í hóp með þeim ,,bersyndugu“, sem svo víða sjást í kringum íþróttafélög, nú og önnur félög, mennirnir sem nánast halda uppi þessari starfsemi og gera hana lífrænni en annars yrði ef þeim væri skipt í launaflokka samkvæmt „kerfinu“. Það verður að sjálfsögðu ekki dreg- ið í efa, að Sigurður hefur ekki haft eins mikinn tíma til að sinna konu og börnum eins og hann hefði vafalaust óskað, vegna áhuga síns fyrir velferð Vals. Við skulum nú heyra hvernig konan hans lítur á þetta og hvert viðhorf hennar er til íþróttanna yfirleitt, þátt- töku hennar sjálfrar í íþrótta- og félagsmálum. Konan, sem stendur á bak við Sig- urð heitir Gyða Ingólfsdóttir, fædd og uppalin í Reykjavík, eins og Sig- urður. Eiga þau hjón 2 börn, pilt og stúlku, sem þó hafa lítiö komið við sögu í Val, nema hvað hugur þeirra mun smitaður af heimilisand- anum. Þau hjónin hafa í öll þessi 28 ár, sem þau hafa verið gift, búið á sama stað, eða á Bergstaðastræti 68. Hér fer á eftir það sem Gyða hafði að segja um þessi mál: Iðkaðir þú íþróttir í æsku? Ég hef aldrei iðkaö íþróttir með keppni fyrir augum, en var þó lítil- lega með, þegar Ármann hóf æfingar í handknattleik fyrir stúlkur hér niðri í Vatnsmýrinni undir leiðsögn Grím- ars Jónssonar, og ég man ekki betur en að þú hafir verið viðstaddur fyrstu æfinguna, sem ég fór á. Ég hafði mjög gaman að þessu, en árangur- inn var víst ekki mikill, enda kom ég aldrei til greina í kapplið. Ég ber þó ennþá menjar frá þessari þátt- töku minni í handknattleik, þar sem er svolítið aflagaður baugfingur. Ég eignaðist snemma skíði og fór á tímabili um hverja helgi, þegar snjór og færð leyfði, upp í Jósepsdal, allt frá því að gamli Ármannsskál- inn var byggður, þar til hann brann, en það mun hafa verið 1942. Ég var einmitt stödd þar, þegar það skeði, og það var sannarlega raunalegt að sjá þetta góða hús fuðra upp á skömmum tíma í morgunskímunni. Á þessum árum fórum við, þetta skálafólk, í ferðalög um hverja hvíta- sunnu; farið var t. d. á Snæfellsjökul, Eyjafjallajökul, Tindfjallajökul, Skarðsheiðina og fleiri staði. Ég hef alla tíð haft mjög gaman að ferða- lögum og ég held bara að ég hafi gengið á flest fjöll hérna í nágrenninu og nú síðari árin höfum við hjónin eytt sumarleyfum okkar í ferðalög Gyða Ingólfsdóttir. um hálendið þvert og endilangt í góð- um kunningjahópi undir leiðsögn Eg- ils Kristbjörnssonar fjallagarps. Mér fannst það því mjög vel tilfundið hjá Val, að efna til óbyggðaferðar um eina helgi í sumar undir leiðsögn Egils og gefa þar með eldri félögum og konum þeirra tækifæri til að hitt- ast og njóta skemmtilegs ferðalags. Vonandi verður áframhald á slíku, enda heppnaðist þessi ferð ágætlega. Annars má segja, að ég sé nú á gam- als aldri farin að stunda íþróttir reglulega. Við hjónin höfum nú í nokkur ár farið í sundlaugarnar á morgnana fjórum sinnum í viku og haft mjög gott af. Hvert er viðhorf þitt til íþrótta- iðkana æskulýðsins? Það er ábyggilega mjög hollt og þroskandi fyrir börn og unglinga að iðka íþróttir og starfa þá um leið í íþróttafélögunum að félagsmálum. Flestir unglingar hafa beinlínis þörf fyrir slíkt, þurfa að fá útrás og tæki- færi til að reyna sig í heilbrigðri og drengilegri keppni. Það hlýtur lika að vera notalegra fyrir foreldra að vita af börnum sínum á íþróttasvæðunum, undir handleiðslu þjálfara, en í mis- jöfnum félagsskap á götunum. Mér skilst, að aðstaða til að taka á móti vaxandi fjölda unglinga til æfinga og félagsstarfs sé takmörkuð. Það þurfi fleiri og stærri hús og fleiri velli. Þar er verðugt verkefni fyrir alla, sem unna og hafa trú á gildi íþrótta fyrir æskuna, að leggja því máli lið og þá um leið endilega að drífa unglingana til starfa líka, þar er mikið starfslið ónotað og efa ég ekki, að þeir hefðu enn meira gam- an af að nota íþróttamannvirkin, ef þeir hafa átt þátt í að koma þeim UPP> og víst er, að umgengnin yrði betri. Þetta er ábyggilega bara skipu- lagsatriði, ekki vantar unglingana dugnaðinn og áhugann, ef það tekst að vekja hann. Hefur þú gaman af að horfa á íþróttir?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.