Valsblaðið - 11.05.1972, Side 61
VALS BLAÐIÐ
59
á æfingar. Þá fór ég að stunda körfu-
knattleik hjá Körfuknattleiksfélagi
Reykjavíkur, og æfði þá í Háloga-
landi. Við héldum hópinn nokkrir
drengir úr Austurbæjarskólanum, og
gerum það enn. Þetta sama ár keppti
ég fyrsta leikinn, og var það við Ár-
mann. Þeir létu það á sér heyra, að
þeir ætluðu að vinna leikinn, en við
hugsuðum okkur að gera sem við
gætum, og það fór svo að við unnum
leikinn.
Þennan vetur eða 1968 urðum við
íslandsmeistarar.
Yfirleitt hafa skemmtilegustu leik-
irnir verið við KR, og þá oft munað
mjóu, og ýmislegt skemmtilegt skeð.
Ég man t. d. eftir atviki úr leik okk-
ar við KR á Akureyri 1970. KR-ingar
voru í sókn, en missa boltann, og
allir nema einn fara í vörnina.
Þessi eini stendur hinn rólegasti
undir körfunni, þar til hann fær bolt-
ann beint í hendurnar og skorar!
Þeir unnu leikinn.
Þetta lið okkar, sem nú gengur
upp í annan flokk, heldur ákaflega
vel saman og hefur gert lengi. Við
erum mikið saman, förum oft á bíó
saman, og spjölluðum mikið um
körfuknattleik.
Nú eru leiðir svolítið að skiljast
hvað snertir skóla, þó erum við fjórir
í Menntaskólanum við Lækjargötu.
Vona þó, að leiðir skiljist ekki, hvað
snertir körfuknattleikinn, það er nú
einu sinni svo, að þegar maður er
byrjaður í svona leik, á maður erfitt
með að slíta sig frá þessu.
Varðandi þá breytingu sem varð
þegar KFR gekk í Val, get ég ekki
annað sagt en að ég er mjög ánægður.
Ég var hagvanur á Hlíðarenda og
þekki þar vel til. Mér finnst þetta
tvímælalaust mikið betra fyrir okkur.
Það hafa dregizt fleiri drengir inn í
þetta hjá okkur, nýjir þjálfarar hafa
komið, og öll aðstaða til félagsstarfa
er betri. Ég held að við drengirnir
ættum að nota okkur aðstöðuna þarna
suður frá til að koma saman.
Ég er bjartsýnn með árangurinn
á komandi vetri, þó ég viti að t. d.
KR eigi sterkt lið, og ég veit að það
verður hörð barátta.
Það vill svo til að allir, sem voru
í 2. fl. í fyrra, ganga upp, svo að
okkur vantar mann eða menn með
reynslu í þessum flokki, en við verð-
um að reyna að standa okkur.
Það eina sem mér þykir leiðinlegt
varðandi s.l. ár er, að KR-ingar skyldu
fara að kæra leikinn við okkur í fyrra,
og reyna að hafa af okkur titilinn, og
þó vorum við búnir að vinna þá
tvisvar í mótum. Mér finnst ekki mik-
il íþróttamennska vera í svona fram-
komu.
Vona ég svo að Val vegni vel á
komandi ári og í framtíðinni.
Sigun'dór Sigurdiír.ssoii:
Hvað gerðist í síðari leíknum
við Í.R.
Leikmenn í mfl. Vals í
handknattleik beðnir um
svar við þessari
spurningu
Hann líður sjálfsagt þeim Vals-
mönnum er sáu seint úr minni síðari
leikurinn milli Vals og lR í íslands-
mótinu í handknattleik í fyrra. Sjálf-
ur leikurinn var hrein martröð á að
horfa fyrir Valsmenn og ekki bara
það, heldur fór íslandsmeistaratitill-
inn veg allrar veraldar með þessu
tapi 15:24 fyrir lR. Hefði Valur unn-
ið þennan leik, hefði íslandsbikarinn
verið geymdur að Hliðarenda þetta ár
og fram á næsta vor. En leikurinn
tapaðist með 9 marka mun og eftir
einhverja glæsilegustu frammistöðu
hjá liðinu, sem nokkurt íslenzkt lið
hefur sýnt í Islandsmótinu fram að
þessum leik, er ekki nema von að
Valsmenn spyrji, HVAÐ GERÐIST í
ÞESSUM LEIK? Þessu geta auðvit-
að engir svarað nema leikmennirnir
sjálfir og þjálfari liðsins. Þess vegna
brugðum við okkur á æfingu hjá lið-
inu í haust og báðum leikmennina
að svara þessu.
Bergur Guðnason:
Já, ég ætti að geta það, vegna þess
að ég hugsaði ekki um annað í 3—4
vikur á eftir, var nærri því óvinnu-
fær vegna þessa og ég hef leikið
þennan leik upp aftur og aftur í hug-
anum og ég hef fundið margt sem
væri hægt að láta duga sem svar, en
ekkert af því er einhlítt. Það sem
kemst næst því að vera eina svarið
er að við hreinlega vanmátum ÍR-
ingana. Þetta er staðreynd, ljót stað-
reynd. Þetta kom til af því að vel-
gengni okkar hafði verið mjög mikil
í mótinu fram að þessum leik. Svo er
annað og ekki minna, en það var að
þetta var einn af þessum leikjum,
þar sem allt heppnast hjá öðru liðinu
en ekkert hjá hinu. Við höfum dæmi
um slíkt eins og til að mynda „14:2“
leikinn fræga. Við höfum annað dæmi
í fyrirsögninni frægu „KR vann Val
7:2 í jöfnum leik“. Þetta var stað-
reynd. í þessum leik við lR glötuð-
um við 7 vítaköstum og áttum þar
að auki óteljandi stangarskot, þetta
er ekki eðlilegt, jafnvel þótt um van-
mat hafi verið að ræða. Okkar mark-
vörður, sem fram til þessa hafði varið
af snilld í mótinu, hann varði ekki
Guðmundur Gunnarsson, markvörður í. R.
bolta, en ÍR-markvörðurinn varði eins
og galdramaður og hefur aldrei sýnt
neitt þessu líkt fyrr eða síðar. Þá
voru nær öll skot ÍR-inganna uppi í
vinklunum illverjandi, og þarna voru
menn sem aldrei höfðu áður sýnt
neitt sem heitið gæti í handknattleik,
en blómstruðu í þessum leik. Mín nið-
urstaða verður því sú, að þetta hafi
verið einn af þessum leikjum, þar
sem allt heppnast hjá öðrum aðilan-
um en ekkert hjá hinum, samfara
vanmati okkar á andstæðingunum.
Ágúst Ögmundsson:
Það var alveg eins og forlögin spil-
uðu þarna inn í. Ég vil sem dæmi
nefna, að þegar ég var að leggja bíln-
um mínum við höllina þetta kvöld
lenti ég í árekstri. Þetta byrjaði
þannig og ég hélt að þetta væri í
samræmi við gamla máltækið sem
segir að „fall sé fararheill", en þetta
var þá bara liður í óhappakeðju. Þá
hygg ég að við höfum vanmetið and-
stæðingana í byrjun vegna mikillar
velgengni okkar fram að þessum leik,
en þegar við fundum að við höfðum
ekki.efni á því og mótstaðan var meiri
en við uggðum, þá fórum við alveg
úr sambandi. Þá gerðist það og að
markvörður þeirra varði næstum
hvað sem var, svo ótrúlegt mátti