Valsblaðið - 11.05.1972, Page 54

Valsblaðið - 11.05.1972, Page 54
52 VALSBLAÐIÐ Þeir ungu hafa orSið Nú eins og endranær gefum við fyrirliðum sveitanna orðið og vafalaust liggur þeim mikið á hjarta, því margt hefur sjálfsagt skemmtilegt skeð á þessu ári sem gaman er að rifja upp svona i lok keppnisársins. Öll hafa þau það sameiginlegt, að þegar litið er til baka, verður þetta allt svo skemmtilegt, þó inn á milli komi í frásögninni atvik sem voru leiðinleg meðan þau voru að ske. En svona eru íþróttirnar, það leiðinlega getur orðið skemmtilegt þegar frá líður, það gæti bent til þess að þetta unga fólk okkar í Val kynni að taka mótlætinu eins og velgengninni, og væri það þeim og félaginu mikils virði. Foringjarnir ungu hafa þetta að segja: Knattspyrna: Hilmar Sighvatsson fyrirliði 5. fl. A Það er athyglisvert að þessi ungi piltur á heima alla leið uppi í Smá- löndum og lætur sig hafa það að mæta á æfingar hjá Val og hefur ekki hug á að breyta þar neitt til. Annars hafði hann þetta að segja um veru sína í Val og helztu minnisstæð atvik: Ég byrjaði að æfa knattspyrnu fyr- ir tveimur árum eða 1969. Ég fór í Val vegna þess að vinur minn hélt með Val og þá fór ég að fara þangað á æfingar. Ég hætti nú aftur í tvo mán- uði en tók svo til að æfa á ný og hef síðan æft af kappi. Ég var hepp- inn að komast beint í A-liðið í 5. flokki, og fyrsta leikinn lék ég með Val í Reykjavíkurmótinu 1969. Ég man nú ekki hvernig leikurinn fór, en ég man það að ég var mikið tauga- óstyrkur, ég var líka svo mikill klaufi þá. En svo kom þetta með því að æfa stöðugt. Ég var framvörður og skoraði ekkert mark fyrsta árið. Svo fór þetta nú að koma og í ár skor- aði ég 8 mörk. Sá leikur, sem mér er minnisstæðastur er úrslitaleikurinn við KR í haust, en þá unnum við 1:0. Urðum við ofsalega glaðir, þegar sig- urmarkið var skorað. Okkur hefur víst fundist það sæt hefnd, því við töpuðum með eins marks mun fyrir þeim á íslandsmótinu, eða 2:1. Mér er líka minnisstæður æfingaleikur við Breiðablik þegar staðan var 2:0 Breiðabliki í vil. Okkur leizt illa á þetta og í hálfleik ákváðum við að taka á í þeim síðari og berjast eins og við gætum. Þetta lagaðist þegar á leið og ég var svo heppinn að skora tvö mörk og jafna, en sigurmarkið skoraði svo Brynjar Harðarson. Yfirleitt æfðu drengirnir vel í sum- ar og svo fannst mér þjálfarinn sér- staklega góður og skemmtilegur, en það var Hörður Hilmarsson. Félagsandinn var sæmilegur í lið- inu í sumar og þegar við vorum að tapa reyndum við að berjast eins og við gátum. Við höfðum fundi við og við og skemmtum okkur þar prýði- lega og spjölluðum um leikina, sem við höfðum leikið undanfarið og rædd- um þá um frammistöðu hvers ein- staks og var okkur bent á gallana og svo reyndum við að laga þá. Méi finnst gott að vera á Valssvæðinu á Hlíðarenda, það er svo hæfilega útaf fyrir sig og við lausir við bílahávað- ann, sem er svo mikill í borginni, og vellirnir ágætir, svo ég tali nú ekki um íþróttahúsið og heimilið. Mér þótti voða gaman í skemmti- ferð sem við í 5. fl. fórum í sumar. Fyrst komum við til Hveragerðis og stönzuðum þar dálítið og fórum síðan til Selfoss og kepptum þar leik við Selfyssinga, sem varð jafntefli 2:2. Þaðan var haldið til Laugarvatns og skoðuðum við staðinn. Þar næst fórum við áleiðis til Þing- valla, en á leiðinni komum við í helli, sem var fyrir alllöngu mannabústað- ur og fannst okkur það merkilegt. Á Þingvöllum skoðuðum við ýmis- legt og fórum gangandi um Almanna- gjá, og alla leið upp á brún, en þar tók bíllinn okkur. Með í ferðinni voru allar sveitir 5. flokks og skemmtum við okkur mjög vel. Allir leikir okkar fóru fram í Reykjavík í mótum, svo að við höf- um víst fengið þessa ferð vegna þess. Ég mundi leggja til að svona ferðir væru farnar á hverju sumri, því að félagsskapurinn verður betri, þegar við erum svona saman. Mér finnst félagslífið í Val gott eins og það er. Ég er ákveðinn að halda áfram og æfa eins vel og ég get og reyna að komast í A-liðið í 4. fl., en ég geng upp í hann nú í haust, ef það þá tekst. Oddur Magnússon fyrirliði 5. fl. B. 12 ára. Þegar ég var 7 ára fór ég á nokkr- ar æfingar hjá Val og gekk þá í fé- lagið. Ég hafði alltaf haldið með Val og þá var ekkert eðlilegra en að ger- ast þar félagi. Svo byrjaði ég fyrir alvöru í vor og æfði með 5. flokki. Ég keppti svo fyrsta leikinn í Reykja- víkurmótinu gegn ÍR og unnum við leikinn 2:0. Ef til vill hefðum við átt að vinna með meiri mun, því að við áttum leikinn næstum alveg. Sá leikur, sem ég man einna bezt eftir, var leikur við Víking. Þeir skor- uðu fyrst og svo jöfnuðum við, og okkur er farið að detta í hug að ef til vill takist okkur að sigra í þessum leik, en svo skora þeir og leikar standa 2:1 þeim í vil. 1 síðari hálfleik vill það til að ég geri víti. Ég stóð í markinu og bolt- inn er að fara inn í markið og tek þá Oddur Magnússon til bragðs að stöðva hann með hend- inni, en Víkingar skora úr vítinu. 3:1. Síðasta markið í leiknum skorum við svo úr víti. Mér finnst gaman að taka þátt í félagslífinu í Val og vera á skemmti- fundum, þar sem kvikmyndir eru sýndar og var einn slíkur haldinn í vetur og fannst mér það skemmtilegt. Ég er mjög ánægður með þjálfar- ann okkar, hann Hörð Hilmarsson, mér finnst hann líka skemmtilegur leikmaður í meistaraflokki. Þegar ég kom í Val þekkti ég engan þar, og þegar ég fór á fyrstu æfinguna í vor tók ég með mér tvo vini mína til trausts og halds. Svo fór ég að kynn- ast drengjunum og mér fellur vel við þá. Ég er verulega ánægður að vera á Valssvæðinu og kann vel við mig þar. Ég er sem sagt ánægður að vera kominn í félagið og taka þátt í knatt- spyrnu- og handboltaæfingum þar, en ég æfi líka handknattleik, en ekki hef ég keppt enn í handknattleik. Úlfar Þórðarson fyrirliði 5. fl. C Ég byrjaði aðallega að æfa í sumar, en var dálítið með í hitteðfyrra. Ég keppti fyrst í sumar, mig minn- ir að það hafi verið í leik við Fylki,

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.