Valsblaðið - 11.05.1972, Qupperneq 68
66
VALSBLAÐIÐ
sæta þegar það fréttist að ensk lady
hefði glatað öðrum sokknum sínum
um nóttina, og var gerð mikil leit
að honum, og fannst hann aldrei.
Þótti þessari ensku frú sem ekki
mundi allt ,,hreint“ á þessum öfæfa-
slóðum íslands.
Hve margir voru á æfingum hjá
ykkur í sumar?
Svolítið var það misjafnt eftir sum-
arfríum og vinnu, en það voru allt
uppí 15 manns, svo tókum við stund-
um með okkur yngri menn til að lífga
svolítið uppá þetta, það má líka segja,
að það hafi verið gagnkvæm kynn-
ing kynslóðanna í Val, sem hefur
mikla félagslega þýðingu, og þeir
höfðu gaman af að vera með, og við
að hafa þá.
í dag, sem er síðasti laugardagur
í nóvember, komu 15 manns á æf-
ingu, svo að þetta byrjar vel.
Það virðist, sem þessi hópur hafi
hlotið nafnið „Fálkarnir", sem er
skemmtilegt, en hver gaf hópnum
þetta nafn?
Ég veit það eiginlega ekki, það kom
eins og af sjálfu sér. Valur er gam-
all ránfugl, og okkur Valsmönnum
þykir vænt um félagið og nafnið, og
fálkinn hefur alltaf verið virtur fugl.
Á ferð minni til Þýzkalands með
Þrótti í fyrra, kom það fram hjá Þjóð-
verjunum, að þeir höfðu kynnzt okk-
ur fyrst sem þjóðar, þar sem fálkar
lifðu — veiðifálkar. Ég fletti upp
alfræðibók um fálkana, þar kom fram
að Hollendingar veiddu þá og fóru
með þá í hollenzka borg, sem hét
Falkenwirth. Þar tömdu þeir þessa
fálka og gáfu síðan furstunum, sem
höfðu þá með sér á anda- og gæsa-
veiðar, og þótti það kjörgripur, að
hafa slíkan fugl með sér í þessar
veiðiferðir.
Segðu mér, Hermann, eru áætlan-
irnar fyrir næsta ár nokkuð leyndar-
mál?
Sei, sei, nei, við höfum rætt þetta
okkar í milli og hefur þá Mývatn
komið til tals. Við Gunnar höfum
verið þar við knattspyrnukennslu í
nokkur sumur. Það hefur verið tal-
að um Grænlandsferð, og leika við
nágranna okkar þar, sem eru að byrja
í knattspyrnunni.
Manst þú eftir nokkrum skemmti-
legum atvikum frá þessum ferðum
ykkar í sumar?
Jú, þegar við lékum síðari leikinn
í Grindavík var mikið tilstand, enda
veður gott. Þar voru skipstjórar sem
áttu sín eigin skip, margir þeirra
höfðu bundið skip sitt við bryggju,
á meðan þeir voru að verja heiður
staðarins. En þetta varð ekki alveg
þrautalaust fyrir þá suma, því að
einn þeirra gerði sjálfsmark og fékk
það mikið á manninn. Við það bætt-
ist svo, að hann komst ekki í róður,
og tapaði þar ef til vill tugum eða
hundruðum þúsunda. Ekki bætti það
úr, að við hörðnuðum um allan helm-
ing við þetta óhapp skipstjórans, og
lauk leiknum með sigri okkar 8:4.
Hvert er álit þitt á því hvaða áhrif
þessi starfsemi ykkar hefur á sjálfa
ykkur og félagslífið í Val?
Þegar maður hefur verið í þessu
frá blautu barnsbeini, að þá er það
dálítil eyða sem kemur þegar maður
hættir, og maður minnist gamalla
tíma í góðum félagsskap. Þegar við
erum komnir saman lifir maður gamla
Sú venja hefur gilt um áratugi að
félagsheimili Vals að Hlíðarenda hef-
ur jafnan verið opið gestum og gang-
andi á afmælisdegi félagsins og þar
hafðar veitingar af mikilli rausn.
Jafnan hefur verið fjölmennt að Hlíð-
arenda þenna dag bæði af félögum
og gestum. Enda er dagurinn orðinn
„fastur hátíðisdagur" innan íþrótta-
hreyfingarinnar í Reykjavík.
Á 60 ára afmæli félagsins hinn 11.
maí s.l. var svo sem venja er til „opið
hús“ á Hlíðarenda. Fjöldi manna og
kvenna kom á staðinn, bæði félagar,
velunnarar félagsins, forustumenn
annarra íþróttafélaga og félagar
þeirra, svo og ýmsir forystumenn
deildasamtakanna eða um 200 manns.
Þarna voru ræður fluttar og árnað-
aróskir, gjafir afhentar og menn orð-
um sæmdir af hinum dýrustu málm-
um, sem ljóma sló á frá bjartri vor-
sólinni.
Formaður félagsins, Þórður Þor-
kelsson, bauð gesti velkomna og
stjórnaði hófinu. Áður hafði blóm-
sveigur frá Val verið lagður að styttu
séra Friðriks í minningu um hann
og aðra látna Valsmenn.
Meðal þeirra sem þarna tók til máls
fyrstur manna, var einn af stofn-
endum Vals og raunar frumkvöðull,
Guðbjörn Guðmundsson prentari.
Mæltist honum vel að vanda. Afhenti
hann peningaupphæð veglega, 22 þús-
und krónur, frá eftirlifandi stofn-
endum félagsins, en þeir eru átta að
tölu. Gjöf þessari fylgdi glæsilegt
skjal með ávarpi til félagsins undir-
ritað af gefendum.
Þá flutti Úlfar Þórðarson læknir
og fyrrv. formaður Vals stutt ávarp
og afhenti fimm þúsund króna gjöf
frá sér. Frá F. H. og Haukum í Hafn-
arfirði barst fáni á stöng, skreyttur
merkjum félaganna. Mjög falleg gjöf.
Magnús Pétursson knattspyrnudóm-
ari afhenti frá sér fótknött, skreyttan
blómum. Frumleg gjöf og skemmtileg.
Næst afhenti Einar Björnsson stækk-
tímann upp aftur, og sálrænt hefur
maður mjög gott af þessu. Menn, sem
ekki hafa fundið nein tómstundastörf,
finna sig strax aftur þegar þeir eru
komnir í hóp með gömlu félögunum.
Inná við í félaginu er þetta þýðing-
armikið, því að það er jákvæðara
að leita til manna með einhverja fyr-
irgreiðslu, sem eru virkir sem félags-
menn, þó að í þessu formi sé.
Þeir verða tilbúnir að veita þeim
yngri aðstoð með orðum eða athöfn-
um, til þess að ná lengra á sviði
íþrótta og félagsmála.
aða mynd af Axel Gunnarssyni fyrrv.
formanni Vals, en Axel átti hvað
drýgstan þátt í því að koma í veg
fyrir að Valur legði upp laupana
1922 og hætti störfum. Gunnar Jóns-
son innrömmunarmeistari innramm-
aði myndina og gekk frá henni á mjög
vandaðan hátt.
Þá fór fram afhending heiðurs-
merkja og hlutu þessir menn viður-
kenningu: Einar Björnsson gullorðu,
Stefán Hallgrímsson gullmerki, Axel
Einarsson, fyrrv. formaður HSÍ silf-
urorðu, Ásbjörn Sigurjónsson fyrrv.
formaður HSl silfurorðu, Björn Hall-
dórsson silfurmerki og Jón Bergmann
silfurmerki.
Meðal gesta þarna voru borgar-
stjórinn í Reykjavík, Geir Hallgríms-
son, og Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra.
Nokkru eftir þann 11. maí var að-
alstjórn boðið til stjórnar K.F.U.M.
Formaður K.F.U.M., Bjarni Eyjólfs-
son ritstjóri, hafði orð fyrir stjórn-
inni og um leið og hann bauð aðal-
stjórn Vals velkomna á þeirra fund
lét hann þess getið að heimsókn þessi
og ósk um að hitta stjórn Vals, stæði
í sambandi við 60 ára afmæli Vals.
Því miður hefði staðið svo á, að eng-
inn úr stjórn K.F.U.M. hefði haft að-
stöðu til að koma í heimsókn að Hlíð-
arenda 11. maí. Afhenti Bjarni síðan
formanni Vals forkunnarfagran bik-
ar að gjöf til félagsins í tilefni af-
mælisins. Á bikarinn var grafið m. a.
„drengileg sé þín dáð og iðja“ og
Knattspyrnufélagið Valur 60 ára —
frá K.F.U.M., Reykjavík. Árnaði
síðan Bjarni Val allra heilla í fram-
tíðinni. Formaður Vals, Þórður Þor-
kelsson, þakkaði með stuttri ræðu
hina kærkomnu gjöf og þá vinsemd
sem boð þetta bæri vott um af hálfu
stjórnar K.F.U.M. til Vals. Þakkaði
Þórður og hinar rausnarlegu veiting-
ar sem fram hefðu verið bornar.
liinar lljörnsson:
Stofndagur Vals 11. maí 1911