Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 70

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 70
68 VALSBLAÐIÐ Frímunn Hclguson: Tvœr Valkyrjur haia orðið Sigrún og Björg Guð- mundsdœtur: „Þetta hefur sannarlega verið okkur skemmtun^ Við Valsmenn höfum um langan tíma verið ákaflega hreyknir af kvennaflokki félagsins í handknatt- leik. Sigrar þeirra hafa glatt gömul og ung hjörtu. Út á við njóta þær virðingar fyrir frammistöðu sína, að viðhalda því erfiða hlutverki að geta haldið sig á toppnum í svo mörg ár, til þess þarf elju og dugnað. Þær hafa líka verið heppnar, að hafa allan tímann haft góða menn til að „halda í hendina á sér“. Það hefur líka verið heppni, bæði fyrir flokkinn og félag- ið, að hafa haft innan hópsins af- rekskonur sem einnig hafa sýnt hon- um mikla tryggð, og haldið lengi út, og þá um leið miðlað þeim, sem eru að koma, dálitlu af reynslu sinni. í dag eru í þessum flokki tvær slíkar, sem hafa lengi verið máttar- stólpar liðsins, og haldið lengi út, en það eru þær systur Sigrún og Björg Guðmundsdætur. Báðar hafa þær komizt langt í íþróttinni, Sigrún t. d. leikið 7 landsleiki í A-liði, 6 lands- leiki í unglingalandsliði og nær 20 leiki í úrvalsliðum, og Björg, sem er tveim árum yngri, hefur leikið 4 A- landsleiki, 11 unglingalandsleiki og allmarga úrvalsleiki. Sigrún hefur leikið nokkuð á annað hundrað leiki fyrir Val og Björg lék í haust 100. leik sinn. Þó að Þórarinn okkar hafi magnaö þessar ágætu stúlkur Vals, þá má geta þess að heimili þeirra er þrungið áhuga fyrir handknattleik og Val. Ég vona að það sé ekkert á pabbann hallað þó sagt sé, að mamm- an láti ekkert framhjá sér fara þeg- ar dætur hennar eru að keppa, eða standa í einhverjum stórræðum í skipulögðu félagsstarfi. Gerið upp við ykkur hvað þið munduð segja, ef til ykkar yrði leitað með aðstoð sem hér hefur verið lýst. Jákvætt svar miðar ákveðið að því að gera þetta unga Valsfólk að betri borgurum, betri son- um og dætrum, að gera Valssvæðið að betri uppeldisstöð eða stofnun, þar sem margir leggjast á eitt að annast hluta uppeidisins á þessu efnilega fólki, sem þar fer fram. Og hverjir eru líklegrí íil að vinna þar gott verk en einmitt pabbar drengjanna, og því er spurt hér nð lokum eins og byrj- að var: Liggja pabbar á lausu? handknattleik. Þau sjá marga leiki þeirra, og það leikur grunur á því að hún hafi næstum því beint samband við staðinn þar sem leikurinn fer fram, til að fylgjast með gangi hans og frammistöðu dætra sinna! Skýr- ingin liggur ef til vill í því að á yngri árum lék hún með meistaraflokki Ármanns, af miklum meðfæddum áhuga, og það virðist sem að hann hafi ekki látið á sjá, þó að dæturnar hafi tekið leikinn sem sitt gaman. Þessi ágæta kona heitir Svava Jó- hannesdóttir og lifir og hrærist í handknattleiknum af lífi og sál, eins og einhver orðaði það. Allt býr þetta fólk í sama húsi, heldur vel saman. Sigrún er húsmóðir og á einn lítinn son, og er ekki að efa að amman er til viðræðu til barnagæzlu, ef ann- að bregzt, svo að Sigrún geti komizt á æfingar. Okkur í ritstjórninni þótti forvitni- legt að ná tali af þeim systrum og heyra hvað þær hefðu að segja um handknattleiksferil sinn, og fer það hér á eftir: Hvenær genguð þið í Val og hvers vegna Val? Sigrún: Ég var nú í Ármanni til að byrja með, en þær voru svo mikið eldri en ég að ég átti ekki samleið með þeim. Pabbi og mamma sögðu að aðeins Valur eða Fram kæmi þá til greina. Ég var nú víst búin að lofa mér í Fram. Þá var það að mamma horfði á einhvern leik, þar sem Valsstúlkur voru að leik, og hét því þá að ef Valsstúlkurnar sigruðu í mótinu skyldi ég fara í Val. Nú, Valur vann mótið, og þar með voru mín örlög ráðin, án þess að ég hefði neitt um það að segja! Björg: Ég byrjaði í Ármanni eins og Sigrún. Hún fór á undan mér í Val, en þá var ég í öðrum flokki, og hún í öðrum flokki í Val. Þá var það segin saga, að þegar við áttum að leika hvor á móti annarri, að þá sagði pabbi alltaf við Sigrúnu áður en hún fór: „Gættu þess að skjóta ekki í Björgu litlu!“ Svo var ég ekki alls kostar ánægð hjá Ármanni, og fór þá yfir í Val, og mér hefur líkað þar mjög vel. Nú hafið þið leikið marga stóra leiki og komið víða við, en hvaða leikir hafa verið ykkur minnisstæð- astir? Sigrún: Því er erfitt að svara, það eru svo margir skemmtilegir leikir sem ég hef tekið þátt í með Val, þó held ég að leikurinn gegn norska lið- inu Skogn í Evrópubikarkeppninni hafi verið eftirminnilegastur. Það var skemmtilegt og spennandi að komast í aðra umferð, það var líka sigur fyrir handboltann hér. Mér er líka minnisstæður leikurinn við FH-liðið eins og það var, og unnum þá stóran sigur. Björg: Æ, ég veit það ekki, ég var nú svo ung þegar við lékum á móti Skogn, en ég man það að mér þótti það ofsalega mikill sigur að komast í aðra umferð. Þá er því ekki að leyna að leikurinn við Fram í fyrravetur, þegar við endurheimtum Islandsbik- arinn, verður mér lengi minnisstæð- ur. í þessum leik var ákaflega mikil barátta, og mér er minnisstætt að við héldum boltanum í tvær mínútur, þrátt fyrir alla þá spennu sem var í leiknum, og hvað leikurinn var jafn. Eruð þið nokkuð hjátrúarfullar í sambandi við leiki, ferðir eða annað er varðar handknattleik ? Sigrún: Já, ekki er laust við það. Ég verð alltaf að hafa sama númer á peysunni minni, eða númer 4, vera alltaf við sama snaga í búningsklef- anum, ég vil líka alltaf byrja sömu megin í leik, og mér finnst alveg ómögulegt að breyta útaf þessu, finnst það boði eitthvað slæmt. Einu sinni var það líka þannig, að pabbi varð alltaf að koma og vera viðstaddur leiki sem ég lék í. En svo vildi það til einu sinni að hann missti úr mót, en auðvitað varð ég að keppa, við unnum nú mótið samt, svo það hefur ekki verið eins nauðsynlegt síðan að hann væri viðstaddur. Björg: Jú, ég er ekki laus við það, ég verð t. d. alltaf að vera í peysu sem er með númerið 10, og mér finnst ómögulegt að fara út í leik nema að vera með þetta númer. Ég verð líka alltaf að vera í sama klefanum inni í Höll, innsta klefanum. Ég hef nú ekki fastan snaga, en ég verð að vera á vissu svæði í klefanum, um annað er ekki að ræða. I sambandi við upp- hitunarbúninginn minn hefur föst venja skapazt hjá mér. Ef við töpum leik eða gerum jafntefli, verð ég að þvo búninginn rækilega, en ef við vinnum og þó það haldi áfram lang- tímum saman, þvæ ég hann ekki á meðan, sama hvernig hann lítur út! Þetta cr undarlegt, en ég ræð ekki við þetta. Segið mér systur, er mikið systra- samband ykkar í milli? Sigrún: Jú, ég býst við því, við bú- um í sama húsi og höfum alltaf ver- ið saman, það gerir sitt, við höfum sömu áhugamál, þegar ég hugsa um það nánar, held ég að sambandið sé meira en oft er milli systra. Björg: Ég held að það sé, við erum aðeins tvær, engir bræður, og vegna þess held ég að það verði mikið nán- ara samband milli okkar. Þetta kem- ur líka fram ef önnur hvor meiðir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.